Bændablaðið - 14.11.2013, Síða 44
45Bændablaðið | Fimmtudagur 14. nóvember 2013
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins Guðmundur Jóhannesson
Ábyrgðarmaður
í nautgriparækt
S: 480-1808
mundi@rml.isHuppa til móts við kjötframleiðendur
Í síðustu grein fór ég yfir nýtt
frjósemis yfirlit sem bætt var í
nautgriparæktarkerfið Huppu
í sumar. Það yfirlit kemur að
nokkrum notum fyrir þá bændur
sem eru með holdakýr til fram-
leiðslu á nautakjöti. Til þess að
koma enn frekar til móts við
framleiðendur nauta kjöts var
bætt inn yfir liti yfir slátur gögn í
sumar. Yfirlitið nýtist að sjálfsögðu
ekki bara fram leiðendum nauta-
kjöts heldur einnig mjólkur-
framleiðendum því skýrslan nær
einnig yfir innlagðar mjólkur kýr
og kvígur.
Þetta er skýrsla sem er að finna
undir „Skýrslur“ í valröndinni
vinstra megin og heitir „Yfirlit
sláturgagna“. Skýrslan gefur yfirlit
yfir kjötframleiðslu búsins á tímabili
sem notandinn velur sjálfur. Rétt
er að taka fram að skilyrði er að
sláturgögn frá sláturhúsi hafi verið
staðfest áður, þ.e. að fallþunga- og
kjötmatsupplýsingar hafi verið
staðfestar á réttan grip, því skýrslan
vinnur eingöngu með staðfest
sláturgögn.
Skýrslunni má skipta í tvennt.
Annars vegar er um að ræða lista
með þeim gripum sem fargað hefur
verið á því tímabili sem valið er og
hins vegar yfirlit um meðaltöl og
magn á sama tímabili. Hægt er að
flokka gögnin eftir öllum gripum,
kúm, kvígum eða nautum. Þarna
má sjá raunupplýsingar um hvern
og einn grip eins og fallþunga,
flokkun og aldur í dögum við slátrun.
Kerfið reiknar svo út áætlaðan
lífþunga miðað við fyrirframgefna
kjötprósentu sem er 44% fyrir kýr,
46% fyrir kvígur og 48% fyrir naut. Ef
um er að ræða vigtun á fæti 14 dögum
eða skemur fyrir slátrun reiknar kerfið
út raunverulega kjötprósentu. Út frá
þessum upplýsingum og áætluðum
fæðingarþunga er svo reiknaður
áætlaður vaxtarhraði í g/dag. Það
sama á við um fæðingarþungann
að sé gripur veginn skömmu eftir
fæðingu er raunþunginn notaður í
stað áætlaðs fæðingarþunga. Kerfið
miðar við að fæðingarþungi sé 34 kg
nema Limousine-blendingar 39 kg.
Í yfirlitnu um meðaltöl og magn
er að finna yfirlit eftir flokkun í
sláturhúsi. Á meðfylgjandi mynd er
að finna dæmi frá búi þar sem öll naut
sem fargað hefur verið á árinu 2013
hafa farið í UNI*A og UNIA. Þarna fá
menn yfirlit um fjölda gripa sem farið
hafa í hvern flokk, meðalfallþunga,
meðalaldur í dögum og heildarmagn
innvegins kjöts eftir flokkum. Kerfið
sýnir svo áætlaða kjötprósentu eða
raunverulega kjötprósentu ef gripirnir
hafa verið vigtaðir á fæti fyrir
slátrun og þungi skráður í Huppu.
Út frá þessum upplýsingum er svo
reiknaður vaxtarhraði í g/dag. Að
lokum er svo hlutfallsleg skipting
gripa og kjöts eftir sláturflokkum
sýnd á myndrænan hátt á kökuriti.
Það er okkar von að þessi skýrsla
eða yfirlit nýtist mönnum til þess
að bæta framleiðslu nautakjöts og
gera hana hagkvæmari. Við skoðun
á þessum gögnum hefur maður fljótt
séð mikinn mun í vaxtarhraða og að
þeir gripir sem eru að flokkast í lak-
ari flokka eins UNI M eru þeir gripir
sem vaxa hægar. Oft á tíðum eru það
gripir sem maður hefur grun um að
hafi fengið slakt eldi í byrjun, til
dæmis kálfar sem hafa verið keyptir
á mjólkurfóðrunarskeiðinu og orðið
of mikið um flutninginn. Með því að
rýna aðeins í gögnin má oft finna
skýringu á því hvers vegna við-
komandi gripur óx ekki eins og til
var ætlast. Þegar skýringin er fundin
er hægt að bæta úr. Þá er hægt að
snúa dæminu við og sjá hvers vegna
ákveðinn gripur eða gripir náðu
miklu betri vexti en aðrir gripir og
beita þeim fóðrunaraðferðum sem
beitt var á þá framvegis.
Auðvitað er hér um ákveðna
nálgun að ræða þar sem í langflestum
tilfellum liggja ekki fyrir ákveðnar
stærðir eins og fæðingarþungi og
þungi á fæti fyrir slátrun. Hins vegar
gerir kerfið ráð fyrir að menn geti
skráð þessi gögn og fengið þannig
út raunverulegt kjöthlutfall og
vaxtarhraða. Þrátt fyrir að þetta sé
nálgun er um að ræða ágætis yfirlit
sem á að geta hjálpað til við að bæta
framleiðslu nautakjöts í landinu.
Verslun FB Selfossi – 27. nóvember frá kl. 18 - 21
Verslun FB Hvolsvelli – 28. nóvember frá kl. 18 - 21
Verslun FB Egilsstöðum – 29. nóvember frá kl. 15 - 19
Chris King og Jens Rassmussen halda kynningar.
Frábær tilboð – nýjungar kynntar.
Léttar veitingar og spjall. – í héraði hjá þér –
N
Ý
PR
EN
T
eh
f.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!