Bændablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 44

Bændablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. mars 2013 Sundlaugin í Borgarnesi stendur við Þorsteinsgötu 1 í Borgarnesi. Elsti hluti sundlaugarinnar er innisundlaug sem er 6,5 x 12,5 metrar, en hún var byggð árið 1976. Árið 1997 var Landsmót Ungmennafélags Íslands síðan haldið í Borgarnesi og í tilefni af því var útisvæði tekið í notkun. Það samanstendur af sundlaug sem er 12,5 x 25 metrar, tveimur heitum nuddpottum, þriðja heita pottinum og vaðlaug. Auk þess er eimbað við sundlaugina, en gufan í það kemur beint úr Deildartunguhver, og þrjár misstórar rennibrautir sem börn jafnt sem fullorðnir geta skemmt sér í. Einnig er gufubað í byggingunni sem hægt er að panta tíma í fyrir hópa. Á föstudögum er innilaugin hituð upp í 34 gráður fyrir ungbarnasund, en sú upphitun er jafnframt mjög vinsæl hjá öðrum sem illa þola kulda. Um 135.000 gestir sækja laugina heim árlega. Sundlaug Borgarness er opin alla virka daga frá 6.30 til 22.00 en frá 9.00 til 18.00 um helgar. Frekari upplýsingar má fá í síma 437-1444 eða með því að senda tölvupóst á netfangið sundlaug@ borgarbyggd.is Sundlaugin í Borgarnesi Laugar landsins Vélabásinn Suzuki Jimny: Alvöru smájeppi með meira innanrými en ætla mætti Fyrir nokkru þegar ég kom út úr „Bændahöllinni“ sá ég erlend hjón vera að hlaða í bílaleigubíl af gerðinni Suzuki Jimny. Hjónin voru frekar vel í holdum og grunaði mig að þessi bíll væri full lítill fyrir þau. Töluvert er af þessum bílum í umferðinni, en oftast eru þetta bílaleigubílar sem eru vinsælir meðal útlendinga. Þó þekki ég nokkra eigendur Suzuki Jimny sem láta vel af þeim. Oft hefur mig hins vegar langað að vita hvort það sé ekki vont að keyra svona stutta en samt tiltölulega háa bíla á íslenskum vegum, eins vondir og þeir oft eru. Ég fór í Suzuki Bíla í Skeifunni og fékk lánaðan glænýjan sjálfskiptan 85 hestafla Jimny til að reyna við dæmigerðar aðstæður á vondu vegakerfi Íslands. Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að munurinn á jeppa og jepplingi sé að jeppi þurfi að vera byggður á grind, með hátt og lágt drif og helst með heilar hásingar. Suzuki Jimny er byggður á grind, með heilar hásingar að framan og aftan og með hátt og lágt drif. Að þessum sökum vil ég meina að Suzuki Jimny teljist til jeppa og sé ekki jepplingur. Vinsæll meðal bænda í útlöndum Víða erlendis er Jimny vinsæll meðal bænda til að fara á um landareignina og oftar en ekki er þá þessum bílum breytt aðeins með tilliti til öryggis með öflugu veltibúri sem er utan á bílnum. Flestir kaupendur Jimny á Íslandi eru bílaleigur, sem hafa verið að kaupa um 100 svona bíla árlega. Þegar ég settist inn í bílinn var rýmið inni í honum mun meira en ég hafði haldið bæði fyrir axlir og fótapláss, útsýnið gott til allra átta úr ökumannssætinu, hliðarspeglar góðir, en baksýnisspegillinn inni í bílnum mætti alveg vera örlítið stærri á alla kanta. Lítið vélarhljóð Hljóð frá vélinni er nánast ekki neitt inn í bílinn og greinilega er góð hljóðeinangrun á milli vélar og farþegarýmis. Persónulega hef ég aldrei verið hrifinn af sjálfskiptum bílum (vil sjálfur keyra mína bíla) en sjálfskiptingin í þessum bíl er mjúk og finnur maður nánast ekkert þegar bíllinn skiptir sér upp og niður. Stíf fjöðrun og slök einangrun að aftan Á mjög vondum og holóttum vegi fann ég vel að bíllinn var stífur og nánast hjó í verstu holunum, en gripið var gott þó að ég hafi í fyrstu verið bara í afturhjóladrifinu. Ekki versnaði gripið þegar ég setti í fjórhjóladrifið, því þá var hreinlega eins og bíllinn væri límdur við mölina og mun betra að keyra hann. Óvönum útlendingum í akstri á möl ætti síðan að benda á að betra sé að keyra bílinn í fjórhjóladrifinu til að minnka líkur á að hjólin snúi upp í miðri Íslandsför. Það eina fyrir utan stífleikann í fjöðruninni sem ég fann að bílnum á mölinni var að töluvert steinahljóð var upp undir bílinn aftan til (frá innri brettunum að aftan var smá steinahljóð), en ekkert veghljóð kom frá fremri hlutanum. Ágætur fyrir tvo til þrjá auk farangurs Áttatíu og fimm hestöflin eru allt í lagi fyrir venjulegan akstur þar sem einn eða tveir eru í bílnum, en ef bíllinn er fullhlaðinn mættu alveg vera 20 aukahross og ef maður breytir jeppanum í „túttujeppa“, svona eins og Ólafur Ragnar ætlaði að gera við Læðuna í Dagvaktinni, þá veitir ekki af nokkrum hrossum í viðbót undir húddið. Þó að Suzuki Jimny sé skráður fyrir fjóra finnst mér plássið það lítið í aftursætunum að þessi bíll sé bestur til ferðalaga fyrir tvo til þrjá, enda er farangursrýmið svo lítið að það veitir ekkert af því að fórna fjórða sætinu fyrir farangur. Hins vegar hef ég heyrt sögu af fólki sem hefur sparað sér gistingu með því að sofa í Jimny-bílaleigubíl. Vélaprófanir hlj@bondi.is Hjörtur L. Jónsson Verð: (Sjálfskiptur) 3.790.000 Lengd: 3.695 mm Breidd: 1.600 mm Hæð undir lægsta punkt: 190 mm Hestöfl: (1,3 L, 16v) 85 Þyngd: 1.060 kg. Helstu mál Mercedes Benz B-Class: Það eru 19 sentímetrar undir lægsta punkt, sem er ekki það mesta sem þek- Bændur í Evrópu nota Jimny talsvert sem vinnubíl og þá er hann oft útbúinn

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.