Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 4. juli 2013 Búið er að fullmanna nýtt kokkalandslið sem er skipað færustu matreiðslumeisturum landsins, tólf talsins. Hinn lands þekkti matreiðslumeistari Hákon Már Örvarsson var fyrir skömmu ráðinn faglegur framkvæmdastjóri liðsins. Hann valdi Þráin Frey Vigfússon, yfir matreiðslumeistara á Kola- brautinni, sem fyrirliða og er Þráinn Freyr einnig liðsstjóri ásamt Viktori Erni Andréssyni, yfirmatreiðslumeistara á Lava í Bláa lóninu. Þeir þrír völdu í liðið úr þeim stóra hópi öflugra matreiðslumeistara sem nú eru starfandi á landinu. Greint var frá þessu á vefsíðunni freisting.is fyrir skömmu, en þar segir að verkefni undanfarinna vikna hafi verið að finna bestu matreiðslumeistarana sem eru reiðubúnir að taka þátt í því krefjandi æfingaferli sem fylgir þátttöku í matreiðslukeppnum. Gefinn var möguleiki á að sækja um og bárust fjölmargar umsóknir. Í liðinu eru ásamt þeim Hákoni Má Þráni Frey og Viktori Erni þau Fannar Vernharðsson VOX, Garðar Kári Garðarsson Fiskfélaginu, Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarnum, Hafsteinn Ólafsson Grillinu, Ylfa Helgadóttir Kopar, Axel Clausen Fiskmarkaðnum, Daníel Cochran Kolabrautinni, Þorkell Sigríðarson VOX og María Shramko, sem er meistari í sykurskreytingum. Kokkalandsliðinu er ætlað að vera öflug liðsheild sem hefur getu til að keppa meðal færustu matreiðslumeistara heimsins og er stefnt að þátttöku í alþjóðlegum keppnum. Kokkalandsliðið er rekið af Klúbbi matreiðslumeistara og hefur liðið það að markmiði að vera leiðandi í að efla fagmennsku og áhuga á matargerð, auka áhuga ungs fólks á matargerð og veita inn blástur fyrir matarmenningu Íslendinga. Liðið er skipað reyndu fagfólki og hafa margir í hópnum tekið þátt í matreiðslukeppnum. Þess má geta að fyrir skömmu vann Bjarni Siguróli Jakobsson silfurverðlaun í keppninni Matreiðslumeistari Norðurlandanna. Æfingar liðsins munu hefjast strax að loknum sumarfríum en stefnt er að þátttöku í Heimsmeistarakeppni og Ólympíuleikum matreiðslu- meistara, segir í fréttatilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara. Heitir pottar frá Lay-Z-Spa – loksins fáanlegir aftur Tilvaldir við sumarbústaðinn eða í garðinn heima. Pottarnir koma með loki og öllu sem til þarf. Borgartún 36 105 Reykjavík (bakvið Cabin Hótel) 588 9747 www.vdo.is Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is HÁÞRÝSTIDÆLUR Í MIKLU ÚRVALI Dynjandi hefur mikið úrval af vatns-, borholu-, og háþrýsti dælum af ýmsum stærðum og gerðum. Hafðu samband og við aðstoðum þig. Dynjandi örugglega fyrir þig! Hafið samband: E.G. Heild ehf. c/o Elías Gíslason Stórhöfða 17, 110 Reykjavík. Símar: 8616264, 5877685 netfang: eg.heild@simnet.is Heild ehf Æðardúnsbændur Óska eftir að kaupa fullhreinsaðan æðardún Getum bent á og mælt með hreinsunaraðilum Nú eru góð verð í boði r únsbændur s ftir f ll r i saðan æðardún tekið að mér hreinsun er i Nýja kokkalandsliðið, talið efst frá vinstri: Hákon Már Örvarsson, faglegur framkvæmdastjóri, Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarnum, Þráinn Freyr Vigfússon Kolabrautinni, Axel Clausen Fiskmarkaðnum, Þorkell Sigríðarson VOX, Daníel Cochran Kolabrautinni, Garðar Kári Garðarsson Fiskfélaginu, Fannar Vernharðsson VOX, Ylfa Helgadóttir Kopar, Viktor Örn Andrésson Lava, Hafsteinn Ólafsson Grillinu og María Shramko, meistari í sykur- skreytingum. Mynd / Rafn Rafnsson. Búið er að fullmanna nýtt kokkalandslið Íslands Landsvirkjun styður háskólana Landsvirkjun, Háskólinn í Reykjavík og Háskóli Íslands hafa tekið höndum saman um að stuðla að uppbyggingu þekkingar á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Með samstarfinu er lögð áhersla á að skapa sameiginlegt virði fyrir Landsvirkjun, háskólana og íslenskt samfélag með myndarlegum stuðn- ingi við þau fræðasvið þar sem þörf er á námi og rannsóknum. Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar, Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, og Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu þann 1. júlí samstarfssamninga til næstu fimm ára. Markmiðið er að efla háskólanám og rannsóknir sem stuðla að þróun og aukinni þekkingu á endurnýjanlegum orkugjöfum og vinnslu þeirra.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.