Bændablaðið - 05.09.2013, Page 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 5. september 2013
Kaffihúsið Uglan í gamla barnaskólanum að Skógum í Fnjóskadal:
Útlendingar hrifnir af heimabökuðu og þjóðlegu brauði
Kaffihúsið Uglan var starfrækt
í gamla barnaskólanum að
Skógum í Fnjóskadal í sumar.
Markmiðið var að bjóða góðar
veitingar, heimabakað brauð
og tertur á sanngjörnu verði.
Einkunnarorðin voru norðlenskt
og heimafengið og féll það gestum
Uglunnar greinilega vel í geð, því
fjölmargir stöldruðu við og áttu
góða stund yfir veitingum auk
þess sem gestum gafst kostur á að
skoða listsýningar fyrir eða eftir
að veitinga var notið.
„Við höfum reynt að skapa hér
einstaka sambúð menningar og list-
sýninga þar sem áður var svefnsalur
nemenda skólans, þar eru líka bækur
til að glugga í og eða til að kaupa á
vægu verði,“ sagði Agnes Þórunn
Guðbergsdóttir þegar blaðamaður
Bændablaðsins heimsótti hana í
sumar en hún hefur séð um rekstur
á Kaffihúsinu Uglunni.
Gestafjöldinn eykst jafnt og þétt
„Það hefur gengið vel í sumar,
gestafjöldinn hefur aukist jafnt og
þétt eftir því sem liðið hefur á sumarið
og við erum bara mjög ánægð,“
segir Agnes Þórunn. Hún segir að
íbúar í Fnjóskadal og nærsveitum
séu duglegir að heimsækja
kaffihúsið, fjöldi sumarhúsa er á
þessum slóðum, orlofsbyggðin að
Illugastöðum er á næsta leyti og þá
leggur á hverju sumri fjöldi gesta
leið sína í Vaglaskóg. Akureyringar
fara gjarnan í bíltúra yfir heiðina
og eins segir hún að það sama gildi
um íbúa í Mývatnssveit og Húsavík,
sem hafa verið duglegir að fá sér
kaffisopa á Uglunni í sumar. „Þannig
að það er margt fólk á ferðinni hér
um slóðir og margir koma við hjá
okkur,“ segir hún.
Heimilislegt andrúmsloft
Skilti sem komið hefur verið fyrir
við Þjóðveg 1 skammt norðan
við Skóga hefur líka laðað fjölda
útlendinga sem um hann fara. „Það
hefur fjöldi erlendra ferðamanna
komið við hjá okkur í sumar, þeir
leggja örlitla lykkju á leið sína og
ég heyri ekki annað en þeim líki
vel í afslöppuðu og heimilislegu
andrúmslofi sem hér hefur skapast,“
segir Agnes Þórunn. „Útlendingar
eru mjög hrifnir af því að smakka
á heimabökuðu og þjóðlegu brauði
og kökum.“ Nefna má að í boði er
silungur frá Svartárkoti í Bárðardal,
norðlenskt hangikjöt og gestir geta
dreypt á jurtatei úr jurtum sem tíndar
eru í Vaðlaheiði.
Hún bætir við að lausaumferð,
t.d. fólks af höfuðborgarsvæðinu,
sé meiri í sumar en var í fyrrasumar.
Þar spili veðurfar einkum inn í,
þegar veðrið sé leiðinlegt syðra
leggi fleiri land undir fót í leit að
sólskini og blíðu. „Svo er þeim alltaf
að fjölga sem hafa frétt af staðnum
og koma sjálfir í heimsókn til okkar
vegna þess, það er ánægjulegt.“
Agnes þakkar fyrir viðskiptin á
fésbókarsíðu Uglunnar og segir:
„Nú er spennandi sumri lokið
og Uglan búin að pakka saman
og loka. Ég þakka öllum kærlega
fyrir er sóttu staðinn heim í sumar
og eða studdu við bakið á Uglunni
á Fésbókinni. Þá vil ég ekki siður
þakka því frábæra fólki sem vann á
Uglunni í sumar, en það hefði ekki
verið hægt að fá betra fólk til starfa.
Óska ykkur öllum góðrar framtíðar
og við erum öll reynslunni ríkari.“
/MÞÞ
Kaffihúsið Uglan er í Gamla
barnaskólanum að Skógum
í Fnjóskadal þar sem gamli
Vaðlaheiðarvegurinn kemur niður,
rétt ofan við gömlu brúna yfir í
Vaglaskóg.
Í húsnæði
Gamla barna-
skólans er
nú setur um
sögu hans en
þar hafði ekki
aðeins barnaskóli
s v e i t a r i n n a r
aðsetur frá árinu
1 9 1 6 – 1 9 7 2 ,
þar var einnig
lengi símstöð
s v e i t a r i n n a r ,
póstafgreiðsla ,
ferju staður áður en
gamla bogabrúin
var byggð yfir
Fnjóská, áningar-
staður, þingstaður,
samkomustaður og
fundarstaður allt
fram á þennan dag.
Þröngt um
nemendur
Hálshreppur keypti jörðina Skóga árið
1916. Þá var þar ófullgert timburhús
sem var lagfært og gert íbúðarhæft.
Þarna var útbúin skólastofa með
þremur langborðum sem tóku 18
nemendur í sæti.
Fram að þeim
tíma hefði verið
rekinn farskóli
í Fnjóskadal
sem fluttist frá
einu heimili
til annars.
Þröngt var
um nemendur
að Skógum
og þurfti að
t v í s k i p t a
k e n n s l u
fyrsta árið,
ungl ingum
var kennt í
þrjá mánuði
og börnum í
þrjá mánuði.
Fyrri heims-
styrjöldin
truflaði þó
k e n n s l u
m e ð a l
a n n a r s
s ö k u m
skorts á eldsneyti til upphitunnar.
Að henni lokinni var kennsla stopul,
erfiðlega gekk að finna varanlega
kennara og mikil fátækt var meðal
bænda.
Árið 1932 var tekinn upp fastur sex
mánaða heimavistarskóli að Skógum
í Fnjóskadal, sem skiptist á milli eldri
og yngri nemenda sem fyrr. Um 1960
lengdist skólaskyldan og kennt var í
átta mánuði á ári allt til ársins 1972
með tilkomu Stórutjarnaskóla.
Sami kennari í 40 ár
Frá árinu 1932 starfaði sami kennari
allt til ársins 1972, þegar skólahaldi
var hætt að Skógum. Þetta var Jón
Kr. Kristjánsson frá Víðivöllum.
Á þessum fjörutíu árum hafði
hann kennt þremur kynslóðum
í Fnjóskadal en einnig dvaldi
hann með nemendum sínum allan
sólarhringinn og var til staðar þegar
á þurfti að halda.
Í skólasal er kominn vísir að
fastri sýningu um sögu staðarins
og skólastarfið, er samanstendur af
munum, myndum og veggspjöldum.
Þá er einnig sögð saga póstflutninga
og pósthússins að Skógum og
hvernig símamálum var háttað í
dalnum.
Í gamla barnaskólanum að Skógum