Bændablaðið - 05.09.2013, Page 1
17. tölublað 2013 Fimmtudagur 5. september Blað nr. 402 19. árg. Upplag 30.000
Kúabúið Brúarreykir í Borgarfirði
hefur fengið leyfi til að senda frá sér
afurðir, mjólk og kjöt, á nýjan leik.
Leyfið er hins vegar skilyrt, þar eð
taka þarf sýni úr öllum afurðum
áður en þær blandast afurðum frá
öðrum framleiðendum.
Þetta þýðir að taka á sýni úr allri
mjólk áður en hún blandast við mjólk
frá öðrum bæjum. Þá er sláturleyfis-
höfum skylt að hafa samband við
Matvæla stofnun (MAST) þegar
slátur gripir frá Brúar reykjum koma
til þeirra og skal eftirlits dýralæknir
með sýnatöku ganga úr skugga um
að afurðir séu hæfar til mann eldis.
Ekki búið að útfæra tilhögun
sýnatöku
Flora-Josephine H. Liste er
héraðsdýralæknir Vesturumdæmis.
Hún segir að MAST hafi ekki útfært
tilhögun sýnatöku á mjólk.
„Við sendum MS tilkynningu um
að taka þurfi sýni úr þeirri mjólk
sem tekin verður á Brúarreykjum en
það hefur ekki verið ákveðið hver
skuli sjá um þá sýnatöku.
Okkar mat var að það væri
hagkvæmast að MS sæi um
sýnatökuna. Það er hægt að gera þetta
með tveimur leiðum. Annars vegar
með því að taka sýni úr mjólkinni á
bænum áður en hún er tekin þaðan.
Slík sýnataka tekur á bilinu 10 til
15 mínútur. Hins vegar væri hægt
að setja mjólk frá Brúarreykjum í
eitt hólf í mjólkurbílnum eða senda
sérbíl eftir henni.
Það hefur ekki verið útilokað
að starfsmenn MAST sinni þessari
sýnatöku en slíkt gæti þó orðið erfitt
í framkvæmd.“
Kostnaður sem af sýnatöku af
þessu tagi kann að hljótast yrði
bóndinn á Brúarreykjum að bera.
Matvælastofnun hefur ekki
áður veitt sambærilegt leyfi, í það
minnsta hvað mjólk varðar. Ekki
eru dagsett endurskoðunarákvæði á
leyfi Brúarreykja til að senda frá sér
afurðir heldur verður málið metið
eftir því sem á líður.
MS tekur ekki við mjólkinni
undir skilyrtu framleiðsluleyfi
Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkur-
samsölunnar (MS) segir að þrátt
fyrir þetta hafi MS ekki tekið við
mjólk frá Brúarreykjum og það
verði ekki gert fyrr en búið sé komið
með leyfi til að senda frá sér mjólk
án skilyrða.
„MS hefur tekið þá afstöðu að
kaupa ekki mjólk af framleiðendum
sem framleidd er með skilyrðum
af þessu tagi. Það er augljóst að
Matvælastofnun treystir ekki
umræddum framleiðenda og við
höfum því afþakkað að versla við
viðkomandi aðila.“
Eru að verja neytendur
„Við höfum hins vegar gert MAST
og viðkomandi bónda grein fyrir
því hvað til þurfi að koma til að
Mjólkursamsalan endurskoði þessa
afstöðu. Við þessi skilyrði verður
hins vegar ekki búið af hálfu MS,
ekki síst vegna þess hversu alvarlegt
það er að uppi séu efasemdir um
lyfjanotkun.
Mjólk er sérlega viðkvæm
dagvara og við erum með þessu að
verja neytendur okkar, sem og stöðu
annarra framleiðenda sem eiga þetta
fyrirtæki. Þeir eiga allt sitt undir
því að framleiðsluvörur MS njóti
fyllsta trausts á markaði. Þeirri stöðu
væri ógnað ef við myndum taka við
mjólk með þessum skilyrðum.“
/fr
Brúarreykir fá skilyrt framleiðsluleyfi
– MS hyggst ekki taka við mjólkinni
Helga Magnúsdóttir í Bryðjuholti, skammt fyrir ofan Flúðir í Hrunamannahreppi, er ein fjögurra mikilla hagleikssystkina sem sjaldnast fellur verk úr hendi. Auk þessa að tálga, skera út, sauma
og mála er hún mikil ræktunarmanneskja. Hér er hún í litla gróðurhúsinu sínu, þar sem hún ræktar sítrónur, vínber, rósir og margvíslegt annað með góðum árangri. Mynd/HKr.
– Sjá umfjöllun um Helgu og systkini hennar á bls. 24 og 25
Bændur hafa alla tíð verið hrifnir
af krossbandainniskóm
22 26-27
Kvartar ekki yfir einsemdinni en segist
ekki ætla að verða ellidauð í dalnum
Bærinn okkar
Háholt
42