Bændablaðið - 07.03.2013, Síða 25
25Bændablaðið | Fimmtudagur 7. mars 2013
BÚNAÐARÞING 2013
Framleiðum
Vélboða mykjudreifara
í mörgum stærðum
Vélboði ehf. Hafnarfirði. Sími. 565-1800
Heimasíða. www.velbodi.is
Búnaðarþing 2013 var sett við
hátíðlega athöfn í Súlnasal Hótels
Sögu á sunnudaginn var. Að þessu
sinni voru einkunnarorð þingsins
„Bændur segja allt gott“. Fjöldi
manns mætti til athafnarinnar,
sem þótti lífleg og skemmtileg og
gefa góð fyrirheit um kraftinn
sem býr í íslenskum landbúnaði.
Í setningarræðu sinni lagði
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, út af
einkunnarorðum þingsins. „Við
[bændur] höfum fjölgað störfum
á undanförnum árum. Við höfum
byggt nýjar búgreinar, hafið
nýja vinnslu. Landbúnaðurinn
og nátengd fyrirtæki hans skapa
12.000 manns atvinnu. Við erum
fulltrúar atvinnugreinar sem árið
2011 framleiddi verðmæti fyrir um
150 milljónir hvern einasta dag. Við
vinnum þjóð okkar verðmæti fyrir
rúma 50 milljarða á ári sem aftur var
margfaldað með vinnu fjölmargra
fyrirtækja – fólksins sem vinnur
við að breyta framleiðslu bænda í
markaðsvörur. Við eigum og rekum
fyrirtæki sem kappkosta að bjóða
fjölbreytt úrval innlendra búvara.
Við framleiðum útflutningsvörur
fyrir 11 milljarða á ári. Samt
erum við fyrst og fremst að
sinna innlendum markaði,“ sagði
Haraldur og bætti við: „Algengasta
spurning til bænda er þessi: „Hvað
segja bændur?“ Bændur segja allt
gott.“
Haraldur kom víða við í ræðu
sinni og gerði erfið rekstarskilyrði
í landbúnaði meðal annars að
umtalsefni. „Við lokum hins vegar
ekki augunum fyrir erfiðum og
versnandi rekstrarskilyrðum búa
okkar, sem koma svo glöggt fram
í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.
Framleiðsluverðmæti búvöru á
grunnverði hefur hækkað um 49%
frá 2007 til 2011. En verð á aðföngum
til sömu framleiðslu hefur hækkað
um 60% á sama tíma. Þá eru ekki
einu sinni taldar með þær gífurlegu
hækkanir á fjármagnskostnaði sem
urðu á tímabilinu. Mismuninn hafa
bændur sótt í eigin vasa, með því
að ganga á eigin laun og fresta
endurnýjun og viðhaldi.
En við þurfum að sækja fram.
Sækja ótrauð fram og minna á að
við verðum að hugsa til langs tíma
og byggja á traustum grunni. En
meginspurningin er hvernig og
hvaða stöðu ætla íslenskir bændur
að taka sér í breyttum heimi?
Veröldin hefur breyst. Matvælaverð
í heiminum hefur rúmlega tvöfaldast
á áratug. Kemur það ekki okkur
við?“
Ráðherra boðar breytingar
á jarðalögum
Að lokinni ræðu Haraldar
ávarpaði Steingrímur J. Sigfús son,
atvinnuvega- og nýsköpunar ráðherra,
búnaðarþing. Greindi hann m.a. frá
því að nefnd sem skipuð var til að
leggja mat á ýmsa þætti jarðalaga
hefði skilað niðurstöðu sem kynnt
hefði verið í ríkisstjórn síðastliðinn
föstudag. „Þeirri nefnd fól ég að
skoða og leggja mat á nokkra þætti
sem ofar lega eru í umræðunni. Má
þar nefna hvort rétt sé að skýra frekar
orðið lögbýli – hvort það á að vera
notað nema þar sem jörðin er á
skilgreindu landbúnaðarlandi og með
fastri ábúð. Nú er það staðreyndin
að fjöldi jarða á landbúnaðarlandi
er í raun í eyði eins og það orð hefur
verið túlkað – engin búseta og engin
ljós í gluggum.
Enn má nefna, og það ekki
minnsta atriðið, að ásókn hefur
verið í að skipta góðum bújörðum
upp í fjölda smærri eininga með
sumarbústaðadvöl í huga eða fasta
ábúð nýrra íbúa í viðkomandi
sveitarfélagi. Og er þá nema von að
spurningar vakni sem rétt er að velta
fyrir sér; Á að banna sveitarfélagi
að leysa úr landbúnaðarnotum e.t.v.
bestu bújarðirnar en fá í staðinn
fleira fólk og nýja skattgreiðendur?
Eða á að leyfa hiklaust að leysa
slíkar jarðir úr landbúnaðarnotum
þannig að í framtíðinni verði
besta landbúnaðarlandið horfið
og búskapur stundaður við lakari
skilyrði annars staðar? Ábyrgð
okkar í þessum efnum er mikil,
fæðuöryggi þjóða er alls staðar á
leið upp forgangslistann í heiminum,
leikreglur sjálfbærrar þróunar kalla á
að sjálfbærni sé efld jafnt staðbundið
sem á lands-, og heimsvísu.
Matvæla framleiðsluþörfin kallar
á hið sama, sem og þörfin fyrir að
lágmarka vistspor mannsins. Þessar
spurningar eru fjarri því einfaldar
en ég held að meðvitundarleysi og
óbreytt ástand sé ekki valkostur. Eða
eins og sagði í frægri auglýsingu
– ekki gera ekki neitt,“ sagði
Steingrímur í ræðu sinni og bætti
því við að hann hefði óskað eftir því
að niðurstöður nefndarinnar yrðu
lagðar fyrir búnaðarþing til umræðu.
/fr
Bændur segja allt gott
Haraldur Benediktsson í ræðustóli við setningu Búnaðarþings 2013. Myndir / HKr.
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Erlendir gestir á Búnaðarþingi ásamt forseta Íslands. Talið frá vinstri: Lars
Nielsen frá Grænlandi, Jens Ring frá Danmörku, Bjørn Gimming frá Noregi
og Ólafur Ragnar Grímsson forseti.