Bændablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 14. nóvember 2013
Hildur Arney er 8 ára gamall
nemandi í Vesturbæjarskóla og
hefur mest gaman af sérgrein-
um og áætlun í skólanum. Hún
er einnig mikil körfuboltakona
og æfir íþróttina með KR.
Nafn: Hildur Arney.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Öldugata í Reykjavík.
Skóli: Vesturbæjarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Sérgreinar og áætlun.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Kettir, hundar og hamstrar.
Uppáhaldsmatur: Grjónagrautur
og sushi.
Uppáhaldshljómsveit:
Fjallabræður og Retro Stefson.
Uppáhaldskvikmynd: Það er mynd
um hund og tvær systur sem ég man
ekki hvað heitir.
Fyrsta minningin þín? Mamma,
pabbi og Lilli, bangsinn sem ég fékk
á fæðingardaginn minn.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi körfu með KR.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Körfuboltakona.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég fæddist tveimur og
hálfum mánuði fyrir tímann.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Þegar mamma og pabbi
fara til útlanda en það er gaman
þegar þau koma til baka.
Gerðir þú eitthvað sérstakt í
sumar? Við fórum í Fjallabræðra-
útilegu, ættingjaútilegu og á Bifröst
og í Borgarnes og ég fór einnig til
Ísafjarðar. /ehg
PRJÓNAHORNIÐ
Stærð:
Ein stærð.
Efni:
Frapan frá garn.is, 1 dokka af hverjum lit
Ljósgrænt nr 91249
Gyllt nr 91252
Vínrautt nr 70903
Blátt nr 91255
Dökkgrænt nr 91247
Ljósasería með 10 ljósum
Lítil frauðbjalla
Heklunál:
Heklunál nr 3 (hægt er að nota nr 3,5 ef heklað
er fast).
Aðferð:
Bjöllurnar eru heklaðar í hring. Síðan eru
þær stífaðar með sykurstífelsi, látnar þorna á
frauðbjöllu og settar á seríu. Heklaðar eru jafn
margar bjöllur og ljósin eru á seríunni. Hægt
er að nota stærri seríu og fjölga bjöllunum
og litunum.
Bjalla:
Heklið 8ll og tengið í hring með kl.
1. umf: heklið 10fp utan um hring-
inn.
2. umf: Heklið 2ll, heklið 1 st á
sama stað,* heklið 2ll, heklið 2st
í þarnæsta fp*, ent frá *-* út umf
og endið með kl efst í ll úr byrjun
umf. Þá eiga að vera 5 stuðlaklasar.
3. umf: Heklið 2ll, heklið 1 st á milli
st úr síðustu umf,* heklið 2ll, heklið
2st á milli næstu st úr síðustu umf*,
ent frá *-* út umf og endið með kl
efst í ll úr byrjun umf.
Endurtakið svo 3. umf 4 sinnum í
viðbót.
Síðasta umferðin er svo þannig:
Heklið 2ll, heklið 1 st á milli st úr
síðustu umf, heklið 2ll, heklið 2st á
milli sömu st,* 3ll, 2 st á milli næstu
st, 2ll, 2 st á sama stað *, ent frá
*-*, ljúkið með kl, slítið bandið og
dragið í gegn.
Frágangur:
Gangið frá endum. Sjóðið saman
vatn og sykur, helming á mót helm-
ingi, og bleytið bjöllurnar. Setjið þær
síðan á frauðbjöllur og látið þorna.
Dýrfinna Guðmundsdóttir
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Elskar grjónagraut
og sushi
Bjöllur á seríu
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-
þrautirnar er að setja réttar
tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og
lóð rétt og heldur ekki innan
hvers reits sem afmarkaður
er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar,
sú sem er lengst til vinstri er
léttust og sú til hægri þyngst
en sú í miðjunni þar á milli.
Létt ÞungMiðlungs
2 5 9 6
3 7
6 1
1 4 5
4 3 6 7
7 6
9 5
9 1
6 5 2 4
4
7 6
1 2 7 9
8 9 4
4
3 8 1
3
2 7 3
7 4 9 8 2 1
7 6 2 9 8 4
8
5 1
5 6
6 2 5
7 2
1 3
9
2 8 3 6 7 5
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!