Læknablaðið - 01.09.1954, Qupperneq 20
128
LÆKNABLAÐIÐ
Af eðlilegum ástæðum munu
íslenzkir stúdenlar hafa nán-
ari kynni af lífskjörum og lifn-
aðarháttum almennings en gei -
ist um stúdenta meðal flestra
annara þjóða. Hér hefur það
og mjög tiðkast, sem kunnugt
er, að læknastúdentar ráðist
sem aðstoðarlæknar eða jafn-
vel staðgenglar héraðslækna.
En auk þess er slík þjónusta
um 6 mánaða skeið að loknu
embættisprófi skilyrði fyrir
veitingu almenns lækninga-
leyfis. Fá þeir þannig næg
tækifæri til að kynnast aðbún-
aði sjúklinga í sínu rétta um-
hverfi og geta vafalaust mikið
af því lært, ef þeir hafa augun
opin.
Er ekki ólíklegt að líkur
háttur verði tekinn upp víðar
og mun svo þegar hafa verið
gert í Noregi (6 mánaða
skyldustarf sem aðstoðarlækn-
ir héraðslæknis).
Sums staðar hefur verið
reynt að gefa stúdentum tæki-
færi til að annast sjúklinga í
heimahúsulm jafnhliða náminu
undir leiðsögn læknis. Eru þeir
þá einnig, þegar svo her undir,
látnir fylgjast með sjúkling-
um fyrst eftir að þeir koma
heim af sjúkrahúsi. Þykir
þetta líklegt til að gefa góða
raun.
Talsverð áherzla var lögð á
það, að kenna bæri undirstöðu-
atriði í „biometri“ og „vital
statistic“ og töldu sumir að sú
kennsla ætti að fara fram áð-
ur en byrjað væri á síðasta
hluta námsins.
Eins og áður var sagt bar
þarna margt á góma, og mun
flestum liafa þótt fundur þessi
hinn ánægjulegasti og gagnleg-
asti.
Mörgum áhugasömum kenn-
urum liættir til að lita of ein-
liliða á kennsluna sem heina
ítroðslu, rétt eins og útilokað
væri að stúdentinn gæti lært
nokkuð nöma beint af vörum
kennarans, og er þetta raunar
í samræmi við tíðarandann. En
hætt er við, ef slík sjónarmið
ráða, að kennslan verði ekki
fallin til að efla sjálfstæða
hugsun og dómgreind nemaud-
ans, eiginleika sem verðandi
lækni eru meira virði og betra
veganesti en lærdómurinn
einn, sem kennarinn miðlar.
Enda nær sá lærdómur
skannnt, ef liann styðst ekki
við sjálfsnám að verulegu levti.
Á síðastliðnu sumri gekkst
Heilbrigðisstofnunin svo fyrir
öðrum umræðufundi, þar sem
rætt var ujm undirbúnings-
menntun embættislækna. Var
sá fundur í Gautahorg.
Július Sigurjónsson.
Uppprentun úr Læknablaðinu er bönnuð nema að fengnu leyfi höfunda.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er i Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 757.