Bændablaðið - 14.11.2013, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. nóvember 2013
Formaður Landssambands kúabænda segir að marka verði framtíðarstefnu fyrir greinina:
Verð á greiðslumarki hefur hækkað
um 40 krónur á lítra
– markmið með tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur um lækkun á verði hefur ekki náðst
Verð á greiðslumarki mjólkur
hefur hækkað um 14 prósent eða
um 40 krónur á lítra frá því að
hinn svonefndi kvótamarkaður var
settur á fót fyrir tæpum þremur
árum. Tilboðsmarkaður með
greiðslumark mjólkur var í fyrsta
sinn haldinn 1. desember 2010 eftir
að lokað var á bein viðskipti með
greiðslumark í maí sama ár.
Markaðurinn var settur á að ósk
Landssambands kúabænda og eitt
meginmarkmiðið með honum átti að
vera að lækka verð á mjólkurkvóta.
Jafnvægisverð greiðslumarks sem
náðist á fyrsta kvótamarkaðnum
reyndist vera 280 krónur. Nú, tæpum
þremur árum seinna, er verðið
320 krónur á lítra og því ljóst að
markmiðið með markaðnum hefur
ekki náðst.
1. nóvember síðastliðinn fór
fram tilboðsmarkaður með greiðslu-
mark mjólkur. Þar kom fram
jafnvægisverð, 320 krónur fyrir hvern
lítra mjólkur, sem er sama verð og á
síðasta markaði í apríl síðastliðnum.
Greiðslumark sem viðskipti náðu
til voru tæplega 875.000 lítrar.
Framboð var umtalsvert meira nú en
á síðasta markaði en nú var boðið
til sölu greiðslumark sem uppá tæpa
1.035.000 lítra. Það er aukning um
45 prósent frá síðasta markaði. Að
sama skapi dró verulega úr eftirspurn
og var hún einungis tæp 41 prósent
af því sem óskað var eftir á síðasta
markaði.
Árið 2005 fór verð á greiðslumarki
hæst í rúmar 400 krónur en hafði
lækkað og var nálægt 300 krónum
árin áður en tilboðs markaðurinn
var settur á laggirnar. Eins og áður
segir lækkaði verð á fyrsta tilboðs-
markaðnum í desember 2010 niður
í 280 krónur en hefur stigið jafnt og
þétt síðan.
Hátt verð kemur á óvart
Í lok september síðastliðnum ákváðu
afurðastöðvar í mjólkur iðnaði að
greiða bændum fullt afurðastöðvar-
verð fyrir alla umframmjólk síðustu
þrjá mánuði þessa árs. Var þetta gert
vegna gríðarlegrara söluaukningar í
ýmsum vöruflokkum, einkum þeim
sem unnir eru úr fituhluta mjólkur,
svo sem smjöri og rjóma. Því kom
það ýmsum á óvart að svo hátt verð
væri boðið í greiðslumark á síðasta
uppboðsmarkaði.
Sigurður Loftsson, formaður
Landssambands kúabænda (LK),
segir að hann hafi fastlega átt von á
að verðið myndi lækka. „Mér fannst
í raun alveg eins líklegt að ekki yrðu
viðskipti á þessum markaði. Við
höfðum meðal annars fjallað um
það á haustfundum LK að það væru
tæplega tilefni til þess fyrir bændur
að kaupa kvóta háu verði núna. Það
væri full ástæða til þess að doka
við og sjá til hvað gerðist fram eftir
næsta ári og taka þá frekar skrefið
á næsta kvótamarkaði í apríl ef
tilhneigingin sem við höfum verið að
sjá í markaðsmálum og framleiðslu
myndi breytast eitthvað. Ég skil
sjónarmið seljenda fullkomlega, þeir
eru að sækjast eftir því að selja á sem
bestu verði en ég varð vissulega hissa
á því hversu hátt verð kaupendur voru
tilbúnir að greiða.“
Eftirspurn dregist saman
– Rúmir milljón lítrar voru boðnir
til sölu, sem er aukning frá síðasta
markaði um 45 prósent. Eftirspurnin
dregst hins vegar talsvert saman. Er
skýringin á þeim samdrætti sú að
bændur eru að bíða vegna þessara
ástæðna sem við nefnum hér að ofan?
„Ég hugsa að það sé nú þannig. Ég
dreg þá ályktun að það sé talsverður
hópur sem hefur ákveðið að doka við.
Svo er annað að það er hefur verið
nokkur samdráttur í framleiðslunni
sem getur valdið því að dregur úr
eftirspurnarþrýstingnum. Framboðið
er hins vegar meira eins og þú segir
og það er þróun sem við áttum von
á. Ég var búinn að heyra um slíkt
utan af mér. Það hefur verið fremur
lítil sala á greiðslumarki frá hruni
og þegar horft er til lengri tíma
tilhneigingar þá fannst mér að það
hlyti að koma að því að losnaði um.
Nú er búið að vinna talsvert mikið
í skuldamálum bænda og því þótti
mér ekki ólíklegt að meira framboð
yrði nú.“
– Hefur þú áhyggjur af því að
meira framboð sé núna vegna þess
að bændur séu að selja kvóta vegna
skulda eða telur þú að aðrar ástæður
séu að baki?
„Ég er nokkuð viss um að það
eru margar ástæður þar að baki.
Bændur hafa í gegnum tíðina selt
af ýmsum ástæðum, meðal annars
vegna fjárhagsástæðna og það gerðist
líka fyrir efnahagshrunið.“
Mjólk vantar
„Svo virðist sem einhver hópur
bænda telji að virði kvótans þetta
mikið. Sjálfur er ég ekki endilega
sannfærður um að svo sé á þessum
tímapunkti. Sértu að kaupa
greiðslumark hlýtur þú að velta fyrir
þér ýmsum þáttum, meðal annars
áhrifum á sjóðstreymi til skemmri
tíma og eins langtímaáhrifum. Það er
ekki sjálfgefið að það fyrirkomulag
sem við búum við varðandi
starfsumhverfi greinarinnar muni
verða óbreytt á komandi árum. Við
höfum búið við tiltölulega lítt breytt
kerfi undanfarna þrjá áratugi, þó
með örlitlum tilfæringum, en ekki
eðlisbreytingum. Þetta er kerfi sem
í grunninn er hugsað til að tryggja
bændum lágmarksverð og þar með
að verja afkomu framleiðenda.
Í aðstæðum sem þessum þegar
vaxandi eftirspurn er eftir mjólk
þarf hugsanlega ekki lengur að vera
sama bremsa á framleiðslu og verið
hefur. Við höfum að vísu séð nokkra
tilhneigingu síðustu tvær vikur til
aukinnar framleiðslu og ég vona að
það þýði að við séum búin að snúa
þeirra þróun við, að minnst kosti að
sinni,“ segir Sigurður um ástæður
þess að verð á greiðslumarki hafi
haldist jafn hátt og raun ber vitni nú.
Kúm fækkar
– En nautgripum hefur verið að
fækka í landinu. Hlýtur ekki að taka
tíma að auka framleiðslu á nýjan
leik?
„Jú, gripum hefur verið að fækka
jafnt og þétt. Ef við horfum tuttugu
ár aftur í tímann hefur kúm fækkað
nálægt um eitt prósent á ári. Mig
minnir að hér hafi verið 34.000 kýr
þegar Landssamband kúabænda var
stofnað 1986 en núna eru þær um
24.000. Auðvitað hefur framleiðsla
eftir hverja árskú aukist með
kynbótum, bættum aðbúnaði en
fyrst og fremst bættri fóðrun. Ef
við hins vegar náum ekki vexti í
fjölda kúa á næstunni, þá munum
við að öllum líkindum ekki ná að
sinna markaðnum á næstu árum,
haldi hann áfram að vaxa eins og
verið hefur undanfarin ár. Það á
sérstaklega við um fituhluta mjólkur
en eftirspurn eftir henni hefur verið
að aukast síðasta áratug og orðið
algjör sprenging í því nú upp á
síðkastið. Einn áhrifaþáttur varðandi
framboð mjólkur er að allra síðustu
ár hefur skilaverð fyrir umframmjólk
verið mjög lágt. Nú er hins vegar
að koma á daginn að við þurftum á
þessari mjólk að halda. Við þurfum
að velta fyrir okkur hvernig við
getum á hverjum tíma fullnægt
þörfum innanlandsmarkaðar og
hvernig við förum að því um leið
að hámarka virði þeirrar mjólkur
sem nauðsynleg er til að mæta
framleiðslu og sölusveiflum.“
Vonbrigði að verð lækki ekki
Þegar kvótamarkaðurinn var
settur á laggirnar 2010 var það gert
að eindreginni ósk Landssambands
kúabænda. Eitt langtíma markmiðið
með honum var að lækka verð á
greiðslumarki en það hafði verið í
kringum 300 krónur á lítra árin á
undan. Verðið lækkaði í 280 krónur á
fyrsta kvótamarkaðnum en er nú 320
krónur á lítra. Á þremur árum hefur
lítrinn því hækkað um 40 krónur.
Það er því ekki hægt að segja að
markmiðið um lækkun hafi náðst.
Sigurður segir að það séu vissulega
vonbrigði.
„Jú, það má alveg segja að þetta
séu vonbrigði fyrir greinina. Ég tel
þó að náðst hafi ákveðinn áfangi í
því að halda aftur af hækkunum.
Með kvótamarkaðnum er verið
að taka upp aðferð þar sem allir
sitja við sama borð hvað varðar
viðskipti og hvað varðar verð, auk
þess sem gegnsæi viðskiptanna er
aukið. Sé hinsvegar horft til þeirra
sex kvótamarkaða sem haldnir hafa
verið og eftirspurnin þar skoðuð er
í sjálfu sér ekki óeðlilegt að verð
hafi hækkað.“
Fjölga ætti kvótamarkaðsdögum
– En er ekki ljóst að einungis tveir
kvótamarkaðir á ári hamla því að
þessi markmið náist? Þyrftu þeir
ekki að vera fleiri?
„Jú, og við höfum marg ítrekað
óskir okkar um að fá þeim fjölgað.
Það hefur einfaldlega ekki náðst
fram. Það hafa hins vegar ekki
komið fram afgerandi efasemdir um
aðferðina í grunninn og staðreyndin
er reyndar sú að þær aðstæður sem
ríkt hafa síðustu ár hafa ekki verið
kvótamarkaðnum hliðholl.. Menn
þekkja annmarkana en hingað
til hafa fulltrúar á aðalfundum
Landssambands kúabænda ekki
viljað falla frá þessari aðferð.“
Óvissa um framtíð kerfisins
Sigurður bendir jafnframt á að ákveðin
óvissa sé framundan varðandi það
starfsumhverfi sem kúabændur hafa
búið við. Búvörusamningar renni út
árið 2016 og óvíst sé hvert framhaldið
verði. „Við vitum ekki hvað er
framundan varðandi fyrirkomulagið
sjálft, greiðslumarkskerfið. Ég er ekki
að gefa mér að það verði að stefnu
stjórnvalda að leggja kvótakerfið af en
það gætu verið gerðar breytingar sem
lúta til að mynda að fyrirkomulagi
stuðningsgreiðslanna. Munu þær eftir
árið 2016, þegar búvörusamningur í
mjólk rennur sitt skeið, áfram fylgja
greiðslumarkinu eins og verið hefur?
Það er ekki sjálfgefið.“
Kallar eftir vilja stjórnvalda
Nauðsynlegt er að mati Sigurðar að
setjast niður og fjalla um framtíða
mjólkurframleiðslu í landinu.
„Hvert ætlum við með þessa grein?
Við þurfum að þjóna markaðnum
og skapa sem mest verðmæti með
sem hagkvæmustum hætti. Verður
það best gert með sama hætti og
undangengna þrjá áratugi eða er
ástæða til að gera einhvers konar
breytingar? Í þessu samhengi tel ég
mikilvægt að velta upp spurningunni
um hvað stjórnvöld vilji. Hver er
stefna stjórnvalda í því að efla og
breikka landbúnaðinn, kalla þar
fram vöxt? Þetta er eitthvað sem við
þurfum að setja niður fyrir okkur, og
því fyrr, því betra.“
– Þurfa þá ekki kúabændur að
kalla eftir samræðu við stjórnvöld
um þessi mál?
„Við skrifuðum undir
framlengingu á búvörusamningum
síðastliðið haust og því fylgdi bókun
um að unnin yrði greining á stöðu
greinarinnar og skyldi henni lokið
fyrir komandi áramót. Það hefur
reyndra dregist að koma þessari
vinnu í gang. Við höfum hins vegar
fundað með ráðherra og hann hefur
áhuga á þessu máli, við finnum það.
Ég er því heldur bjartsýnn á að farið
verði í þessa vinnu fyrr en seinna.
Frumkvæðið að stefnumótunarvinnu
fyrir greinina liggur hins vegar hjá
stjórnvöldum eins og staðan er núna
og við bíðum spennt eftir því hverju
fram vindur.“ /fr
Tilboðsmarkaður með greiðslumark mjólkur var í fyrsta sinn haldinn 1. desember 2010 eftir að lokað var á bein
viðskipti með greiðslumark í maí sama ár.
Kúm hefur fækkað jafnt og þétt á Íslandi undanfarna áratugi, um eitt prósent
á ári. Við stofnun Landssambands kúabænda árið 1986 voru um 34.000 kýr
í landinu en núna eru þær um 25.000.
Sigurður Loftsson
Eftirspurn eftir smjöri hefur stór-
aukist undanfarin misseri.