Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júlí 2013 Silva, grænn matsölustaður á Syðra-Laugalandi í Eyjafjarðarsveit: Grænmetis- og hráfæðisstaður í blómlegu landbúnaðarhéraði Silva er grænn matsölustaður á Syðra-Laugalandi í Eyjafjarðar- sveit, en þar standa gestum til boða bæði grænmetis- og hráfæðisréttir, matarmiklar súpur ásamt hollum kökum og eftirréttum, þeytingar, nýpressaðir safar, hveitigras- og engiferskot. Þá má nefna að á Silvu er kaffi, te og kakó ávallt lagað úr lífrænum afurðum. „Við leggjum áherslu á góðan og fjölbreyttan matseðil með réttum sem framleiddir eru úr úrvals hráefni,“ segir Kristín Kolbeinsdóttir, sem á Silvu ásamt eiginmanni sínum Gretti Hjörleifssyni. Kristín er framkvæmdastjóri og sér alfarið um reksturinn en Grettir er verktaki og vinnur fyrir bændur, m.a. við heyskap, og þá hefur mikið verið að gera við jarðvinnslu undanfarnar vikur. Kristín segir að Silva hafi sérstöðu hvað það varðar að vera eini veitingastaðurinn utan höfuðborgar- svæðisins sem bjóði eingöngu grænmetis- og hráfæðisrétti. Réttir af því tagi standi gestum ýmissa veitingahúsa á landsbyggðinni vissulega til boða, en þá í bland við aðra rétti þar sem kjöt og fiskur koma við sögu. Veitingastaðurinn Silva var opnaður 19. maí í fyrravor og segir Kristín að reksturinn hafi gengið framar björtustu vonum. Það sama megi segja um það sem af er þessu sumri, sífellt fleiri gestir sæki staðinn heim. „Það hefur verið ágætt að gera hjá okkur í allt sumar og útlitið gott,“ segir hún. Veitingastaðurinn er opinn alla daga frá kl. 11.00-21.00 yfir sumar- tímann en á veturna er opið fyrir hópa og reynt að koma til móts við þarfir og óskir hvers hóps hverju sinni. Með eigin grænmetisgarð sunnan við hús „Mörgum þótti einkennilegt að setja upp svona matsölustað í miðju blómlegu landbúnaðarhéraði, en auðvitað er grænmetisrækt líka hluti af íslenskum landbúnaði og við kaupum mikið af því hráefni sem við notum í okkar matargerð frá garðyrkjustöðinni Brúnalaug sem er hér steinsnar frá. Þar er stunduð vistvæn grænmetisrækt og afraksturinn er úrvals hráefni,“ segir Kristín. Hún kveðst leggja mikla áherslu á að kaupa hráefni úr héraði og hafa sem allra mest heimafengið. Sjálf ræktar hún heilmikið grænmeti í garði sunnan við hús sitt, þar er ræktað salat sem og kál, næpur og radísur og annað grænmeti sem auðvelt er og þægilegt í ræktun. Kryddjurtir er þar einnig að finna, sem og jarðarberjaplöntur, og til „Það hefur verið mikið að gera hjá okkur í allt sumar og útlitið er ljómandi gott,“ segir Kristín Kolbeinsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Silvu. Mörgum þótti einkennilegt að setja upp grænmetis- og hráfæðismatsölustað í miðju blómlegu landbúnaðarhéraði en reksturinn hefur gengið vel. Myndir / MÞÞ Grænmetisgarður er á skjólgóðu svæði sunnan við húsið en þar ræktar Kristín ýmiss konar grænmeti sem notað er í matseld á Silvu.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.