Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. juli 2013 7 Bændur í Grýtubakka í Höfða- hverfi, þau Þórarinn Ingi Pétursson og Hólmfríður Björnsdóttir, hafa tvær síðastliðnar helgar rekið fé sitt í afrétt í Fjörður, sem er þekkt snjóakista en þar er líka afbragðs sumarbeit. Enn var mikill snjór á Leirdalsheiði en reksturinn gekk þó vel fyrir sig. Fínasta beit í Fjörðum Þórarinn Ingi segir að farið hafi verið með rúmlega 400 kindur í hvorum rekstri, nú um liðna helgi og helgina þar á undan. „Þetta gekk ágætlega og frá okkur er þá farið allt það fé sem fer á afrétt í sumar,“ segir hann. Fínasta beit sé í Fjörðum en vissulega hafi Leirdalsheiðin verið erfið yfirferðar, þar er enn gríðarmikill snjór sem og í öllum dölum á leiðinni. Sjálfur hefur Þórarinn stundað búskap í Höfðahverfi tuttugu ár og man ekki eftir svo miklum snjó á þessum árstíma í sinni tíð. Elstu menn muni þó annað eins, og nefndi hann að álíka mikill snjór hefði verið á heiðinni árin 1974 og 1949 eftir því sem áðurnefndir elstu menn hefðu haft á orði. Færið ekkert sérstakt Hann segir að menn hafi verið heldur lengur á leiðinni en vant er, jeppi var notaður sem undanfari og gerði slóð fyrir féð og þá voru leiðangursmenn á hestum. „Færið var ekki neitt sérstakt, frekar blautt,“ segir hann. Leiðin yfir Leirdalsheiðina þar til komið er niður á auða jörð í námunda við Illagil er um 15 kílómetrar. /MÞÞ ins og þjóð þekkir, þá er 14. maí lögboðinn fánadagur, enda afmælisdagur Ólafs Ragnars forseta. En fleiri fagna afmælum þennan dag og þeirra á meðal Jóhannes Sigfússon bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði. Arfar Jóhannesar boðuðu til vinafundar honum til heiðurs nokkru eftir afmælisdaginn, enda bar hann upp á háannir sauðburðar. Til fagnaðarins buðu börn Jóhannesar nokkrum valinkunnum hagyrðingum undir stjórn Birgis Sveinbjörnssonar, þeim Birni Ingólfssyni fyrrv. skólastjóra á Grenivík, Ágústi Marinó Ágústssyni bónda á Sauðanesi, Hjálmari Freysteinssyni lækni á Akureyri, Pétri Péturssyni lækni á Akureyri og Friðriki Steingrímssyni fyrrum baðverði í Mývatnssveit. Ennfremur sat bróðir Jóa, Steingrímur fyrrum ráðherra, skáldabekkinn. Fagurlega fögnuðu þeir afmælisbarninu, þó hver með sínum hætti. Pétur Pétursson hóf þannig ávarp: Sannur ert í söng og máli, svalar þörf í ljóðabrunni. Skröltu á fótum styrktum stáli með stefnu byggða á traustum grunni. Eins og sveigt er að í vísunni slasaðist afmælisbarnið alvarlega á hestbaki fyrr á þessu ári. Til allrar blessunar er Jóhannes þó orðinn vel veislufær. Pétur gefur honum læknisvottorð: Þó yfir færist aldurinn allt í haginn gengur, en hjá þér Fjóla fjörtök stinn finnur ekki lengur. Björn Ingólfsson gladdist með Jóhannesi sextugum: Ætti að verða sem allir sjá, ef allt á að fara að settum reglum, forseti eftir þrjú ár; þá þarf ekki að breyta fánadögum. Ágúst Marínó á Sauðanesi var næstur til: Sextíuára hylli ég hann, höfðingjann inni í firði, sem lim hefur bólginn og brothættan og böll sem er einskis virði. Hjálmar Freysteinsson fagnar afmælisbarninu innilega: Megi framtíð færa þér, fremur en glys og dekur, það sem virði einhvers er og ekta gleði vekur. Holl eru ráðin sem Friðrik Steingrímsson gefur Jóa: Ég óska þér vinur alls hins besta, og ekkert þig fái meitt, en framvegis skaltu forðast hesta og flest sem þú telur reitt. Steingrímur flutti bróðurlega kveðju: Stóri bróðir götu greitt gengur vonum búna, og þó við bætist eitt og eitt ár – við sjáum núna, að á hann bítur ekki neitt með eina löpp þó snúna; á því hef ég óbilandi trúna. Birgir stjórnandi varpaði til hagyrðinganna, hvurnig þeir sæju framtíð Jóhannesar. Steingrímur svaraði: Endist drelli dugurinn dags á svelli tíða, og haldi velli hugurinn; hann mun ellin prýða. Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggd1@gmail.com Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM E Fé rekið á afrétt í Fjörður yfir snjóþunga Leirdalsheiði Grýtubakkaféð rekið yfir snjó breiðuna á Leirdalsheiði og í sumar beit í Fjörður. Myndir / Hólmfríður Björnsdóttir Það er greinilega bráðnauðsynlegt að hafa farsíma þegar það þarf að láta draga mann upp úr glompu.Á Tindum blasti við grænt og safaríkt grasið. Í fjarska sást í auða jörð.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.