Bændablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. mars 201314 RAG Import & Export ehf. í Hafnarfirði með umboð fyrir Fliegl Group á Íslandi: Býður fjölþættan tækjabúnað fyrir verktaka og landbúnað – Fliegl hefur opnað nýja verksmiðju í Mühldorf am Inn í Þýskalandi RAG Import & Export ehf. í Hafnarfirði er nýtt nafn á bak við umboð fyrir þýska fyrirtækið Fliegl Group. Fyrirtækið framleiðir bæði margvísleg landbúnaðartæki eins og mykjudreifara sem og ýmiss konar flutningavagna fyrir bændur og verktaka. Fliegl opnaði nýlega nýjar höfuðstöðvar og verksmiðju fyrir landbúnaðartækjaframleiðslu sína, Fliegl Agrartechnik, á 30 hektara svæði í bænum Mühldorf am Inn sem er í um 80 kílómetra fjarlægð austur af München. Bærinn stendur á bökkum árinnar Inn og á sér sögulegar rætur allt aftur til ársins 935. Með vorinu verða allir flutningavagnar Fliegl til landbúnaðarnota framleiddir í verksmiðjunni í Mühldorf. Stærsta fjárfestingin á 30 ára ferli Josep Fliegl er þýskur bóndi sem stofnaði fyrirtækið fyrir um 30 árum og hóf smíði á ýmsum jarðvegstækjum, en nú eru synir hans teknir við. Fliegl Agrartechnik-verksmiðjan er stærsta fjárfesting félagsins frá upphafi. Verksmiðja fyrirtækisins er búin allri nýjustu tækni og er gólfflötur hennar samtals 75.000 fermetrar, en rúmtak byggingarinnar er um 1 milljón rúmmetrar. Í verksmiðju og á lager munu starfa um 250 manns. Mikilli sjálfvirkni er beitt bæði í verksmiðju og í vöruafgreiðslu, sem er með 27 metra lofthæð. Push-Off - „ýtuvagnarnir" vekja athygli Fliegl-landbúnaðartækin hafa ekki verið fyrirferðarmikil á markaðnum hér þótt malar- og flutningavagnarnir séu vel þekktir. Rafn Arnar Guðjónsson, aðaleigandi RAG Import & Export ehf., segir að meðal þeirra tækja sem hafi vakið einna mesta athygli að undanförnu sé Push- Off Trailer Gigant ASW 271. Þessir vagnar ýta af sér hlassinu í stað þess að vera með sturtu og mætti því allt eins kalla þá „ýtuvagna“. Þessi tækni gerir það að verkum að auðveldara er að athafna sig við misjafnar aðstæður á stórum tækjum með mikið hlass og affermingin veldur ekki hættu á að tækið velti. Hafa verktakar því verið að gefa þessu meiri gaum varðandi stórvirka malarflutningabíla, enda er búnaðurinn afar öflugur og hreinsar vel af pallinum. Fyrir bændur hafa slíkir vagnar m.a. komið sér vel við losun í flatgryfjur og þegar koma þarf t.d. korni eða heyi í hús með takmarkaðri lofthæð. Meðal annars hefur Túnfang fengið tvö eintök af Gigant ASW 270 Push-Off Trailer, sem hafa reynst vel. Þá getur Fliegl einnig boðið upp á mykjudreifara, allar gerðir af sturtuvögnum, skóflum, baggaklóm, steypuhrærivélum, herfum og fleira, og nánast hvað sem sjá má nánar á www.rag.is svo og www.fliegl.com Með framleiðslu víða um lönd Auk fyrrnefndrar verksmiðju er fyrirtækið með framleiðsluein- ingar í Kastl, Tripis og Mühldorf í Þýskalandi, Abda í Ungverjalandi og Vilafranca nærri Barcelona á Spáni. Yfir 800 manns starfa við framleiðsluna á þessum stöðum. Þá eru söluskrifstofur í Kastl og Mühldorf í Þýskalandi, Abda í Ungverjalandi, Bosca í Rúmeníu, Komarno í Slóvakíu, Krnov í Tékklandi, Vilafranca á Spáni og að sjálfsögðu er RAG Import & Export svo umboðsaðili á Íslandi. Í Agro Center sem Fliegl Group rekur í Kastl er um 25.000 fermetra varahlutalager fyrir tæki og búnað sem framleiddur er fyrir heimili og hefðbundinn landbúnað, þ.m.t. hrossarækt og garðyrkja. Allir vagnar sem framleiddir eru af Fliegl eru afhentir samkvæmt íslenskum óskum, þ.e. tveggja öxla á tvöföldum hjólum undir Stonemaster grjótflutningapallana sem og með lyftihásingu. Gámagrindur er hægt að fá ýmist með einföldum og tvöföldum hjólum og með einni eða fleiri lyfti hásing- um. /HKr. Lífland með breitt úrval af sáðvöru: Nýir tegundahópar bætast í flóruna Nú á útmánuðum hefur mikil um ræða verið um kalhættu á Norður landi og leiða menn þá óneitan lega hugann að sáð- vörunni. Að því er fram kemur í frétta tilkynningu frá Líf landi verður fyrirtækið með mikið úrval af sáðvöru fyrir bændur og jarðræktar fólk en einnig sumarbústaða eigendur og garð- eigendur. Sem fyrr verður úrvalið breitt, en það hefur aukist undanfarin ár og nýir tegunda- hópar bæst í flóruna. Öflugur ráðgjafahópur Nýr starfsmaður, Jóhannes Baldvin Jónsson, hefur hafið störf hjá fyrirtækinu og mun hann leggja áherslu á ráðgjöf í sáðvöru. Jóhannes er menntaður garðyrkjufræðingur frá Garðyrkjuskóla ríkisins og með B.Sc.-próf í landnýtingarfræðum frá Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ). Hann hefur víðtæka ræktunarþekkingu og verður án efa góð viðbót við öflugt ráðgjafateymi fyrirtækisins. Starfsfólk Líflands hefur í gegnum tíðina sótt sérfræðiþekkingu frá jarðræktarsérfræðingum LBHÍ. Í upphafi árs fóru ráðgjafar Líflands á mjög fræðandi námskeið um sáðvöru hjá LBHÍ þar sem jarðræktar- sérfræðingarnir Guðni Þorvaldsson, Jónatan Hermannsson og Ríkharð Brynjólfsson fræddu þá um helstu tegundir nytjajurta á Íslandi, útkomu þeirra úr tilraunum og val á byggi fyrir mis munandi landshluta. Hávingull, nýjung í túnræktinni Við val á innfluttri sáðvöru er stuðst við niður stöður úr tilraunum á vegum LBHÍ og reynslu bænda víða um land. Nokkur yrki hávinguls hafa verið prófuð í tilraunum undanfarin ár og hafa þau flest reynst vel. Breytingar á hitafari og betri yrki hafa einkum hjálpað til við þessa góðu útkomu á hávingli og með þessar niður- stöður í huga er talið vænlegt að sá hávingli með vallar foxgrasi í stað vallar sveifgrass, einkum fyrir sauðfé. Þess ber þó að geta að hávingull hefur ekki verið reyndur í tilraunum á mestu kalsvæðum landsins. Boðið verður upp á hávingulsyrkið Minto hjá Líflandi í vor en það er finnskt og hefur reynst vel á norðlægum slóðum. Bygg, olíurepja og nepja Byggyrki verða að mestu þau sömu og voru í boði í fyrra. Af sex raða yrkjunum kemur ekki meira af Kunnari sem hefur þó reynst vel á undan förnum árum en í stað þess fáum við yrki sem hafa svipaða eiginleika og nefnast Elmeri og Wolmari. Hveitirækt hefur gengið bærilega, einkum ef tekist hefur að sá um sumarmál, því það þarf allt að mánuði lengri vaxtartíma en fljótþroska bygg. Ný tegund vorhveitis, Wappu, bætist við sáðvöruflóruna í vor. Er það finnskt yrki sem ætti að henta vel á okkar norðlægu slóðum. Þá hefur ræktun á olíurepju verið að aukast allra síðustu ár. Nú verða vetraryrkin Vision og Galileo á boðstólunum auk vorrepjuyrkjanna Marie og Tamarin sem kemur nýtt inn. Ræktun olíunepju hefur verið að færast í aukana en þar verður boðið upp á yrkin Cordelia og Juliet sem voru einnig í boði síðastliðið vor. Í startholunum vegna kalhættu norðanlands Í ljósi kalhættu norðan heiða mun Lífland ekki bregðast bændum með útvegun sáðvöru frekar en endranær. Það stefnir allt í að margir þurfi að vinna og endurrækta kalin tún til að tryggja heyfeng, og er þá einkum horft til sáningar á sumar- og vetrarrýgresi en einnig sumarhafra og byggs. Ræktun heilsæðis, blöndu t.d. byggs og repju, hefur einnig verið að sækja í sig veðrið. Hálmmikið sex raða bygg hentar best í slíka ræktun og þar koma finnsku yrkin sterk inn, t.d. Elmeri, Wolmari og Pilvi. Á boðstólum verður sumarrýgresisyrkið Swale og vetrarrýgresið Meroa. Af sumarhöfrum verður til yrkið Belinda. Einnig verður til fjölbreytt úrval túngrasa í endurræktina. Ráðgjafar Líflands eru boðnir og búnir að veita aðstoð við val á sáðvörunni og hvetjum við bændur og aðra til þess að hafa samband snemma, þar sem líkur eru á meiri eftirspurn nú en oft áður. Ný 7.500 fermetra verksmiðja landbúnaðartæknideildar Fliegl sem er við bæinn Mühldorf við ána Inn í Þýskalandi. Í heimsókn í verksmiðju Fliegl, talið frá vinstri: Rafn Arnar Guðjónsson, Josep Fliegl yngri, Mikkel Gasbjerg og Valdimar Guðmundsson. Dráttarvél með tveggja öxla Fliegl-mykjudreifara í drætti. Mynd / RAG Nýjar verksmiðjubyggingar Fliegl. Bærinn Mühldorf am Inn.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.