Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júlí 20138 Fréttir Föstudaginn 21. júní stöðvaði Matvælastofnun (MAST) dreifingu afurða og dýra frá Brúarreykjum ehf. Bannið tók gildi þann sama dag og tekur til mjólkur, sláturgripa og lifandi gripa. Er þetta í annað sinn á sjö mánuðum sem búið er svipt framleiðsluleyfi. Hætta á lyfjaleifum í afurðunum Sigurborg Daðadóttir yfir dýralæknir segir að MAST hafi komist á snoðir um að sýklalyf hefðu komist í hendur Bjarna Bærings, bónda á Brúarreykjum, án þess að héraðsdýralæknir hefði skrifað lyfseðil fyrir þeim. „Við höfum grun um að Bjarni hafi keypt lyf ólöglega, án þess að þau hafi verið skráð. Við gripum til þess að stöðva dreifingu á afurðum frá búinu á forsendum matvælaöryggis. Eitthvað af lyfjunum fannst á bænum en það vantar heilmikið miðað við þær upplýsingar sem við höfum. Það sem fannst var gert upptækt. Þar sem við mátum að hætta væri á að lyfjaleifar væru í afurðum frá Brúarreykjum, en það er samkvæmt lögum óheimilt, þá gripum við til þessa úrræðis. Það er svo hins vegar Lyfja- stofnunar að rannsaka það mál frekar, enda er eftirlit með sölu lyfja á hennar ábyrgð.“ Annað framleiðslubannið á sjö mánuðum Mjólkursamsalan (MS) hefur tekið við mjólk frá Brúarreykjum í samræmi við endurnýjað starfsleyfi sem MAST veitti býlinu í janúar á þessu ári eftir að gerðar höfðu verið endurbætur á rekstrinum í kjölfar þess að MAST afturkallaði það í byrjun desember 2012. Það bann var sett vegna brota á reglum um hollustu- hætti við framleiðslu mjólkur og sláturgripa. Fundið var að hreinlæti við handþvottaaðstöðu, mjaltaþjónn var skítugur, for var um allt fjós og upp um alla veggi og gripir skítugir. Þá var þrifum á mjólkurtanki mjög ábótavant, auk þess sem of margir gripir voru í fjósinu. Allri mjólk verið fargað Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar (MS) og Auðhumlu, segir að þrátt fyrir að MS hafi tekið við mjólkinni frá búinu hafi hún ekki farið inn í framleiðslukerfi MS. „Það hefur engin mjólk frá lögbýlinu á Brúarreykjum verið tekin til vinnslu eða sölu hjá Mjólkursamsölunni frá því 2. desember á síðasta ári. Þá var búið að svipta Brúarreyki leyfi til starfseminnar. Við sóttum enga mjólk þangað eftir að leyfið var afnumið fyrr en í janúar 2013 þegar búið fékk framleiðsluleyfi á ný. MS tók strax þá afstöðu að nýta ekki mjólkina til vinnslu og sölu. Við vorum þó settir í þá stöðu að við yrðum að kaupa mjólkina vegna stöðu okkar á markaði, en við höfum fargað allri mjólk frá þessu búi með staðfestum hætti allar götur síðan,“ sagði Einar. Ekki er ljóst hvort einhverjum gripum frá búinu hefur verið slátrað nýverið, en bann MAST nær einnig til kjötafurða sem og sölu lífdýra. /HKr. /smh MAST stöðvar á ný dreifingu allra afurða frá Brúarreykjabúinu Dýragarðurinn Slakki í Laugarási í Bláskógabyggð fagnar 20 ára afmæli sínu í sumar. Það voru Helgi Sveinbjörnsson og fjölskylda sem stofnuðu garðinn á sínum tíma og sjá enn um reksturinn. Í garðinum eru um 50 tegundir af dýrum, púttvöllur, veitingasala og góð leikaðstaða fyrir börn svo eitt- hvað sé nefnt. Aðsókn að garðinum hefur verið mjög góð það sem af er sumri en það er þó alltaf mest að gera um verslunarmannahelgina, þá eru að koma um tvö þúsund manns í garðinn. Börn og tengdabörn Helga eru meira og minna tekin við rekstri garðsins. /MHH Dýragarðurinn Slakki í Laugárási 20 ára Íslensk lífrænt vottuð landnámshænsn Íslenski landnámshænsnastofninn er merkilegur hænsnastofn, enda talinn einn sá elsti í heiminum. Á Sólheimum í Grímsnesi voru lífrænt vottaðar landnámshænur á vappi þegar ljósmyndara bar þar að garði á dögunum. Þorvaldur Kjartansson, umsjónarmaður útisvæðanna á Sólheimum, segir að nú séu um 70 varphænur á staðnum og fjórir hanar. Hænsnabúið var lífrænt vottað árið 2000 og er hið eina á Íslandi sem hefur slíka vottun og eggin þau einu með slíka vottun sem reglulega eru seld á markaði. Um 40 egg koma frá búinu daglega og þau sem ekki eru nýtt til matargerðar í þorpinu sjálfu eru seld í versluninni Völu á Sólheimum og stöku sinnum í Frú Laugu í Reykjavík. Að sögn Þorvaldar er lífrænt vottað bygg frá Vallanesi uppistaðan í fóðri hænsnanna. Mynd / smh Silfurtún á Flúðum: 10 tonn af íslenskum jarðarberjum Eiríkur Ágústsson og fjölskylda í Silfurtúni á Flúðum reikna með að senda frá sér um 10 tonn af nýjum íslenskum jarðarberjum á markað í sumar. Þau rækta berin í nokkrum gróðurhúsum á fjögur þúsund fermetrum. „Uppskeran lofar mjög góðu, berin eru stór og falleg, svo ekki sé minnst á bragðið. Veðráttan hefur verið ræktuninni hagstæð það sem af er sumri, milt og gott veður, ekki of mikil sól, það skiptir máli,“ sagði Eiríkur. Hann er með tólf starfsmenn í vinnu en það þarf að handtína hvert einasta jarðarber í stöðinni, flokka þau og setja í öskjur. /MHH Eiríkur Ágústsson í einu af gróðurhúsunum þar sem allt er fullt af fallegum íslenskum jarðarberjum. Myndir / MHH Tengdadóttirin í Silfurtúni, Svava öskjurnar áður en þær fara í sölu. Fólk er velkomið heim að Silfurtúni að kaupa jarðarber. Eiríkur nær tveimur uppskerum af Egill Óli Helgason með tvo Aragauka í Slakka, sem vekja alltaf jafn mikla þeim og spjalla við þá. Myndir / MHH Mjög gaman er að koma í Slakka og þar er tekið vel á móti gestum.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.