Bændablaðið - 04.07.2013, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júlí 2013
Hestamannafélagið Faxi 80 ára á þessu ári:
Heldur Íslandsmót fullorðinna
í hestaíþróttum í Borgarnesi
– fer fram á nýuppbyggðu félagssvæði Skugga og stendur frá 11. til 14. júlí
Íslandsmót fullorðinna í
hestaíþróttum fer fram í
Borgarnesi dagana 11.-14. júlí
og er það þrítugasta og sjötta í
röðinni. Frítt verður inn á mótið
og getur þar að líta glæsta gæðinga
ásamt knöpum sínum. A-úrslit
munu fara fram á sunnudegi og
verða þau sjónvörpuð beint á RÚV.
Undirbúningur mótsins er í fullum
gangi og gengur vel. Áhersla verður
lögð á að hafa létta og skemmtilega
stemningu yfir mótinu. Þétt dagskrá
mun vera á keppnisvellinum og
munu veitingar verða í boði í
félagsheimili Skugga sem er vel
staðsett hvað útsýni varðar yfir
keppnisvöllinn.
Mótið verður haldið á Vindási,
eiginlegu félagssvæði Skugga í
Borgarnesi, en Skuggi hefur byggt
þar upp myndarlega aðstöðu á
undanförnum árum. Aukinn kraftur
var lagður í uppbygginguna nú í
vor og við allan frágang svæðisins.
Reiðhöllin Faxaborg er eitt af
mannvirkjunum sem þar er að
finna en félag um þá byggingu
var stofnað af Skugga, Faxa,
Hrossaræktarsambandi Vesturlands
og Borgarbyggð árið 2006. Lokið
var við að reisa bygginguna 2008
en lokið við frágang lóðar og húss
árið 2009. Húsið var svo vígt 2010
og fékk nafnið Faxaborg.
Þó að mótið sé í raun haldið
á félagssvæði Skugga er það
Hestamannafélagið Faxi sem
heldur það í þetta sinn. Stjórn
félagsins ákvað að taka að sér að
halda Íslandsmót í hestaíþróttum
2013 í tilefni af því að félagið á 80
ára afmæli á þessu ári. Íslandsmót
í hestaíþróttum var síðast haldið í
Borgarnesi árið 1995.
Hestamannafélagið Faxi á sér
langa sögu að baki, en það var
stofnað árið 1933. Árið 1941
reið stjórn Faxa, ásamt fleirum,
á Þingvelli þar sem lagður var
grunnur að stofnun Landssambands
hestamanna og sat félagsmaður
í Faxa í undirbúningsnefnd fyrir
stofnunina og seinna í stjórn
sambandsins. Faxi státar því af
því að hafa verið stofnfélag í
Landssambandi hestamanna.
Það má geta þess að það er ekki
einungis Faxi sem stendur að mótinu
heldur koma önnur hestamannafélög
að undirbúningi og vinnu við mótið,
þar á meðal félagsmenn Skugga.
Framkvæmdarnefnd hefur komið
í loftið heimasíðu fyrir mótið og er
slóðin www.islandsmotlh.is.
Á síðunni munu vera settar inn
fréttir og upplýsingar af stöðu mála
nú þegar nær dregur sem og á mótinu
sjálfu.
Faxi hefur ávallt verið framsækið félag og hélt m.a. kappreiðar á sínu fyrsta starfsári 1933. Gamla félagssvæði Faxa
var á bökkum Hvítár og var það svæði kallað Faxaborg. Myndir / úr safni Einars Ingimundarsonar
Hið glæsilega mótssvæði á Faxaborg var úrelt á síðasta áratug 20. aldar.
Hafa nú hestamannafélögin Faxi og Skuggi einbeitt sér að uppbyggingu að
sameiginlegu svæði í Borgarnesi þar sem sameiginleg reiðhöll var reist á
árunum 2007 til 2009 og hlaut nafnið Faxaborg.
Mótssvæðið að Vindási.
Mót í Faxaborg, gamla félagssvæði Faxa, var á bökkum Hvítár.
Faxaborg var glæsilegt mótssvæði á sínum tíma þar sem haldin voru félags-
mót, fjórðungsmót og landsþing LH auk Íslandsmóts í hestaíþróttum.
Listsýning í Hallormsstaðaskógi:
Óskatré framundan
Listsýningin „Óskatré fram-
undan“ hefur verið opnuð í
trjásafninu í Hallormsstaðaskógi.
Fjöl menni var við opnun sýningar-
innar, sem fram fór um miðjan
síðasta mánuði í blíðskapar veðri.
Þetta er í sjöunda sinn sem
listsýning er haldin í trjásafninu í
Hallormsstaðaskógi, en í skóginum
hefur fjöldi listamanna sýnt verk
sín. Um hefur verið að ræða bæði
íslenska og erlenda listamenn sem
allir hafa verið áberandi á vettvangi
samtímalistar undanfarin ár og
áratugi, að því er fram kemur í vef
Skógræktar ríksins.
Listamennirnir sjö sem eiga verk á
sýningunni eiga það sameiginlegt að
vera allir uppaldir á Austurlandi eða
búsettir þar nú um stundir, en þeir eru
Helgi Örn Pétursson, Hjálmar Kakali
Baldursson, Íris Lind Sævarsdóttir,
Ólöf Björk Bragadóttir (Lóa), Sylvía
Dögg Halldórsdóttir, Þór Vigfússon
og Þórunn Eymundardóttir.
Sýningin er gestum skógarins
opin til 1. október næstkomandi,
aðgangur er ókeypis og sýningin er
afskaplega fjölskylduvæn. Ekki er
nóg með að í sýningarsalnum megi
bæði hlaupa og hoppa, heldur má
einnig klifra og leika sér í öllum
listaverkunum.
Skógrækt ríkisins stendur að
sýningunni en Menningarráð
Austurlands og Héraðsprent styrkja
sýninguna. Sýningarstjóri er Íris
Lind Sævarsdóttir.
Sveitamarkaðurinn
í Eyjafjarðarsveit
Sumardagur á sveitamarkaði í
Eyjafjarðarsveit hefur nú göngu
sína áttunda sumarið.
Markaðurinn er eins og áður á
blómum prýddu torgi Gömlu garð-
yrkjustöðvarinnar við Jólagarðinn.
Óhætt er að segja að á markaðinum
sé fjölbreyttur varningur í boði. Má
þar nefna brodd, brauð og kökur
af ýmsu tagi, sultur og saftir svo
eitthvað sé nefnt. Einnig alls konar
handverk, svo sem prjónavörur,
þæfða ull, vörur úr mokkaskinni,
dúkkuföt, skartgripi og ótalmargt
annað.
Notalegt er að setjast niður og
gæða sér á nýbökuðum vöfflum með
rabarbarasultu beint úr pottinum og
rjúkandi kaffi.
Seljendur eru flestir heimamenn
og úr nágrannasveitum eða
hagleiksfólk sem á leið um og
staldrar við með vöru sína. Þetta
skapar skemmtilega fjölbreytni sem
markaður inn er þekktur fyrir.
Samstarfshópurinn Fimmgangur
heldur utan um sveitamarkaðinn
og leggur mikið upp úr því að
varningurinn sem boðinn er sé
heimaunninn eða falli vel að
umhverfinu og sveitalífinu.
Fyrsti markaður sumarsins
verður 14. júlí og svo alla sunnu-
daga í sumar til og með 18. ágúst.
Sveitamarkaðurinn er opinn frá kl.
11 til 17. /MÞÞ
Myndir / MÞÞ