Bændablaðið - 04.07.2013, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júlí 2013
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Grilltíminn er í hámarki og víða
má sjá reyk leggja úr húsagörðum.
Nokkur grundvallaratriði er gott
að hafa á hreinu áður en hitnar í
kolunum.
10 reglur grillarans
1. Verið vel undirbúin og vinnið ykkur í
haginn. T.d. er upplagt að búa til sósur daginn
áður og forsjóða kartöflur áður en þær eru settar
á grillið.
2. Athugið að eiga nóg af gasi og kolum
áður en matreiðslan hefst.
3. Hafið grillgrindina hreina. Burstið hana
vel fyrir grillun. Það er ekki gaman að borða
leifarnar frá síðustu veislu!
4. Munið að pensla grindina með olíu. Gott
er að nota rósmaríngrein því hún brennur síður
við en nælonpensill. Það má líka nudda smá
beikoni á grindina því þá kemur gott bragð og
grillkjötið festist síður við.
5. Forhitið grillið hvort sem um kola- eða
gasgrill er að ræða. Hitinn þarf að vera réttur
þegar kjöt er sett á, annars eru meiri líkur á að
allt brenni við eða soðni á grillinu.
6. Notið tangir eða spaða í stað kjöt-
gaffals. Ekki er gott að stinga í kjötið því þá
lekur safinn á kolin eða niður á brennarana.
7. Penslið kryddlegi á í lokin svo kjötið
nái að grillast áður en kryddlögurinn brennur.
8. Stórum steikum (kjúklingi) þarf að hlífa
við eldinum 2/3 af eldunartímanum og svo
brúna í endann. Gott er að nota álbakka eða
álpappír. En munið að þið eruð að grilla en
ekki sjóða. Því er mikilvægt að brúna kjötið í
enda grilltímans.
9. Passið að brenna ekki matinn. Þetta
er ekki rétti tíminn til að fara í símann eða
blanda kokkteila!
10. Munið að hvíla kjötið eftir grillun.
Kjötið verður safaríkara ef það fær að jafna
sig í nokkrar mínútur.
Grillaðar BBQ-
svínahryggssneiðar
› 600 g svínahryggssneiðar
› 1 stk. laukur, skrældur og gróft
skorinn
› 2 stk. gulrætur, skrældar og gróft
skornar niður
› 3 stk. lárviðarlauf
› 3 msk. gróft sinnep
› 3 msk. hunang
› 2 msk. tómatsósa
› 2 msk. púðursykur
Aðferð:
Blandið kryddlöginn saman og látið
svínahryggssneiðarnar liggja í honum
í 30 mínútur. Grillið við meðalhita og
penslið með kryddleginum í lokin.
Grillið laukinn og gulræturnar í
álpappír með örlítilli smjörklípu.
Berið fram með kartöflum, krydd-
uðum með hvannarfræum. Grillaðir
sveppir með fyllingu og kóríander eru
kjörið meðlæti ásamt sósu úr sýrðum
rjóma.
Sýrður rjómi með graslauk
› 1 msk. sýrður rjómi
› 1 msk. ólívuolía
› ½ tsk. dijon sinnep
› ½ tsk. pipar
› börkur af 1 sítrónu
› 2 msk. saxaður graslaukur
› Öllu blandað vel saman og borið fram
með graslauksblómi til skrauts.
Fylltir sveppir
› 8 sveppir
› 4 msk. fetaostur í olíu
› 1 hvítlauksrif
› salt og pipar
Brjótið stilkinn af sveppnum og saxið
ásamt hvítlauk og fetaosti. Setjið ofan
í hattinn og grillið þar til sveppurinn
er stökkur og osturinn bráðnaður.
Gott er að setja ferska kryddjurt úr
garðinum yfir, t.d. kóríander. Saltið
og piprið eftir smekk.
Að grilla er góð skemmtun
MATARKRÓKURINN BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Sigurjón Hjaltason og Guðríður
Júlíusdóttir hófu búskap í
Raftholti 1993, með stofnun
félagsbús í samvinnu við foreldra
Sigurjóns, Hjalta Sigurjónsson og
Jónu Heiðbjörtu Valdimarsdóttur.
Um áramótin 2011-2012 tóku
Sigurjón og Guðríður alfarið við
rekstrinum en Hjalti og Jóna vinna
eftir sem áður að búinu. Hermann
Sigurjónsson býr einnig á jörðinni
með meirihlutann af fénu. Hjalti
Sigurðsson, systursonur Sigurjóns,
er til heimilis hjá Hjalta og Jónu,
en hann er nemi við FSu og vinnur
við búskapinn með námi. Sonur
Guðríðar og stjúpsonur Sigurjóns,
Einir Freyr Helgason, er netforritari
og er hann fluttur úr foreldrahúsum.
Dóttir þeirra hjóna, Helga Sunna
Sigurjónsdóttir vinnur einnig við
búskapinn samhliða námi.
Býli? Raftholt.
Staðsett í sveit? Í Holtum í
Rangárþingi ytra.
Ábúendur? Sigurjón Hjaltason,
Guðríður Júlíusdóttir.
Stærð jarðar? Um 400 ha.
Gerð bús? Blandað bú.
Fjöldi búfjár og tegundir? Um
300 vetrarfóðraðar kindur, 18
hross og um 80 nautgripir, þar af
um 35 kýr ásamt gæludýrum.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Mjaltirnar alltaf á sínum stað,
önnur störf árstíðabundin.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilega fjölbreytt
starf.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Vonumst eftir breyttri
vinnuaðstöðu en svipaðri bústærð.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Við höfum
skoðun á öllu sem snertir bændur.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni? Vel
ef við pössum upp á hreinleika og
sérstöðu afurðanna.
Hvar teljið þið helstu tækifærin
í útflutningi íslenskra búvara?
Tækifærin felast í sérstöðu búfjár
og afurða.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, smjör og egg.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Lambapottréttur að
hætti húsmóðurinnar og svo má
ekki gleyma vel kæstu skötunni
og heimagerða slátrinu.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar krakkarnir
glímdu við að temja kálfana fyrir
kúasýningar var oft spaugilegt að
fylgjast með. Og nú þegar okkur
tókst að spekja jaðrakan á hreiðri.
Raftholt
Hjónin Guðríður og Sigurjón og og
dóttir þeirra Helga Sunna. Með þeim
er frændinn Hjalti Sigurðsson.
Helga Sunna með hinn spaka jaðrakan.