Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 36

Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. september 2013 Vinnslu kynbótamats í sauðfjárrækt lauk nú í byrjun ágúst. Sú breyting var gerð á vinnslunni frá fyrri árum, að uppfæra kynbótamat fyrir frjósemi byggt á gögnum frá vorinu 2013. Tekin voru með öll gögn frá bændum sem höfðu skilað inn vorgögnum í byrjun ágúst. Af þeim sökum var beðið með að senda út haustbækur svo nýjustu ætternisupplýsingar um kynbótamat lambanna kæmu fram í bókunum. Vonandi eru flestir sauðfjár bændur búnir að fá bækur í hendur núna en vegna tafa í prentsmiðju dróst að senda bækurnar út þar til í lok ágúst. RML biðst velvirðingar á þeim töfum sem urðu og mun kappkosta að slíkt endurtaki sig ekki að ári. Almennt um kynbótamat Kynbótamatið er unnið annars vegar fyrir afurðaeiginleika ánna (frjósemi og mjólkurlagni) og kjötgæða- eiginleika (fitu og gerð) hins vegar. Á grunni þessa kynbótamats er reiknað ætternismat fyrir öll lömb sem birtist í haustbókunum. Við val ásetningslamba geta þessar upplýsingar komið að góðum notum. Í hverri fjárbók er reiknað meðal ætternismat hvers eiginleika hjá hjörðinni og prentað neðst á hverja blaðsíðu. Gripir sem hafa hærra ætternismat en meðaltal bókarinnar eru þannig vænlegri til kynbóta en þeir sem hafa ætternismat lægra en meðaltalið. Það er svo hvers og eins bónda að meta hvaða áherslur hann vill leggja á einstaka eiginleika á sínu búi. Kynbótamat sæðingastöðvahrúta Í meðfylgjandi töflu er að finna kynbótamat þeirra sæðingastöðva- hrúta sem voru í notkun síðasta vetur og eiga lömb í tuga og hundraða tali um allt land nú í haust. Heildar einkunn er reiknuð með sama hætti hér og í hrútaskrá síðasta árs, þ.e. jafnt vægi á kynbótamat fyrir kjötgæði, frjósemi og mjólkurlagni. Almennt tekur kynbótamat sæðingastöðvahrúta talsverðum breytingum eftir eitt ár í notkun á sæðingastöð enda yfirleitt gríðarlega mikið magn nýrra upplýsinga sem bætist við eftir fyrsta ár í notkun. Á heimasíðu RML má finna ítarlega samantekt um kynbótamatið þar sem gefin er lýsing á hverjum hrút fyrir sig og það því ekki rakið nánar hér í þessari grein. Bændur eru hvattir til að kynna sér þessar upplýsingar og þá sérstaklega hvort miklar breytingar hafi orðið á kynbótamati þeirra hrúta sem þeir notuðu síðasta vetur. Vinnsla kynbótamats á komandi hausti Á aðalfundi LS fyrr á þessu ári var samþykkt ályktun þess efnis að bændur ættu möguleika á að fá uppreiknað kynbótamat fyrir fengitíð ef haustgögnum yrði skilað tímanlega. RML ætlar að framkvæma aukakeyrslu á kynbótamati um mánaðamótin nóvember/desember til að koma til móts við þessa beiðni. Þeir sem skila bókum inn til skráningar verða þá að skila þeim fyrir 15. nóvember. Líkt og með vorbækur verður veittur 25% afsláttur af skráningargjöldum á bókum sem koma fyrir þennan tíma en þeir sem eru í netskilum hafa frest til 30. nóvember svo að tryggt sé að gögnin nái inn í útreikning kynbótamats. Rétt er að ítreka að dagsetningar þessar hafa ekkert með þátttöku í gæðastýringu að gera en einhvers misskilnings gætti með það hjá skýrsluhöldurum fyrr í sumar varðandi skil vorgagna. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Kynbótamat í sauðfjárrækt Hyrndir hrútar: Nafn Númer Fita Gerð Kjötgæði Mjólkurlagni Frjósemi Heild Púki 06-807 121 106 115 106 113 111 Stáli 06-831 136 115 128 108 103 113 Grábotni 06-833 123 125 124 110 113 116 Prófastur 06-864 119 107 114 107 105 109 Jökull 07-844 120 129 124 98 102 108 Blakkur 07-865 119 114 117 110 109 112 Kvistur 07-866 117 117 117 102 106 108 Snær 07-867 137 111 127 108 99 111 Knapi 07-868 147 116 135 105 114 118 Borði 08-838 115 134 123 105 92 107 Kjarkur 08-840 121 110 117 116 112 115 Guffi 08-869 124 120 122 103 110 112 Hergill 08-870 110 132 119 101 101 107 Þróttur 08-871 121 130 125 100 103 109 Þristur 08-872 118 104 112 105 116 111 Tenór 08-873 140 109 128 103 116 116 Seiður 09-874 131 110 123 101 99 108 Ás 09-877 119 129 123 107 96 109 Bassi 09-878 120 128 123 95 113 110 Gaur 09-879 130 120 126 118 107 117 Gumi 09-880 117 100 110 118 118 115 Rafall 09-881 115 117 116 105 108 110 Snævar 10-875 115 113 114 105 100 106 Stakkur 10-883 144 115 132 111 107 117 Grámann 10-884 121 121 121 111 104 112 Soffi 10-885 117 112 115 105 94 105 Birkir 10-893 124 134 128 110 93 110 Drífandi 11-895 105 125 113 103 115 110 Prúður 11-896 110 135 120 103 112 112 Kollóttir hrútar: Nafn Númer Fita Gerð Kjötgæði Mjólkurlagni Frjósemi Heild Steri 07-855 103 125 112 114 100 109 Brjánn 08-856 119 111 116 96 108 107 Forði 08-858 130 100 118 105 114 112 Ljúfur 08-859 130 100 118 110 107 112 Sigurfari 09-860 116 114 115 101 106 107 Dalur 09-861 142 95 123 110 106 113 Höttur 09-887 110 127 117 101 111 110 Glæsir 09-888 126 121 124 111 104 113 Strengur 09-891 121 114 118 117 101 112 Dolli 09-892 138 99 122 113 135 123 Svali 10-862 121 122 121 104 114 113 Baugur 10-889 137 114 128 105 98 110 Kroppur 10-890 111 136 121 104 100 108 Kynbótamat sæðingastöðvahrúta 2013 Út er kominn geisladiskurinn Fögur er jörðin, þar sem Óskar Guðnason hefur tekist það verk á hendur að semja lög við ljóð skáldkonunnar Kristínar Jónsdóttur frá Hlíð í Lóni. Seinni hluta árs 2009 gaf Félag ljóðaunnenda á Austurlandi út ljóðabókina Bréf til næturinnar, sem var fyrsta heildarútgáfa með ljóðum Kristínar. Sú bók hefur notið óvenjumikilla vinsælda af ljóðabók að vera og hlaut hún einnig lofsamlega gagnrýni. Lagahöfundurinn Óskar er frá Höfn í Hornafirði og dvaldi ungur í sveit í Lóninu. Eftir að hafa lesið um útgáfu bókar Kristínar og síðar bókina sjálfa hóf hann að semja lög við ljóðin og er afraksturinn fimmtán laga platan Fögur er jörðin. Mikið einvalalið kemur að gerð plötunnar ásamt Óskari og má þar nefna að stórsöngkonan Ragnheiður Gröndal syngur á plötunni, sem og leik- og söngkonan þekkta Arnbjörg Hlíf Valsdóttir. Diskinn má fá í ýmsum plötubúðum en einnig má kaupa hann beint hjá Óskari á netfanginu oskargold@hotmail.com eða í síma 663 8603. Fögur er jörðin Styrkir til rannsókna og þróunarverkefna í nautgriparækt Bændasamtök Íslands auglýsa hér með eftir umsóknum um styrki til rannsókna og þróunarverkefna í nautgriparækt samkvæmt verklagsreglum Bændasamtaka Íslands um ráðstöfun fjár til rannsókna og þróunarverkefna í naut- griparækt, sbr. augl. nr. 316/2012. Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar: Tímaáætlun verkefnisins Fjárhagsáætlun verkefnisins. Hvernig verkefnið nýtist nautgriparæktinni. Hvar og hvernig niðurstöður verða kynntar Nánari upplýsingar veitir Guðný Helga Björnsdóttir, for- maður fagráðs í nautgriparækt. bessast@simnet.is Umsóknum skal skilað fyrir 1. október nk. til Bændasam- taka Íslands, Bændahöllinni v/ Hagatorg, 107 Reykjavík, merktum: Umsókn um þróunarfé) Bændasamtök Íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.