Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 30

Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júlí 2013 Utan úr heimi Undanfarin ár hefur tækninni fleytt fram á sviði ræktunar nautgripa og reglulega koma fram á sjónarsviðið nýjungar á þessu sviði sem geta leitt til enn meiri framþróunar. Þróunin á þessu sviði er svo hröð að erfitt getur verið að fylgjast með öllu því sem gerist en hér verður gerð tilraun til þess að draga saman a.m.k. suma þætti sem mikið hafa verið í umræðunni erlendis síðustu ár. Kyngreint sæði Þegar rætt er um nýjungar á sviði ræktunar nautgripa er nú e.t.v. verið að bera í bakkafullan lækinn að nefna kyngreiningu á sæði, enda hefur kyngreint nautasæði verið til sölu í heiminum í rúm 10 ár. Þetta er þó nefnt hér þar sem aðferðin hefur ekki enn verið tekin í notkun hér á landi. Óhætt er að fullyrða að kyngreining á sæði hafi hreinlega valdið byltingu í nautgriparækt og er nú undantekningarlítið hægt að fá kyngreint sæði allra helstu afurðakynja nautgripa, bæði sæði sem inniheldur hátt hlutfall X-litninga og hentar því í mjólkurframleiðslu en einnig sæði sem inniheldur hátt hlutfall Y-litninga og hentar því í holdanautaframleiðslu. Öryggið á völdu kyni er um 85% sem hefur gert það að verkum að bændur geta gjörbreytt ræktunaráherslum sínum. Í upphafi þótti þessi aðferð nokkuð óörugg vegna hás endursæðingarhlufalls en bæði með betri vinnsluaðferðum og bættri tækni við beiðslisgreiningar, s.s. notkun á margs konar tölvubúnaði, gengur miklu betur að fá kýrnar til þess að festa fang. Erfðapróf gripa Önnur aðferð, og mun nær okkur í tíma en kyngreining á sæði, er notkun á sk. erfðaprófi en sú aðferð byggir á því skoða erfðamengi gripanna út frá blóðprófi strax á smákálfinum og út frá þekktum stærðum er hægt að segja til um hvort gripurinn beri þær arfgerðir sem séu eftirsóknarverðar. Þessi aðferð hefur farið hratt yfir sviðið á liðnum 4-5 árum og er talin geta aukið framfarir í ræktuninni um 50-100%. Skýrist það af því að ættliðabilið verður miklu styttra enda hægt að velja bæði nautin kornung og nautsmæður sem kvígukálfa. Þá sparar aðferðin auk þess fjármuni þar sem hægt er að fækka verulega þeim nautum sem sett eru í afkvæmaprófun. Vandamálið við þessa aðferð er þó sú staðreynd að erfitt getur verið að nýta staðla þekktra kúakynja hér á landi þar sem stofninn hefur verið einangraður lengi og því mögulega lítt skyldur helstu afurðastofnum. Líkurnar á því að þau próf sem eru notuð erlendis nái að fanga þann breytileika í arfgerð sem verið er að leita að eru því hugsanlega litlar en þó er það ekki víst. Sæði með lengri líftíma Fyrir tveimur árum var kynnt til sögunnar ný aðferð við frystingu á sæði sem stóreykur líftíma sæðisins eftir sæðingu. Aðferðin byggir á því að draga úr hreyfigetu sáðfrumanna fyrir frystingu og þar með að spara þeim mikla orku. Þessi aðferð þykir henta einstaklega vel þar sem langt er á milli bæja og því um langan veg að fara fyrir frjótækninn. Skýringin felst einfaldlega í því að sáðfrumurnar lifa sólarhring lengur í legi kúnna en fyrir þessa nýju aðferð og fyrir vikið er kórréttur sæðingatími ekki eins mikilvægur og áður. Auk þess sýnir hin stutta reynsla af notkuninni að uppbeiðsli eru verulega minni en þegar hefðbundið sæði er notað. Sæðið sótthreinsað! Það nýjasta á markaðinum er svo sk. sótthreinsun á sæði en þá er mótefnum hreinlega blandað við sæðið svo tryggt sé að ekki geti borist neinir sjúkdómar með því. Fyrir vikið er hægt að stækka mögulegt áhrifasvæði kynbótanauta til nánast allra landa heimsins enda ótti við meinta sjúkdóma við sæðingu óþarfur. Einræktaðar kýr Undanfarin ár hafa orðið miklar framfarir í einræktun gripa (oft kallað klónun) en einræktun felst í því að gripum er fjölgað sem eru erfðafræðilega nákvæmlega eins. Þessi aðferð er auðvitað vel þekkt í jarðrækt s.s. þegar teknir eru græðlingar af plöntum og þeir svo látnir vaxa upp en að fjölga skepnum með þessum hætti er nokkuð nýtt af nálinni. Fyrsta þekkta tilfellið var þegar skoskir vísindamenn einræktuðu kindina Dollý árið 1997 en síðar hefur orðið mikil þróun á þessu sviði og í dag eru til þúsundir gripa sem hafa verið einræktaðir. Það eru auðvitað fyrst og fremst afburðagripir sem eru einræktaðir enda þeir taldir hafa erfðafræðilega eiginleika sem eru eftirsóknarverðir. Einræktun umdeild Aðferð þessi er þó afar umdeild og er þess skemmst að minnast að mikið fjaðrafok varð í Bretlandi sumarið 2010 þegar í ljós kom að þar hafði naut farið í sláturhús sem var undan klónaðri kú, en sam- kvæmt reglum Evrópusambandsins var slíkt óheimilt. Skoskur kúabóndi hafði keypti tvo fósturvísa úr frægri einræktaðri verðlaunakú frá Pennsylvaniu fylki í Bandaríkjunum og fékk hann afburða gott naut sem hann notaði svo til þess að kynbæta hjörð sína. Þegar fjölmiðlar komust í málið kom í ljós að þá þegar voru yfir 100 nautgripir fæddir sem áttu ættir að rekja til umræddrar einrækt- aðrar kýr. Breska matvælaeftirlitið gaf þegar út yfirlýsingu um að neytendum stafaði engin hætta af neyslu kjöts eða mjólkurvara frá einræktuðum gripum, en þrátt fyrir það var umræðan svo þung að flestar ef ekki allar afurðastöðvar gáfu út ábyrgðaryfirlýsingu um að ekki væri tekið á móti afurðum frá einrækt- uðum gripum. Afurðir einræktaðra gripa Í dag er staðan þannig að flestum bændum í heiminum stendur til boða að nýta einræktaða gripi í framleiðslu sinni, enda hefur verið varið miklum fjármunum og tíma vísindamanna í rannsóknir á bæði kjöti og mjólk frá einræktuðum gripum og hefur ekki verið hægt að sýna fram á að þær afurðir séu á einhvern hátt lakari en hefðbundnar afurðir. Því er afar líklegt að einhvers staðar í heiminum séu neytendur að gæða sér á mjólk, mjólkurafurðum eða nautakjöti frá gripum sem eiga ættir sínar að rekja til einræktaðra kynbótagripa. Erfðabreyttar kýr Oft virðist sem að fólk rugli saman einræktun og erfðabreytingu, sem er klárlega ekki sami hlutur. Svo virðist sem fréttir um erfðabreyttar kýr berist æ oftar nú orðið. Þannig hefur t.d. kínverskum vísindamönnum tekist að rækta kvígu sem er erfðabreytt með þeim hætti að hún ætti ekki að geta framleitt mjólk með hefðbundnum mjólkursykri heldur annarri gerð sykurs. Kvíga þessi fæddist á rannsóknastofu í Mongólíu fyrir ári en þegar hún var á fósturvísastigi var sprautað í fóstrið sérstöku ensími sem olli breytingum á erfðum þess með framangreindum hætti. Fleiri slíkar tilraunir hafa verið gerðar í Kína og hefur þannig tekist að framleiða kýr sem eru hraustari en aðrar kýr og veikjast t.d. ekki af hefðbundum júgurbólgubakteríum. Kýr með mennsku erfðaefni Annað dæmi um erfðabreytingu má taka til en vísindamenn við rannsóknarstofnun landbúnaðarins í Argentínu stóðu á bak við það undarlega verkefni að bæta mennskum genum inn í fósturvísi. Útkoman varð sú að kvíga fæddist sem framleiðir mjólk sem inniheldur próteingerðir sem eru í brjóstamjólk en ekki í hefðbundinni kúamjólk. Mjólk þessi er væntanlega enn umdeildari en mjólk frá kúm sem eru einræktaðar enda hljóta að vakna siðferðislegar spurningar um það hvort heimila eigi sölu á dýraafurðum frá skepnum sem eru með erfðaefni úr fólki, sem og því hvort heimila eigi yfirhöfuð slíkar skepnur. Ofurkýr ekki á næstunni Trúlega verður bið á því að einhvers konar erfðabreyttar ofurkýr verði allsráðandi í heiminum á næstunni enda eru gripirnir í dag fyrst og fremst á rannsóknarbúgörðum. Í ljósi þess hve mikið er unnið á þessu sviði í dag, sér í lagi í löndum utan Evrópu, er þó líklegt að á komandi árum þurfi að taka upplýsta afstöðu til þess hvort heimila eigi not á gripum sem hefur verið erfðabreytt með einum eða öðrum hætti. Vonandi munum við hins vegar sjá fljótlega í notkun hér á landi þær almennu aðferðir sem notaðar eru víðast í dag við hefðbundið kynbótastarf í nautgriparækt erlendis. Snorri Sigurðsson sns@vfl.dk Nautgriparæktarsviði Þekkingarsetri landbúnaðarins í Danmörku Hröð þróun ræktunarmöguleika nautgripa Evrópusambandshópur lífrænna landbúnaðarhreyfinga: Gagnrýnir harðlega ófullnægjandi breytingar á CAP landbúnaðarstefnu ESB varðandi aukna sjálfbærni – fjármagn skorti til að styðja fögur áform – nýtt samkomulag sagt ryðja grænum landbúnaði til hliðar og tryggja ekki sjálfbærni Evrópusambandshópur lífrænna landbúnaðarhreyfinga, IFOAM – EU Group, gagnrýnir harðlega samkomulag milli samninganefndar og Evrópuþingsins um breytingar á landbúnaðarstefnu ESB fyrir árin 2014 til 2020. (Common Agricultural Policy (CAP) 2014- 2020). Segir hópurinn að skortur sé á ákveðnum skrefum í átt til meiri sjálfbærni í landbúnaði undir stefnu CAP. Þessi gagnrýni er þvert á hástefndar yfirlýsingar ESB um að verið sé að gera miklar endurbætur á CAP-landbúnaðarstefnunni í átt til aukinnar sjálfbærni, sem m.a. hefur verið endurómað gagnrýnislaust í íslenskum fjölmiðlum að undan förnu. Í fréttatilkynningu hópsins, þar sem Ólafur Dýrmundsson situr m.a. fyrir hönd lífrænna ræktenda á Íslandi, segir m.a.: „Evrópusambandshópur lífrænna landbúnaðarhreyfinga, IFOAM – EU Group, gagnrýnir harðlega skort á metnaði í samkomulaginu. Á meðan grænni landbúnaður hafi verið viðurkenndur sem hugmynd, þá gerir samkomulagið ekki ráð fyrir nauðsynlegum breytingum í átt til grænni og sanngjarnari landbúnaðar á dreifbýlli svæðum.“ Formaður Evrópusambandshóps lífrænna landbúnaðarhreyfinga er einnig harðorður í frétta- tilkynningunni: „Í kynning á Stoð 1 (Pillar 1) sem fjallar um grænni landbúnað, er aðeins fjallað um fyrsta skrefið til að stýra greiðslum til bættrar framkvæmdar, en skuldbindingar eru allt of veikar. Á meðan þar er viðurkenning á lífrænni ræktun sem grænum landbúnaði og góðu skrefi til að staðfesta frumkvöðlahlutverk lífrænnar ræktunar í sjálfbærni landbúnaðar, þá inniheldur samkomulagið einnig umdeilda skoðun og undanþágur fyrir lélegri framkvæmd í umhverfismálum sem ryður grænum landbúnaði til hliðar,“ segir Christopher Stopes, formaður hópsins. „Samkomulagið er einnig langt frá því að tryggja sanngirni meðal bænda og því er stefnan í stuðningsgreiðslum CAP enn ófullnægjandi.“ Jan Plagge, sem er formaður bændahóps IFOAM – EU Group, segist fagna því að gert sé ráð fyrir að minnst 30% af fjármagni í „Stoð 2“ verði úthlutað að stærstum hluta til að efla umhverfisþætti. „Hins vegar er þetta ekki framför heldur áframhald á þeirri stöðnun sem ríkir í þeim efnum.“ Segir hann að þau fáu jákvæðu skref með skýrum skilaboðum um að nýir samstarfsaðilar í nýsköpun verði að styðja breytingar í átt til vistvænnar nálgunar geti því aðeins haft áhrif að til komi umtalsverðar nýjar fjárveitingar inn í Stoð 2. Án þess sé aðildarríkjum ESB gert ómögulegt að framkvæma breytingar í átt til meiri sjálfbærni í landbúnaði. Thomas Fertl, varaformaður IFOAM – EU Group, segir að lífrænir bændur og almenningur þurfi á komandi mánuðum að beita öllum ráðum til að þrýsta á stjórni aðildarríkja ESB til knýja fram breytingar. Færa þurfi 15% af fjármagni Stoðar 1 í Stoð 2 og tryggja síðan að yfir 50% af fjármagni Stoðar 2 verði nýtt til að styðja við umhverfisvænan og lífrænan landbúnað og setja vistvæn gildi í forgang í dreifbýlum héruðum. /HKr. Samkomulag um breytingar á CAP-landbúnaðarstefnu ESB er sagt algjörlega ófullnægjandi hvað varðar aukningu á sjálfbærni í landbúnaði. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.