Bændablaðið - 07.03.2013, Síða 1
5. tölublað 2013 Fimmtudagur 7. mars Blað nr. 390 19. árg. Upplag 28.000
Í fyrsta sinn í sögu Bænda-
samtakanna er meirihluti stjórnar
skipaður konum. Átta höfðu gefið
kost á sér til setu í stjórn, en auk
formanns sitja sex manns í stjórn
Bændasamtakanna. Í nýrri stjórn
sitja nú fjórar konur. Sem kunnugt
er var Sindri Sigurgeirsson í
Bakkakoti kjörinn nýr formaður
Bændasamtakanna.
Gerð var tillaga um að aðeins
þeir átta sem gefið hefðu kost á sér
væru í kjöri til stjórnar. Athugasemd
var hins vegar gerð við þá máls-
meðferð og þeirri skoðun haldið
á lofti að í raun hlytu allir bændur
sem aðild ættu að samtökunum að
vera kjörgengir í kosningum til
stjórnar. Leituðu forsetar þingsins
eftir afstöðu búnaðarþings á
því hvort sú málsmeðferð sem
uppstillingarnefnd lagði til hefði
stuðning. Í atkvæðagreiðslu lýstu 23
þingfulltrúar stuðningi sínum við þá
málsmeðferð en 17 lýstu sig andsnúna
henni. Var því kosið samkvæmt
tillögu uppstillingarnefndar.
Við það sættu hins vegar nokkrir
þingfulltrúar sig ekki. Mikil reiki-
stefna hófst því þar sem þurfti að
sætta fylkingar. Niðurstaða varð sú
að ógilda skyldi kosninguna sem
áður hafði farið fram en kosið á nýjan
leik með þeim hætti að allir félags-
menn Bændasamtaka Íslands væru
kjörgengir. Samþykktu þingfulltrúar
það og var því kosið á nýjan leik.
Úrslit kosninganna urðu þau að
Guðný Helga Björnsdóttir á Bessa-
stöðum hlaut 41 atkvæði, Fanney Ólöf
Lárusdóttir á Kirkjubæjarklaustri 37
atkvæði, Guðbjörg Jónsdóttir á Læk
36 atkvæði, Þórhallur Bjarnason
á Laugalandi 36 atkvæði, Einar
Ófeigur Björnsson í Lóni 35 atkvæði
og Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir á
Egilsstöðum 35 atkvæði. Teljast
þau sex réttkjörin sem stjórnarmenn
Bændasamtakanna til næstu þriggja
ára. Björn Halldórsson á Akri hlaut
24 atkvæði og Guðrún Lárusdóttir í
Keldudal 21 atkvæði, en þau höfðu
einnig gefið kost á sér. Þá hlutu
einnig nokkrir aðrir færri atkvæði.
Uppstillingarnefnd gerði
síðan tillögu að varamönnum
fyrir hvern stjórnarmann og var
tillaga nefndarinnar samþykkt.
Varamaður Sindra Sigurgeirssonar
er Guðmundur Davíðsson í Miðdal,
varamaður Guðnýjar Helgu er
Guðrún Lárusdóttir í Keldudal,
varamaður Fanneyjar Ólafar er
Ólafur Þ. Gunnarsson á Giljum,
varamaður Guðbjargar er Guðrún
Stefánsdóttir í Hlíðarendakoti,
varamaður Þórhalls er Jón Magnús
Jónsson á Reykjum, varamaður
Einars Ófeigs er Jóhannes Ævar
Jónsson á Espihóli og varamaður
Vigdísar er Skúli Þórðarson á
Refstað. /fr
Búnaðarþing 2013 – karlaveldið gefur eftir í stjórn Bændasamtaka Íslands:
Konur í meirihluta stjórnar í fyrsta sinn
formaður undanfarin níu ár. Mynd / HKr.
Mynd / HKr.
18
Úr bílasölu
23 46