Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. september 20134 Fréttir Bændur frá Vesturlandi og austur í Vopnafjörð héldu í göngur í síðustu viku, margir hverjir mun fyrr en áætlað var. Ástæðan var sú að aftakaveðri var spáð um landið, einkum norðanlands, í byrjun vikunnar. Útlitið miðað við spána var ekki ósvipað því sem gerðist fyrir ári þegar óþverraveður gekk yfir landið norðanvert og mikill fjárskaði varð. Þegar spár sem bentu til illviðris fóru að hrannast upp ákváðu bændur því að taka enga áhættu og smala því fé sem hægt væri af fjalli. Fyrstu spár bentu til þess að mjög slæmt veður yrði á norðan- og austanverðu landinu um síðustu helgi. Búist var við aftakaveðri með mikilli úrkomu, rigningu á láglendi en slyddu og snjókomu til fjalla. Þá var spáð vindhraða allt upp í 23 m/s. Eftir því sem leið á vikuna bentu spár til að veðrið myndi færast til vesturs og verða hvað verst á Ströndum og Norðurlandi vestra. Veðrið var skaplegt Þegar til kom varð veðrið ekkert í líkingu við það sem búist var við. Skipti þar verulegu máli að ekki varð jafn kalt og spár gerðu ráð fyrir auk þess sem ekki varð eins mikil úrkoma. Hins vegar voru bændur þá þegar búnir að smala og rétta mjög víða. Stór svæði smöluð Bændur á því svæði sem verst fór út úr illviðrinu sem gekk yfir í fyrra, einkum í Þingeyjarsýslum, voru ekki í rónni og má segja að víðast hvar á því svæði hafi verið smalað eins og hægt var, með tilliti til þess mann- skaps sem fékkst og þess tíma sem gafst. Slíkt hið sama á við um stóran hluta Húnavatnssýslna, Skagafjörð og Eyjafjörð. Borgfirðingar hugðust smala Holtavörðuheiði en með skán- andi veðurspá var ákveðið að hverfa frá þeirri fyrirætlan. Mikill einhugur Misvel gekk að manna göngur, enda farið af stað í miðri viku og áður en ætlað var. Dæmi voru um að sveitarfélög sendu út beiðni um aðstoð til almennings og var slíkum beiðnum almennt mjög vel tekið. Þá aðstoðuðu björgunarsveitir við leitir í einhverjum tilvikum. Atvinnurekendur sýndu mikinn skilning og hliðruðu til fyrir sína starfsmenn svo þeir hefðu tök á að aðstoða við smölun. Sömu sögu er að segja af skólum sem gáfu nemendum frí til að halda í smalamennsku. Reynslan frá í fyrra nýtt Það er almenn skoðun manna að öll skipulagning hafi verið til fyrirmyndar vegna yfirvofandi náttúruvár. Almannavarnarnefndir komu saman víðs vegar um landið og Almannavarnardeild ríkis- lögreglustjóra aðstoðaði við að veita upplýsingar og samhæfa verkefni. Fjallskilanefndir og sveitarstjórnir gengu fumlaust til verka og bændur sömuleiðis. Er það mál manna að reynsla síðasta árs hafi skilað sér mjög vel nú þar sem þeir annmarkar sem þá voru á aðgerðum voru sniðnir af. Eftir því sem Bændablaðið hefur fregnað gekk smalamennska víðast hvar vel. Helsta umkvörtunarefni gangnamanna var að fé hefði verið mjög hátt og algjörlega áhugalaust um að koma til byggða og því seinrækt. Veður var enda víðast hvar með miklum ágætum og gróður á afrétti með eindæmum mikill og góður. Fé þykir enda koma vel af fjalli þrátt fyrir að vera talsvert fyrr á ferðinni en venja er til, í það minnsta sum staðar. /fr Smalað snemma vegna ill- viðrisspár sem ekki rættist Sigurður Páll Tryggvason bóndi á Þverá í Brúnagöngum með þreyttan „sumrung“ á bakinu. Mynd / Atli Vigfússon Sumrungurinn seig í Það var heitt í veðri þegar farið var í Brúnagöngur í Reykjaheiði og sögðu bændur að göngurnar hefðu verið erfiðar. Féð sótti í að leggjast og leita í aðrar áttir í stað þess að renna heimfúst niður í átt að réttinni. Greinilega ekki á því að veðrið væri að versna. Sigurður Páll Tryggvason bóndi á Þverá sagði að þetta hefðu verið einhverjar þær erfiðustu göngur sem hann hefði farið í. Í göngunum fannst „sumrungur“ sem ekki gat fylgt rekstrinum alveg til Skógaréttar og tók Sigurður Páll á það ráð að bera sumrunginn, sem líklega er fæddur í byrjun ágúst. Þó að sumrungar séu ekki þungir að hausti getur verið fyrirhafnarsamt að halda á þeim mjög lengi. Þessi seig í en Siggi Palli lét ekki sitt eftir liggja og til Skógaréttar kom hann lambinu sem auðvitað var ómarkað, en glöggir menn fundu út eigandann. /Atli Vigfússon Sigurður Einar Þorkelsson í Höfða I, Grýtubakkahreppi. Hann er sonur Ástu Flosadóttur, skólastjóra Grenivíkurskóla eftir réttir í Grýtubakkahreppi síðastliðinn laugardag. Mynd / Sigríður Björg Haraldsdóttir Mynd / Aðalsteinn Á. Baldursson á Húsavík Réttað var í Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit í úrhellisrigningu 30. ágúst, en komið var með féð að réttinni skömmu fyrir myrkur kvöldið áður. Ríflega 1.800 vetrarfóðraðar kindur eru í þeim hluta sveitarinnar, gamla Öngulsstaðahreppnum sem Þverárrétt tilheyrir. Orri Óttarsson fjallskilastjóri segir að hluti þeirra, allt að 400 kindur, komi niður í aðrar réttir í Eyjafjarðarsveit og eins sé algengt að fé fari yfir í Fnjóskadal. „Það gekk allt saman vel, við vorum mun fyrr á ferðinni en áætlað var, einum níu dögum, en fyrstu göngur áttu að vera um aðra helgi. Við líkt og aðrir Norðlendingar fórum fyrr af stað vegna slæmrar veðurspár og eiginlega þykir mér kraftaverki líkast að tekist hafi að fullmanna göngur á virkum degi með tveggja daga fyrirvara,“ sagði Orri. Fyrirhugað var að fara í fyrstu göngur laugardaginn 7. september næstkomandi. Vanalega er réttað í Þverárrétt á sunnudegi og jafnan er þar margt um manninn, en þar sem réttardag bar upp á virkan dag og að auki rigndi vel og duglega var hinn almenni réttargestur víðsfjarri góðu gamni að þessu sinni. Orri segir að vel hafi smalast, en féð var ekki heimfúst enda miklir góðviðrisdagar meðan á göngum stóð. „Það gekk fremur hægt en hafðist allt á endanum. Það háttar þannig til hjá okkur að hér eru ótal litlir þverdalir sem fara þarf inni í og það er mjög tímafrekt. Það væsti ekki um kindurnar og því hefur þeim eflaust ekki þótt liggja mjög á að koma til byggða,“ segir Orri. Best þykir honum að fara í göngur eftir að eitt kuldakast hefur gengið yfir og eilítið gránað í fjöll, féð er þá komið dálítið neðar og nær byggð og ekki eins seinlegt og raunin varð nú að smala því. „Miðað við aðstæður myndi ég segja að vel hafi smalast, en eitthvað af kindum héðan af svæðinu mun skila sér í aðrar réttir, það er vaninn.“ /MÞÞ Réttað í úrhellisrigningu í Þverárrétt Smalað á Jórunnarstaðaafrétti í Fjörðum. Mynd / Björn Ingólfsson Fagurbleikur regngallinn virðist hafa dugað vel.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.