Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. september 2013 Fróðleiksbásinn Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur Hér er þráðurinn tekin upp þar sem frá var horfið í síðasta blaði og haldið áfram að fjalla um ættkvíslir barrtrjáa og tegundir innan þeirra sem hafa reynst vel hér á landi eða lofa góðu. Fura (Pinus) Ættkvísl sem telur ríflega 100 teg- undir sem vaxa á öllu norðurhveli, niður með vesturströnd Norður- Ameríku, allt að Panamaskurði og austurströnd Kína, til Malasíu og í Himalaja-fjöllum. Hávaxin tré eða runnar og margar tegundir með djúpa stólparót og þola því illa flutning eftir að þær hafa komið sér fyrir. Langlífar plöntur og er P. longaeva, sem vex í Colorado í Norður-Ameríku, líklega með elstu lífverum jarðar tæplega 5.000 ára. Margar furur dafna vel hér á landi, bæði sem skógar- og garðplöntur. Furur eru að mestu lausar við sjúkdóma og meindýr. Furulús leggst eingöngu á tveggja nála furur og lýsir sér sem litlir hvítir vaxhnoðrar á berkinum. Greinaþurrksveppur veldur því að barrið verður brúnt og barrfestan visnar. Bergfura (P. uncinata). Ýmsir telja hana undirtegund fjallafuru og að hún eigi að vera P. mugo uncinata. Upprunnin í fjöllum Pýreneaskagans í Suðvestur- Evrópu. Einstofna tré sem getur náð 25 metra hæð. Börkurinn grófur og gráleitur. Krónan breið og ávöl. Greinarnar langar, sverar og uppsveigðar á endunum. Tveggja nála. Barrið dökk- eða grágrænt, breitt, þéttstætt og fínsagtennt. Könglarnir dökkbrúnir og glansandi, egg- eða keilulaga. Myndar frjó fræ hérlendis. Harðgert tré sem dafnar í margs konar jarðvegi en kýs hann sendinn og meðalþurran. Vindþolin og sólelsk tegund. Broddfura (P. aristata). Heimkynni í Norður-Ameríku, hátt til fjalla í Colorado, Nýju-Mexíkó og Arizona. Einstofna tré sem nær um 25 metra hæð. Börkurinn rauðbrúnn og grófur. Greinarnar þéttstæðar með fáum hliðargreinum og uppsveigðar. Fimm nála. Barrið þétt, hart við- komu og með áberandi hvítum har- pix-ögnum. Könglar bláleitir, stilk- lausir og egglaga. Sólelsk en þolir hálfskugga. Þrífst best í sendnum og sæmilega frjósömum jarðvegi. Nokkuð saltþolin og brennur sjaldan í vorsól. Fjallafura (P. mugo). Vex villt hátt til fjalla í Mið- og Suður-Evrópu. Breytileg í vextinum en yfirleitt margstofna runni sem getur orðið 6 metrar á hæð og 300 ára. Stofninn dökkgrár eða grábrúnn. Greinarnar hlykkjóttar og uppsveigðar. Tveggja nála. Barrið sveigt eða snúið, krans- stætt, stinnt og oddmjótt. Könglar egglaga. Gerir ekki miklar kröfur til jarðvegs en dafnar best í þurrum og frjósömum jarðvegi. Dvergfura (P. mugo var pumilio). Jarðlægt afbrigði. Til að halda dvergfuru þéttri og fallegri er gott að klípa helminginn af ársprotanum eftir að hann er fullsprottinn en áður er barrið fer að vaxa út frá honum. Klettafura (P. albicaulis). Upprunnin á vesturströnd Norður- Ameríku og nær þar allt að 30 metra hæð og yfir 1.000 ára aldri. Oft margstofna með brúnan börk sem flagnar með aldrinum. Greinar útstæðar. Fimm nála. Barrið dökk- grænt. Könglar egg- eða hnattlaga. Þrífst ágætlega í rýrum og grýttum jarðvegi. Fræ klettafuru eru stór, án vængja og sæt á bragðið. Lindifura (P. sibirica). Mikil útbreiðsla frá Úralfjöllum til Síberíu, Lapplands og Norður- Asíu. Nær 40 metra hæð og 500 ára aldri. Stofninn mjúkur og grá- grænn í fyrstu en verður gráleitur og langsprunginn með aldrinum. Beinvaxinn með keilu- eða súlu- laga krónu. Greinarnar kransstæðar, láréttar, stuttar og með margar smá- greinar. Fimm nála. Barrið þrístrent, dökkgrænt á einni hlið en ljóst á tveimur, stinnt og fíntennt. Myndar ekki köngla fyrr en á 60. til 80. aldursári og það tekur þá þrjú ár að þroskast. Hefur myndað frjó fræ hér. Fallegt tré í stórum garði þar sem það fær nóg pláss. Sólelskt en þrífst ágætlega í hálfskugga. Þrífst best í rakaheldum og frjósömum jarðvegi. Sembrafura (P. cembra). Evrópsk tegund sem vex villt í Alpa- og Karpata-fjöllum. Krækluvaxinn smárunni við gróðurmörk en getur náð 25 metra hæð. Börkurinn grá- leitur og sléttur í fyrstu en verður grábrúnn og hrjúfur með aldrinum. Greinar gulbrúnar en dökkna. Fimm nála. Barrið beint og stinnt og fellur af á 3. til 6. ári. Könglar egglaga. Fræin stór og vel æt. Skugga- og vindþolin. Skógarfura (P. sylvestris). Tegund með mikla útbreiðslu um stóran hluta Evrasíu. Getur orðið 40 metra há og 600 ára. Vöxturinn marg- breytilegur, stofninn yfirleitt bein- vaxinn og grannur en getur einnig verið kræklóttur og boginn. Krónan aflöng og hvelfd en breytileg eftir vaxtarstað. Börkurinn grárauður eða rauðbrúnn. Greinarnar krans- stæðar í fyrstu en síðan óreglulegar. Tveggja nála. Barrið ljós- eða grá- grænt, sagtennt og hvassydd. Gulnar yfir veturinn og endist á trjánum í 2 til 3 ár. Könglarnir stakir eða 2 til 3 saman hangandi á stuttum stilkum. Gulbrúnir eða grámattir og egg- eða keilulaga. Harðgerð tegund sem dafnar vel, hvort sem er í djúpum og lausum eða grunnum og sendnum jarðvegi. Sólelsk og þrífst illa í skugga. Fundist hafa steingervingar í Breiðavíkurlögunum á Tjörnesi sem sýna að skógarfura hefur vaxið á Íslandi á seinni hluta tertíer-tíma- bilsins. Stafafura (P. contorta). Heimkynni í Norður-Ameríku þar sem plantan nær 40 metra hæð og 600 ára aldri. Uppmjó með keilulaga krónu. Börkurinn rauð- eða gulbrúnn. Tveggja nála. Barrið dökk- eða gul- grænt, útstætt, þétt, undið og hvasst í oddinn. Endist á trénu í 2 til 5 ár. Könglar egglaga og eru á trénu í 2 til 3 ár. Harðgerð og nægjusöm tegund sem hefur reynst vel hér. Þrífst best í frjósömum jarðvegi og sól en þolir hálfskugga. Vinsælt og barrheldið jólatré. Sveigfura (P. flexilis). Upprunnin í fjalllendi í vestanverðri Norður- Ameríku. Nær 25 metra hæð og mörg hundruð ára aldri. Stofninn beinn eða kræklóttur eftir vaxtar- skilyrðum. Krónan keilulaga í fyrstu en flatvaxin með tímanum. Börkurinn sléttur og ljósgrár í fyrstu en verður síðar svarbrúnn og hrjúf- ur. Greinarnar stuttar og sveigjan- legar, uppbrettar til endanna. Fimm nála. Barrið dökkgrænt, þétt og hvassydd, beint eða eilítið sveigt. Könglar langir og breiðir, egglaga, grænir í fyrstu eða verða brúnir við þroska. Nægjusöm og þolir hálf- skugga en þrífst best í sól, rökum og leirblendnum jarðvegi. Vind- og þokkalega sandþolin. Barrið gefur græna og rauða tóna sé það notað til litunar. Fræin þykja bragðgóð og nýttu indíánar það í súpur og til brauðgerðar. Lerki (Larix) Ættkvísl með 10 tegundum á norðurhveli, í Síberíu, til fjalla í norðvestan- og norðaustan- verðri Norður-Ameríku, Alpa- og Himalajafjöllum. Stofninn grannur og greinarnar óreglulegar. Barrið mjúkt og ólíkt flestum barrviðum fellir lerki barrið á haustin. Flestar tegundir eru sólelskar og dafna vel í sendnum jarðvegi en þola illa sjávarloft. Helstu skaðvaldar á lerki eru sveppir. Lerkiáta leggst á leiðsluvef barkarins þannig að greinar eða tré fölna og drepast. Lerkibarrfellir veldur því að endar barrsins visna svo það verður brúnt og fellur af að lokum. Barrviðaráta veldur því að einstakar greinar visna á miðju sumri en í öðrum tilfellum leggst sveppurinn á stofn trésins og drepur þann hluta þess sem er fyrir ofan sýkinguna. Dáríulerki (L. gmelini). Uppruni í austanverðri Síberíu þar sem það nær 35 metra hæð. Stofninn beinn eða kræklóttur. Börkurinn grábrúnn eða grár með rauðum tóni, verður hrjúfur með aldrinum. Barrið ljós- grænt en gulnar á haustin. Könglar egglaga. Hefur reynst misjafnlega. Evrópulerki (L. decidua). Heimkynni til fjalla í Mið-Evrópu þar sem það nær 45 metra hæð og 700 ára aldri. Börkurinn rauðbrúnn eða ljósgrár og hrjúfur viðkomu. Barrið ljósgrænt og flatt, 30 til 40 saman í knippi, og gulnar á haustin. Könglar ljósbrúnir og egglaga. Fallegt garðtré í stórum görðum. Þrífst best á sólríkum stað og í sendnum eða meðalrökum jarðvegi. Grasafræðingar skipta Evrópulerki í tvær deildir sem síðan er skipt í nokkur afbrigði. Fjallalerki (L. lyalli). Upprunnið í Klettafjöllum Norður-Ameríku þar sem það nær tæplega 30 metra hæð og allt að 1.200 ára aldri. Krónan mjó og greinarnar láréttar og óreglu- legar á stofninum. Börkurinn sléttur og grár í fyrstu en verður brúnn og hrjúfur með aldrinum. Barrið blá- grænt og stinnt, 30 til 40 í knippi. Verður gulllitað á haustin og er kall- að gulllerki í heimkynnum sínum. Könglar egglaga, dökkfjólubrúnir og með áberandi broddum. Þrífst ágætlega hér en er hægvaxta. Japanslerki (L. kaempferi). Vex villt í fjalllendi í Norður- Japan og nær ríflega 30 metra hæð. Stofninn beinvaxinn og krónan breið. Börkurinn grár með rauðum tóni, verður grófur og hrjúfur með tímanum. Greinarnar láréttar en uppsveigðar í endann. Barrið grá- grænt, 20 til 35 í knippi. Könglar breiðir og egglaga, fjólubláir í fyrstu en verða brúnir þegar þeir þroskast. Sólelskt tré og dafnar best í léttum og þurrum jarðvegi. Sjaldgæft hér og lítið reynt. Í Japan er vinsælt að búa til bonsai-tré úr Japanslerki og er tréð stundum kallað peningalerki þar í landi. Mýralerki (L. laricina). Heimkynni í mýrlendi Norður- Ameríku, frá Labrador til Alaska. Einstofna og nær 35 metra hæð og 300 ára aldri. Börkurinn silfur- grár en dökknar og flagnar með aldrinum. Ræturnar liggja grunnt. Greinarnar stuttar og láréttar út frá stofninum. Barrið fölblágrænt og fíntennt, 12 til 30 saman í knippi. Könglar litlir og egglaga, uppréttir á stuttum stilk. Dafnar best inn til landsins, sólelskt og kýs rakan jarðveg. Indíánar smíðuðu snjóþrúgur úr greinunum en örvar og kanóa úr viðnum. Ræturnar voru not- aðar í vefnað. Úr berkinum var gert smyrsli sem borið var á kal, brunasár og gyllinæð. Smyrslið þótti einnig gott gegn þunglyndi. Barrið notuðu þeir í dýnur, kodda og yfirbreiðslur. Sifjalerki (L. × marchinsii). Kynblendingur milli Evrópu- og Japanslerkis sem uppgötvaðist í Skotlandi árið 1910. Hefur náð tæplega 50 metra hæð og 800 ára aldri. Beinvaxið tré sem sýnir ein- kenni beggja foreldra en vex hraðar en þeir. Dafnar ágætlega hér en er krækluvaxið. Síberíulerki (L. sibirica). Uppruni í Síberíu og Rússlandi austan Úralfjalla, þar sem það þrífst jafn- vel í sífrera, og nær 45 metra hæð. Krónan keilulaga og ljós yfirlitum. Börkurinn rauðbrúnn og hrjúfur. Greinarnar langar og útréttar. Barrið áberandi mjúkt, 15 til 30 í knippi, og gulnar á haustin. Könglar stilkstuttir og egglaga. Harðgerð og fljótvaxin tegund sem hefur náð tæplega 20 metra hæð hér. Fallegt tré í stórum görðum þar sem það fær að njóta sín. Sólelskt og þolir illa sjávarloft. Gerir ekki miklar kröfur en dafnar best í sendnum og kalkríkum jarðvegi, pH 5,5 til 6,0, og í sambýli við rótarsvepp sem kallast lerkisúlungur (Suillus grevillei). Þolir vel klippingu. Innfæddir í Síberíu þurrkuðu og muldu börk Síberíulerkis og blönduðu honum saman við deig til að fá í það lyftingu. Í Rússlandi eru framleiddir hanskar úr lerkiberki sem þykja mýkri en mýkstu leður- hanskar. Rússalerki (L. sukaczewi). Heimkynni í Rússlandi vestan Úralfjalla. Líkist Síberíulerki og telja margir grasafræðingar að um sömu tegund sé að ræða. Könglar og fræ Rússalerkis eru stærri en Síberíulerkis en börkur þess síðar- nefnda er mun grófari á gömlum trjám. Dafnar við sömu skilyrði og Síberíulerki hér á landi. Garðyrkja & ræktun Grænt í garðinum allt árið Barrtré – annar hluti Skógarfura er með mikla útbreiðslu um stóran hluta Evrasíu. Getur orðið 40 metra há og 600 ára. Síberíulerki.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.