Bændablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. mars 20134 Fréttir „Öfgar í veðurfari hellast yfir okkur með látum allt árið um kring, misjafnlega þó eftir því hvar við búum,“ sagði Birgir Arason, bóndi í Gullbrekku í Eyjafjarðarsveit og formaður Félags sauðfjárbænda við Eyjafjörð, en hann gerði náttúruöflin að umtalsefni þegar hann setti aðalfund félagsins nýverið. „Liðið ár var bæði gjöfult og gott, en sýndi jafnframt sínar verstu hliðar,“ sagði Birgir og nefndi að aðstæður manna væru misjafnar, t.d. bara innan Eyjafjarðar. „Þegar snjór huldi jörð sums staðar á miðjum sauðburði kom varla dropi úr lofti annars staðar. Þurrkar léku marga bændur grátt og virtist sem úrkoman fyndi sér enga leið til jarðar þótt hún svifi yfir vötnum og þar af leiðandi varð heyfengur minni en gengur og gerist.“ Fetuðu sig gegnum skafla veðurguðanna af æðruleysi Fannfergið sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti í byrjun september setti líf manna og dýra úr skorðum, óslegin tún sem bændur höfðu beðið með að slá vegna þurrka lentu undir snjó og allt gangnaskipulag fór úr skorðum þar sem fyrstu göngum var víða ólokið þegar veðrið skall á. Bændur gátu lítið aðhafst en voru ekki í rónni. Þeir hafi tekist á við aðstæðurnar og fetað sig gegnum skafla veðurguðanna af æðruleysi. Birgir nefndi að fjárskaðar hafi orðið ótrúlega litlir í Eyjafirði miðað við snjómagn. Búfé var tekið á hús mun fyrr en undangengin ár allt vegna aðstæðna. Tíð ólík eftir svæðum „Gest bar að garði sem hafði orð á því að ólíkt hefðust bændur að. Í Eyjafirði væru bændur á fullu í heyskap meðan Þingeyingar mokuðu fé upp úr snjó. Það þarf ekki um langan veg að fara til þess að verða vitni að því hversu ólík tíðin getur verið. Í innstu dölum Eyjafjarðarsveitar þessa dagana er til að mynda nánast alauð jörð á láglendi og grænn litur komin á tún, á meðan snjór og klaki liggur yfir neðri hluta sveitarinnar og út með firðinum og dölunum þar inn af. Þar sem klaki hylur jörð hafa menn áhyggjur af kalskemmdum en á snjóléttari svæðum hafa menn áhyggjur af ofþornun á jörðum sínum,“ sagði Birgir og vænti betri tíðar með blóm í haga. /MÞÞ Ráðstefnan Landsýn – Vísindaþing landbúnaðarins verður haldin á Hvanneyri þann 8. mars. Ráðstefnan hefst klukkan 10.00 og verða fjórar samhliða málstofur. Málstofurnar eru: Áhrif loftslagsbreytinga á umhverfi, lífríki og ræktun; hvað hefur gerst og hvað getur gerst Fóður og fé Ástand og nýting afrétta Sjálfbær ferðaþjónusta og heimaframleiðsla matvæla Klukkan 15.30 hefst veggspjaldakynning. Nánari upplýsingar um dagskrá, um skráningu á ráðstefnuna og fleira er að finna á síðunni http://www.skrina.is/landsyn Rútuferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.00 og frá Landbúnaðarháskóla Íslands Keldnaholti kl. 8.20. Farið verður til baka frá Hvanneyri milli kl. 16.30 og 17.00. Búnaðarþing 2013 ítrekar andstöðu sína við aðild að Evrópu sambandinu og telur að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan sambandsins. Jafn- framt geldur þingið varhug við áhrifum af innstreymi fjármagns frá sambandinu sem ætlað sé að hafa áhrif á viðhorf til aðildar. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var samhljóma á þinginu. Í ályktuninni eru varnarlínur þær sem Bændasamtökin hafa dregið upp áréttaðar og fari svo að umsóknarferlinu verði haldið áfram sé mikilvægt að þær verði áfram grundvallarsjónarmið í gerð samningsafstöðu Íslands. Ljóst er að Ísland verður að undirgangast sáttmála Evrópu- sambandsins, verði af aðild, og engar varanlegar undanþágur eru í boði. Því eru svokallaðar samninga- viðræður eingöngu aðlögun að regluverki Evrópusambandsins, segir í ályktuninni. /fr Andstaða við ESB-aðild ítrekuð á búnaðarþingi Íbúafundur var haldinn í Ýdölum vegna draga að nýrri búfjár- samþykkt fyrir Þingeyjarsveit, sem hafa verið til meðferðar hjá sveitar stjórn í vetur. Fundurinn var haldinn til þess að fá fram skoðanir íbúa í Þingeyjar sveit vegna draganna, en lagt er til að lausagöng ubann í gamla Aðaldæla- hreppi verði aflagt. Einnig er lagt til að lausagöngubann verði í þétt- býliskjörnum sveitar félagsins. Frummælendur á fundinum voru Ólafur Dýrmundsson, ráðu- nautur hjá Bændasamtökum Íslands, Daði Lange Friðriksson frá Land græðslunni og Anna Lilja Ragnarsdóttir, lögfræðingur hjá VÍS. Einnig voru viðstaddir fulltrúar frá Vegagerðinni og lögreglunni. Allir sveitarstjórnarfulltrúar Þingeyjar- sveitar voru viðstaddir fundinn auk sveitarstjóra Þingeyjarsveitar, Dagbjartar Jónsdóttur, sem stjórn- aði fundinum. Tæplega 100 manns mættu til fundarins í Ýdölum. Þetta kemur fram á vefsíðunni 641.is. Í núverandi búfjársamþykkt fyrir Þingeyjarsveit er ekki í gildi lausagöngubann. Hins vegar er í gildi bann við lausagöngu stór- gripa (kýr/hestar) í Aðaldælahreppi hinum forna, sem sameinaðist Þingeyjarsveit fyrir nokkrum árum. Í drögum að nýrri búfjársamþykkt fyrir Þingeyjarsveit er lagt til að bann við lausagöngu stórgripa í Aðaldælahreppi hinum forna verði aflagt, en lausagöngubanni stór- gripa komið á í þéttbýliskjörnunum á Laugum, við Hafralækjarskóla og við Stórutjarnaskóla. Búfjársamþykktir sniðnar að aðstæðum Í máli Ólafs Dýrmundssonar ráðu- nautar kom fram að sveitarstjórnir gætu sniðið sínar búfjársamþykktir að aðstæðum í viðkomandi sveitar- félagi og til dæmis sett bann við lausagöngu stórgripa, eða allri lausagöngu, á afmörkuðu svæði, en leyft lausagöngu á öðrum. Í þéttbýlis- sveitarfélögum er lausaganga alls búfjár yfirleitt bönnuð og í nokkrum sveitarfélögum er lausaganga stór- gripa bönnuð í þéttbýliskjörnum og við ákveðna vegarkafla. Í máli Ólafs kom fram að lausaganga alls búfjár væri yfirleitt ekki bönnuð í dreif- býlissveitarfélögum á landinu. Slíkt bann væri óraunhæft, vegna þess hversu misjafnar aðstæður væru á milli sveitarfélaga. Mjög víða sé ekki hægt að koma upp gripheldum girð- ingum, m.a. til fjalla, og eins væri gríðarlega kostnaðarsamt að koma upp girðingum þar sem sveitarfélög væru mörg hver gríðarlega landmikil. Búfjáreigandi ábyrgur ef lausaganga er bönnuð Anna Lilja Ragnarsdóttir, lög- fræðingur hjá VÍS, útskýrði í stuttu máli muninn á tjónum sem kunna að hljótast af því þegar ekið er á búfénað í sveitarfélagi þar sem lausaganga er bönnuð og þar sem hún er ekki bönnuð. Í sveitarfélagi þar sem lausa ganga er ekki bönnuð er öku maður ökutækis yfirleitt ábyrgur fyrir tjóninu. Ef lausaganga er hins vegar bönnuð er búfjáreigandinn ábyrgur, nema því aðeins ef hann sé með sérstaka bænda tryggingu sem VÍS býður bændum upp á. Þá er tjóninu oftast deilt á báða aðila að frádreginni eigin áhættu búfjár- eigandans, nema ásetningur sé sann- aður á annan hvorn aðilann. Þetta er þó ekki algilt. Lausaganga stórgripa verði bönnuð Daði Lange Friðriksson frá Land- græðslunni flutti einnig stutt fram- söguerindi og minnti á athugas emdir sem hann sendi inn við vinnslu drag- anna, en hann gerði m.a. athugasemd við að fyrri samþykkt um lausagöngu stórgripa í Aðaldal yrði felld úr gildi og lagði til að lausaganga stórgripa yrði bönnuð í Þingeyjarsveit. Að framsöguerindum loknum var opnað á fyrirspurnir úr sal. Fram kom að við vinnslu draganna síðastliðið sumar hefði verið leitað umsagnar búnaðarfélaga í Þingeyjarsveit um drögin. Í þeim umsögnum voru lagðar til orðalagsbreytngar en að öðru leyti voru ekki lagðar til stórar breytingar á drögunum. Ljóst er að veggirðingum eru sums staðar illa sinnt og dæmi eru um göt á þeim á sumum jörðum. Nefndu menn veginn yfir Víkurskarð sem dæmi. Lagt var til við sveitarstjórn á fundinum að hafa samráð við Vegagerðina og Landgræðslunna við frekari vinnslu draganna. Íbúar í Þingeyjarsveit geta sent inn til sveitarstjórnar tillögur/breytingar á fyrirliggjandi drögum að búfjársam- þykkt. /MÞÞ Íbúafundur í Þingeyjarsveit um nýja búfjársamþykkt: Lausagöngubann verði aflagt í gamla Aðaldælahreppi – Einnig lagt til að lausagöngubann verði í þéttbýliskjörnum í sveitarfélaginu Framleiðsluverðmæti landbúnaðar 51,8 milljarðar árið 2011 Framleiðsluverðmæti landbún- aðarins árið 2011 er áætlað 51,8 milljarðar króna og jókst um 10,2% að nafnverði frá fyrra ári. Aukning framleiðsluverðmætis nytjaplantna var 2,2%, en fram- leiðsluverðmæti afurða búfjárræktar jókst um 13,2%. Aðfanganotkun jókst á sama tíma um 7,8% að nafnverði, var 34,6 milljarðar árið 2011, og vergt vinnsluvirði jókst um 15,3%, í 17,1 milljarð. Hagstofa Íslands gefur nú í fyrsta sinn út hagreikninga fyrir atvinnugreinina landbúnað í sam- ræmi við alþjóðlega aðferðafræði. Reikningarnir gefa yfirsýn yfir tekjur, gjöld og afkomu greinarinnar í heild sinni á tímabilinu 2007 til 2011. Landsýn – Vísindaþing landbúnaðarins Í drögum að nýrri búfjársamþykkt fyrir Þingeyjarsveit er lagt til að bann við lausagöngu stórgripa í Aðaldælahreppi við Hafralækjarskóla og við Stórutjarnaskóla. Mynd / MÞÞ Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Eyjafirði: Liðið ár var bæði gjöfult og gott – en sýndi jafnframt sínar verstu hliðar

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.