Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. september 2013 7
Veðrið sem gekk yfir landið fyrir
síðustu helgi hefur varla farið
framhjá neinum og allra síst
bændum sem áttu fé á fjalli. Strax
á sunnudeginum tæpri viku fyrir
óveðrið byrjuðu veðurfræðingar
að vara við slæmri veðurspá. Á
mánudag virtist stefna í að veðrið
yrði svipað og óveðrið sem skall
yfir norðanvert landið 10. septem-
ber 2012 og olli miklum fjárskaða.
Má segja að á öllu norðanverðu
landinu frá austri til vesturs hafi
því verið sett upp áætlun til að
bregðast við og sækja sem mest af
fé áður en veðrið skylli á.
Eins og víðar ákváðu bændur
í Vatnsdal í Húnavallahreppi að
smala eins mikið og hægt væri fyrir
óveður. Það er þó ekkert hlaupið að
því að smala allan afrétt sem tilheyrir
Vatnsdal og heimalönd líka því
nánast allt þurfti að smala þar sem
megnið að sumarhaga Vatnsdælinga
er fyrir ofan 2-300 metra hæðarlínuna
þar sem versta veðrinu var spáð. Á
þriðjudagsmorgun fóru svo tíu menn
af stað aftur til að fínkemba svæðið.
Var þá farið inn undir Langjökul,
á svæði sem heimamenn kalla
Fljótsdrög, með dráttarvélar og kerrur
og sækja það fé sem þar varð eftir.
Sjö daga réttir
Venjulegar göngur hjá Vatns-
dælingum eru þannig að á þriðju-
degi er smalað næst Langjökli
(Fljótsdrög). Á miðvikudegi er
smalað norður fyrir Stórasand, á
fimmtudegi er Grímstunguheiði
kláruð og Haukadalsheiðin er
kláruð á föstudegi á meðan féð af
Grímstunguheiði er dregið út á
Undirfellsrétt. Á laugardegi er féð
sem kom af Haukadalsheiðinni dreg-
ið í sundur. Á sunnudögum eru flestir
bændur með heimalandssmölun og á
mánudögum er Sauðadalur smalaður,
samtals 7 langa vinnudaga.
Óveðursspá riðlaði hefðinni
Í ár var hefðinni gjörsamlega splundr-
að. Fyrsta dag voru nokkrir sendir til
að smala heimalöndin, á meðan voru
fremst á heiðinni að reyna að stugga
við fénu til að koma rennsli á það
til norðurs. Snemma á öðrum degi
var farið fram á Grímstunguheiði
með nánast allan þann mannskap
sem hægt hafði verið að ná saman
til smalamennsku. Tæplega fimm-
tíu smalar röðuðu sér á heiðina og
héldu með féð til norðurs og undir
kvöld var hætt. Á þriðja degi voru
Haukadalsheiði og Grímstunguheiði
kláraðar með aðeins færri mann-
skap og daginn áður og auka mann-
skapurinn smalaði Sauðadal á meðan.
Síðan var réttað á fjórða degi allt sem
smalast hafði dagana á undan.
Luku við að draga allt safnið á
einum degi
Undirfellsrétt er ein af stærstu
réttum landsins. Venjulega er
klárað að draga í í þeirri rétt
á tveim dögum og þá oftast á
milli 15 og 18 þúsund fjár. Álíka
margt fé hefur verið hingað til
af hvorri heiði Grímstunguheiði
og Haukagilsheiði. Í rokinu og
rigningunni síðasta föstudag var
klárað að draga allt féð á einum
degi og hefur ekki verið gert áður.
Skólabörn fengu frí til að smala
Sem dæmi um samstöðu og samhug
í að smalamennskan gengi sem best
gaf skólastjórinn í Húnavallaskóla,
Sigríður Aadnegaard, öllum
skólabörnum frí. Hjálpsamir vinir
og kunningjar komu alls staðar að
til að hjálpa til þegar kallið kom
um að aðstoða.
Yngsti gangnamaðurinn á
Haukadalsheiði var Lara Margrét
Jónsdóttir frá Hofi að fara í sínar
fyrstu heilsdagsgöngur á hesti, en
hún verður 12 ára í haust.
Ekki dæmi um göngur svo
snemma
Elstu menn minnast þess ekki að
smalamennsku í Vatnsdal hafi áður
verið flýtt fram í ágúst en oft hafi
komið vond veður og nokkrum
sinnum hafi smalamennska dreg-
ist vegna þoku. Eftirminnilegasta
veður elstu manna í Vatnsdal er
óveður sem gekk yfir gangnamenn
í göngum 1934 en þá varð einn
gangnamaður úti.
/HLJ
vissan hátt má
nefna þennan þátt
tímamótaþátt. Að því
leyti að yrkisefnið er
aðeins eitt afmarkað fyrirbæri,
því nú er þátturinn alfarið
helgaður afmælisdegi Einars
Kolbeinssonar í Bólstaðarhlíð,
sem í dag, 5. september 2013,
fagnar 40 árum.
Í röðum hagyrðinga er Einar
oftast bara nefndur „ungskáldið“,
og fer því vel að þeir hagyrðingar
er hvað oftast hafa setið
hagyrðingamót ásamt Einari fagni
þessum áfanga í þroskasögu hans.
Fyrstur til að heiðra Einar
er Pétur Pétursson, læknir og
fyrrum sýslungi hans:
Orðstír glæstan enn þú styrkir,
íþrótt skáldsins hylla vil.
Klám og níð þú aldrei yrkir,
enda þótt þig langi til.
Ötull beittu Braga sveðjum,
en búðu þínum grönnum frið.
Á merkisdegi kærum kveðjum,
kvæðajöfur, taktu við!
Einar stýrir byggingarfyrirtækinu
Stíganda á Blönduósi og byggir
landsmönnum hús. Meðal
viðskiptamanna hans erum við
hjón hér í Kotabyggð. Hjálmar
Freysteinsson læknir á Akureyri
þekkir vel til athafna Einars:
Ekkert milli mála fer
á mannfundum og þingum,
ævinlega Einar ber
af öðrum Húnvetningum.
Víst er Einar verkafús,
vaknar um óttubilið.
Byggir yfir ýmsa hús
sem eiga það varla skilið.
Og Sigrún Haraldsdóttir, fyrrum
granni Einars, færir honum
huggunarblandin varnaðarorð:
Gráttu ekki guggnaður
þótt gaman fari að kárna.
Vertu hress og vonglaður,
– en vara þig á Árna.
Björn Ingólfsson á Grenivík færir
afmælisbarninu þessa kveðju:
Kæri vinur, vertu glaður,
veröldin þó bylti sér,
og ekki sértu ungur maður
eftir 5. september.
Upp frá þessu á þig, drengur,
ýmsar leggjast hrellingar.
Ungfrúr þrá þig ekki lengur,
aðeins rosknar kellingar.
Kveðja Reynis Hjartarsonar
kennara á Akureyri er í styttra lagi,
en kveðja þó:
Ég býst að verði á bögum töf,
og bregst þar öllum vonum.
Mér hlotnaðist sú góða gjöf
að gleyma alveg honum.
(Afmælisdeginum held ég)
Og síðastur til að fagna afmæli með
Einari er Friðrik Steingrímsson í
Mývatnssveit.
Ellin grimm þér Einar minn
ekkert virðist þoka,
aðrir bera aldur sinn
eins og tað í poka.
Ekki hár er aldur þinn,
af því máttu guma,
að stutt er síðan strákurinn
var státin sæðisfruma.
Einar minn! Einlægar afmælis-
óskir fylgja héðan úr Kotabyggð.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
Líf og starf
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Á
„Óveðurssmölun“ í Vatnsdal
Gangnamenn á hestum að koma af Haukadalsheiði. Myndir/Hjörtur Leonard Jónsson