Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. september 201310
Fréttir
Sigurgeir Hreinsson, fram-
kvæmda stjóri Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar segir
varðandi heyfeng í Eyjafirði að
nokkuð skiptist í tvö horn, víða
sé uppskera mjög góð og yfir
meðallagi en á öðrum svæðum
sé hún lakari. Það eigi einkum við
um þau svæði sem verst hafi orðið
úti vegna kals á liðnu vori, meðal
annars Hörgárdal og Öxnadal.
„Það virðist sem endurrækt túna
hafi því miður of víða misfarist,“
segir Sigurgeir. Veðurfar
síðastliðið vor var með þeim hætti
að bændur voru margir seint á ferð
varðandi endurrækt og snjór eða
svell voru yfir túnum langt fram
eftir vori.
„Það var því víða sem menn
á verstu kalsvæðunum gátu ekki
byrjað fyrr en um mánaðamót maí
og júní og það er heldur seint.
Júní var síðan mjög hlýr en þurr
og yfirborð í flögum því mjög
þurrt. Það hefur síðan áhrif á að
spretta náði sér ekki á strik,“ segir
Sigurgeir.
Á öðrum svæðum, svo sem í
Eyjafjarðarsveit, sé hins vegar
langvíðast mjög góð uppskera eftir
sumarið.
/MÞÞ
„Það er brjálað að gera í
vatnssölunni enda er verslunin
að selja útlendingum um 1 tonn
af íslensku vatni í hverri viku. Ég
hef aldrei vitað aðra eins sölu á
vatni eins og í sumar,“ sagði Pálmi
Kristjánsson, verslunarstjóri
Kjarvals í Vík í Mýrdal.
Hann segir um 80% viðskiptavina
Kjarvals í Vík vera útlendinga yfir
sumartímann, þeir versli mjög mikið.
„Þeir virðast ekki treysta íslenska
vatninu úr krönum eða lækjum þrátt
fyrir að ég segi þeim að þetta sé
fyrsta flokks vatn og ekkert að óttast,
þeir velja frekar að kaupa vatnið í
flöskum,“ bætti Pálmi við.
Hægt er að kaupa íslenskt vatn
undir merkjum Pure Icelandic, fram-
leitt af Vífilfell, Iceland Spring frá
Ölgerðinni og Icelandic Glacial
frá Jóni Ólafssyni, vatnsbónda á
Hlíðarenda í Ölfusi.
/MHH
Útlendingar treysta ekki íslensku kranavatni:
Kaupa eitt tonn af í vatni í
flöskum í Vík í hverri viku
Pálmi hefur ástæðu til að brosa vegna góðrar vatnssölu í verslun Kjarvals
í Vík í sumar.
Ferðaþjónusta Bænda mun
bjóða upp á sérstaka fagferð
24.–31. október sem er
ekki hvað síst hugsuð fyrir
ferðaþjónustubændur. Um er að
ræða skemmtiferð í Ölpunum með
áhugaverðri blöndu menningar,
ferðaþjónusturýni og smökkun
heimagerðra landbúnaðarafurða.
Farið verður um hið einstæða
hérað Allgäu í Bæjaralandi við
rætur Alpafjalla í syðsta hluta
Þýskalands. Þetta er eitt af vinsælustu
ferðamannasvæðum landsins, en
hér hefur ferðaþjónustan áralanga
reynslu í fjölbreyttri afþreyingu
og möguleikum fyrir ferðamenn
til þess að njóta jafnt hvíldar og
náttúrufegurðar.
Heimsóttir verða skemmtilegir
ferðamannastaði og notið lífsins í
fallegu umhverfi. Auk þess verða
ferðaþjónustubændur heimsóttir sem
margir hverjir eru með heimaslátrun
og vinna sjálfir úr afurðum sínum.
Þar munu ferðalangar geta kynnt sér
úrval vörumerkja þeirra. Þar hefur
hópur bænda héraðsins tekið sig
saman við kaupmenn á svæðinu og
þróað vörumerki sín og markaðssett
á einstaklega skemmtilegan hátt.
Dvalið verður í Kempten, einni
af elstu borgum Þýskalands, sem
er höfuð borg Allgäu. Hótelið er í
miðborginni, sérlega notalegt og
í göngufæri við allt sem hugurinn
girnist. Síðustu tvo dagana verður
dvalið í menningarborginni München
þar sem hjarta Bæjaralands slær.
Fararstjóri verður Inga Ragnarsdóttir.
Ferðaþjónusta bænda:
Áhugaverð bændaferð
til Bæjaralands
Hótel í Nemendagörðum á Hvanneyri næsta sumar
Nemendagarðar á Hvanneyri,
sem eru sjálfseignarstofnun,
hafa gert samning um leigu
á hluta af húsnæði garðanna
yfir sumartímann. Leigutaki er
Kristján Karl Kristjánsson, sem
rekur Ferstikluskálann í Hvalfirði.
Hótelið verður með 24 herbergi
og verður opnað síðari hluta maí
næsta vor og verður opið fram í
miðjan ágúst.
Kristján Karl er byrjaður að
skipuleggja reksturinn og leggur
mikla áherslu á gott samstarf
við heimaaðila, enda er ljóst að
reksturinn mun skapa nokkur störf
á Hvanneyri yfir sumarið. Kristján
Karl hefur ákveðið að boða til fundar
með áhugasömum heimamönnum
í haust.
Hótelið hefur ekki fengið nafn.
Kristján Karl er með netfangið
verkamenn@simnet.is og er opinn
fyrir tillögum hvað það varðar.
Frá undirritun samnings, talið frá vinstri: Þorvaldur T. Jónsson, stjórnarformaður Nemendagarða, Ágúst
Sigurðsson, rektor LbhÍ, og Kristján Karl Kristjánsson framkvæmdastjóri. Mynd / ÁÞ
Búnaðarsamband Eyjafjarðar:
Skiptist í tvö horn
með heyfeng
Heyfengur er misjafn í Eyjafirði, víða mjög góður en endurrækt túna á kalsvæðum hefur sums
staðar misfarist. Mynd / MÞÞ