Læknablaðið - 01.09.1954, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ
117
eclampsia gravidarum. Hlaut
liann reyndar aö vita, ef um
aðra eins nýlundu og keisara-
skurð liefði verið að ræða, og
væri honum þá allsólíkt að
láta þess ógetið. Venzlafólk
Ragnhildar heitinnar, sem enn
er lífs nyrðra, hefur verið innt
eftir, hvað það vissi um tildrög
að fráfalli hennar; har sú eft-
irgrennslan engan árangur, en
víst mun það aldrei liafa lieyrt
keisaraskurð nefndan í því
samhandi. Stéttarbræður og
margra ára samstarfsmenn
Matthíasar í Reykjavík kunna
ekkert af þessari aðgerð að
segja, og virðist hún ekki hafa
vakið neina athygli meðal
lækna. Loks er þess að geta,
að kona sú, sem Matthías gerði
keisaraskurðinn á 1910 og enn
er á lífi við góða heilsu og bið
bezta ern í Keflavík, tjáir mér,
að hún liafi þá verið frædd á
því, að áður hefði aðeins einu
sinni verið gerður keisaia-
skurður á íslandi. Það hefði
gert Schierbeck landlæknir;
hæði kona og harn hefðu dáið,
og hefði konan verið krypp-
lingur. Ekki mun þurfa að gera
því skóna, að Schierbeck land-
læknir hafi gert hér keisara-
skurð. Enginn kann nú af því
að segj a, og í ársskýrslum hans
getur þess ekki, en að vísu gerir
liann þar enga grein fyrir
liandlæknisaðgerðum sínum,
og engin gögn eru kunn um
sjúkrahúslæknisstörf hans í
Revkjavik. Er líldegast, að hér
gæti missagna, sem eru ekki
óeðlilegar, og er tæplega á-
stæða til að efa, að eingöngu
sé um að ræða keisaraskurð
Jóns Hjaltalíns.
Að öllu þessu athuguðu og
því til viðbótar, að árið 1907
mun ekki hafa verið til komið
að telja fæðingarkrampa eðli-
legt tilefni keisaraskurðar, ætti
að vera óhætt að álykta, að
umrædd operatio pro eclamp-
sia gravidarum liafi aðeins
verið himnustunga eða aðiu
tilburðir til að flýta fæðingu.
I þessu samhandi er skylt að
geta þess, að auk þess sem
Matthías Einarsson gegndi
lækningum á St. Jósefsspítala,
var hann jafnframt læknir við
Franska spítalann í Reykjavík
(frá 1905). Ókunn eru með öllu
gögn um þann spítalarekstur,
en ekki Imun þykja líklegt, að
þar væri á þessum tíma að leila
keisaraskurðar, er farið hefði
fram hjá læknum í Reykjavik,
en verið kunnur Sigurði Hjör-
leifssvni á Akureyri.
Nema annað komi óvænt í
Ijós, verður við það að sitja,
að enginn keisaraskurður hafi
glatazt úr tölu hinna allra
fyrstu keisaraskurða hér á
landi og sé um missögn eina
að ræða í fyrrnefndum um-
mælum blaðsins Norðurlands.
Þar gat komið lil greina sú
missögn, sem fyrr um ræðir,
að eigna Schierbeck keisara-