Bændablaðið - 05.09.2013, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. september 2013
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Nú hallar sumri og uppskeran
er komin í hús. Við framlengjum
sumarið með léttu tómatsalati en
bjóðum haustið velkomið með
ylvolgri tómatsúpu.
Tómatsalat með
íslenskri hráskinku
Gott salat með parmesanosti,
hráskinku og radísum
Innihald:
› Nokkur salatblöð eða salatblanda
› 2 stk. radísur
› 2 stk. tómatur
› 3 sneiðar hráskinka
› 30 g parmesanostur
› ½ skalottlaukur
› 2 msk. hunang
› 2 msk. ólífuolía
› 2 msk. límónusafi
› salt og pipar
Aðferð:
Tómaturinn er skorinn í netta bita,
radísurnar í sneiðar og hráskinkan rifin
niður. Þetta er allt sett ofan á salatbeð.
Hunangi, ólífuolíu og límónusafa
hrært saman og svo smátt söxuðum
skalottlauk bætt út í. Saltið og piprið.
Tómatbætt kjúklinga- og
grænmetissúpa
Innihald:
› 1 stk. rauðlaukur
› 1 stk. gulrót, meðalstór
› ½ stk. seljurót
› 8 stk. hvítlauksrif
› 2 stk. paprika
› ½ dl ólífuolía til steikingar
› 4 msk. tómatmauk (puré)
› 400 g tómatar, niðursoðnir
› 4 msk. fennikkufræ
› 1 msk. timjan (garðablóðberg)
› 1 dl klettasalatpestó (klettasalat,
olía og hvítlaukur, má setja hnetur
og allt unnið saman í matvinnsluvél).
› 1 l vatn
› 400 g kjúklingabringur
› 4 msk. ólífuolía til steikingar á
kjúklingi
Aðferð:
Skerið grænmetið í
teninga, léttbrúnið
á pönnu eða í potti
(í skömmtum ef
þarf), bragð-
b æ t i ð
með salti
og pipar.
Snöggs t e ik ið
kjúklingakjötið og
bragðbætið með salti og
pipar. Skerið það svo í teninga
og bætið út í súpuna ásamt
öðrum efnum. Sjóðið við
hæga suðu í 30 mínútur.
Fleytið ofan af súpunni
meðan á suðunni
stendur og látið
hana svo standa
í 5-10 mín. áður
en hún er borin
fram.
Berið gjarnan fram með
grófu brauði eða stökkum
brauðstöngum og klettasalatpestói.
Kraftmikið íslenskt grænmeti í bland við úrvalskjöt
MATARKRÓKURINN BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Árið 2003 kom Bjarni Másson
inn í búreksturinn í Háholti með
foreldrum sínum, Má Haraldssyni
og Margréti Steinþórsdóttur.
Árið 2007 tók Bjarni alfarið við
búrekstrinum ásamt Bryndísi Evu
Óskarsdóttur. Síðan þá hafa þau
fjölgað fénu um helming. Þau reka
einnig verktakafyrirtækið Búið &
gert ehf. samhliða búrekstrinum.
Býli? Háholt.
Staðsett í sveit? Skeiða- og
Gnúpverjahreppi.
Ábúendur? Bjarni Másson og
Bryndís Eva Óskarsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Eigum einn son, Má Óskar 2 ára.
Þrír smalahundar, Askur, Neró og
Milos – og veiðikötturinn Branda.
Stærð jarðar? Um 160 ha og
leigjum einnig 15 ha af túnum á
nágrannajörð.
Gerð bús? Sauðfjár- og hrossa-
ræktarbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 450
vetrarfóðraðar kindur, 40 hross og
10 hænur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Dagarnir eru mjög mismunandi
milli árstíða. Yfir vetrartímann
er byrjað og endað á gegningum,
þess á milli eru almenn bústörf.
Á sumrin eru dagarnir marg-
breytilegir en fara mikið eftir
verkefnastöðunni hjá Búið & gert.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast er
sauðburður, heyskapur og smala-
mennskur. Leiðinlegast er að glíma
við njólann.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir
fimm ár? Sjáum fyrir okkur að
rækta meira, fjölga búfé og bæta
húsakost.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Við teljum að þau
mál séu á góðu róli þó að alltaf
megi gera betur.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í fram tíðinni? Við
teljum að hann eigi bjarta framtíð
fyrir sér ef menn standa vörð um
að ganga ekki í ESB og að það
verði auðveldara fyrir ungt fólk
að hefja búskap.
Hvar teljið þið helstu tækifærin
í útflutningi íslenskra búvara?
Tækifærin eru víða, við teljum að
það sé hægt að flytja meira út af
bæði kjöti og mjólkurvörum. Og
nýta okkur hreinleika afurðanna í
markaðssetningunni.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Súrmjólk, mjólk, smjör, ostur og
kæfa.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Folaldakjöt og íslensk
kjötsúpa.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Fjallferðin haustið
2007 rennur seint úr minni, en
hún var mjög erfið vegna mikilla
rigninga og vatnavaxta. Það var
einnig eftirminnilegt þegar við
keyptum 40 ær frá Sandlæk og
settum þær inn í nýbreytt fjárhús.
Háholt
Már Óskar.Bryndís og Bjarni.