Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 1
13. tölublað 2013 Fimmtudagur 4. júlí Blað nr. 398 19. árg. Upplag 30.000
Mynd / HKr.
Heimsmet var niðurstaðan
af sjö daga löngu uppboði á
minkaskinnum í Kopenhagen
Fur í júní. Íslenskir minkabændur
voru þar í hópi bestu framleiðenda
í heimi. Fékkst um 10-15%
hækkun í Bandaríkjadölum (USD)
samanborið við síðustu uppboð
sem haldinn hafa verið í heiminum.
Íslendingar að ná Dönum
Íslendingar virðast vera að festa sig
í sessi í öðru sætinu á eftir Dönum
hvað gæði varðar. Á listanum trónaði
Eistland að vísu með hæsta meðalverð
á skinn, en fjöldi skinna frá þeim var
sáralítill. Íslenska loðdýrabændur
vinna nú hörðum höndum að því að
komast fram úr Dönum í gæðum.
Í grein sem Jesper Lauge
Christensen, sölustjóri og yfirmaður
samskipta við bændur, ritar í
fréttabréfi Kopenhagen Fur, segir að
uppboðssalurinn í Kaupmannahöfn
hafi verið full setinn og 850
kaupendur mætt. Af þeim voru
550 frá austurlöndum fjær. Þessi
mikli fjöldi kaupenda jók verulega
á samkeppnina um skinnin sem
síðan leiddi til hækkunar á verði.
Kaupendurnir voru einnig ánægðir
með niðurstöðuna og óskuðu
uppboðshúsinu til hamingju með
besta uppboð sölutímabilsins.
Besta söluárið í sögunni
Christensen segir Kopenhagen Fur nú
eiga sitt besta söluár í fjölda flokkaðra
skinna og fjölda sem búið er að selja.
„Við lok söluársins verður búið að
selja um 21 milljón minkaskinna.
Þessi mikli fjöldi í framboði dregur
að stærsta hóp kaupenda sem völ
er á og keyrir upp samkeppni um
kaup á skinnum, sem tryggir besta
markaðsverðið fyrir bændur.“
Fagmennska í fyrirrúmi
„Kopenhagen Fur vinnur alltaf að
því að auka afköstin en um leið
gæðin í vinnubrögðum í húsinu,
þannig að öll skinn nái tilætluðum
uppboðum,“ segir Christensen.
„Afkastamikið og vandvirkt
uppboðshús er grunnurinn að
hámörkun á skinnaverði til bænda.
Þetta er meðal ástæðna þess að
erlendum bændum í viðskiptum
við okkur hefur fjölgað jafnt og
þétt og eru þeir í dag yfir 1.000 sem
selja hjá okkur. Febrúaruppboðið
hjá Kopenhagen Fur í ár var það
umfangsmesta í framboði skinna frá
upphafi, eða 5,7 milljónir skinna, og
eigum við von á að geta verið með
ennþá stærra uppboð á sama tíma
að ári. Framboðið á minkaskinnum
á næsta sölutímabili verður einnig
í heildina mun meira en á þessu.
Skil á skinnum af eftirpelsunar-
högnum til uppboðshússin hefur
aldrei verið meiri en í ár og gátum við
nú boðið 1,3 milljónir slíkra skinna
til sölu. Eftir júní uppboðið 2012
voru kaupendur mjög ánægðir með
framboðið af eftirpelsunarskinnum
sem þá leiddi til góðra verða
sem síðan bændur glöddust yfir.
Afleiðingin var að í ár komu meira
en 500.000 fleiri eftirpelsunnar skinn
til sölu hjá okkur en áður sem síðan
jók enn á fjölbreytnina í framboði
sem endurspeglaðist í bestu verðum
sem þekkst hafa á þessum skinnum.“
Mikil gæði
Mjög mikil gæði skinna einkenndu
framboðið á júníuppboðinu. Besta
búntið með Safír Cross högnum setti
nýtt met, en kínverskur kaupandi
borgaði 4.700 DKK á hvert skinn. Hitt
toppbúntið var Stardust-læðuskinn
og var það keypt af Fang Linping,
meðeiganda Beijing Ma's Wei Ye Co.
Ltd. á meðalverðinu 3.600 dkr. pr
skinn. Eftir kaupin sagði Fang:
„Ég hef verið að leita að mjög
sérstökum skinnum með mikil gæði
sem gætu orðið einkennisskinn í
hágæða pelsbúðum sem ég á í Peking.
Mörg uppboðshús hafa haft samband
við mig en í mínum huga var enginn
vafi á að skinnin ættu að koma frá
Kopenhagen Fur. Þetta Stardust-búnt
uppfyllir markmið mín og lýsir bæði
lúxus en einnig frjálsleika.“
Alls voru 13.100 Chinchilla-skinn
seld á meðalverðinu 350 DKK. Fyrsta
flokks skinnin voru seld á 411 DKK
að meðaltali, sem er 7% lægra verð
en var á apríl uppboðinu. Besta verðið
var 729 DKK. Það voru einkum
kaupendur frá Kína og Ítalíu sem
keyptu Chinchilla-skinn.
Næsta uppboð verður 7.-13.
septem ber en skoðun skinna af
kaupendum hefst 1. september.
/HKr./EE
- Sjá nánar bls. 4dagsins í dag.
Ekkert lát virðist vera á velgengni íslenskra minkaframleiðenda á uppboðsmarkaði í Kaupmannahöfn:
Heimsmet sett í verði á minkaskinnum
Mynd / HKr.
Ytri úttekt á lambakjötsmati:
Ósamræmi í mati
á holdfyllingu
Vikuna 24.-28. september á
síðasta ári fór fram úttekt
Matvælastofnunar (MAST) á
kjötmati lamba í sex sláturhúsum
með þátttöku tveggja erlendra
yfirkjötmatsmanna. Skýrsla um
verkefnið hefur nú verið gefin út
og í niðurstöðum kemur m.a. fram
að samræmi í holdfyllingarmati,
milli húsmats og viðmiðunarmats,
var í öllum sláturhúsum undir 80
prósenta viðmiðunarmörkum.
Þar segir enn fremur að ákveðið
ósamræmi sé á milli sláturhúsa í
holdfyllingarmati, þar sem húsmatið
sé ýmist hærra eða lægra en
viðmiðunarmatið. Hliðrun hafi þó
alltaf verið innan viðmiðunarmarka.
Ágætt samræmi var milli
íslensku yfirkjötmatsmannanna og
úttektarmannanna í holdfyllingar-
matinu, eða að jafnaði nokkuð yfir 80%.
Samræmi í fitumati er almennt mun
lakara en í holdfyllingarmati og hliðrun
þó nokkuð yfir viðmiðunarmörkum,
en húsmatið metur skrokkana yfirleitt
magrari en úttektarmennirnir.
Samræmi milli íslensku yfirmats-
mannanna í fitumati var undir 80%
viðmiðunarmörkum og segir í
niðurstöðum að það þurfi að bæta.
Ítarlegar niðurstöður og umfjöllun
um þær er að finna á vef MAST.
/smh
12
í blómlegu
22 42