Læknablaðið - 01.05.1958, Síða 14
36
L Æ K N A B L A Ð I Ð
einstaklingum. Enn fremur sé
tekið tillit til, livenær menn
deyja og eftirlaunaréttar.
Lögnm samkvæmt ber lækn-
um skylda til að viðhalda þelck-
ingu sinni, verður því að reikna
með þeim kostnaði, sem af því
hlj'zt. Beinn kostnaður er var-
lega áætlað 5000 kr. á ári (1500
kr. til bóka og tímaritakaupa
og 3500 kr. að meðaltali til ut-
anfara á læknaþing og til að
kynnast nýjungnm af eigin
raun). Þessi kostnaður er yfir-
leitt dreginn frá skattskyldum
tekjum. Þennan kostnað skal
reikna árlega að framhaldsnámi
loknu.
Ef þér þurfið frekari upplys-
ingar og aðstoð i sambandi við
útreikningana, biðjum vér yður
að gera svo vel að hafa sam-
band við launanefnd félagsins.
Virðingarfyllst,
f. h. stjórnar L. R.
Bergsveinn Ölafsson
(sign.)
Guðjón Hansen, cand. acl.
Ásvallagötu 56,
Revkjavík.
Reykjavík, 30. des. 1955.
1 bréfi, dags. 20. des. 1955,
hefur Læknafélag Reykjavíkur
óskað eftir, að ég gerði saman-
burð á ævitekjum lækna og
fastlaunamanna með stutt und-
irbúningsnám að baki. Skyldi
reiknað með launum lækna, lög-
regluþjóna og barnakennara,
sem tiltekin eru i bréfinu, eftir-
launum og tillit tekið til vaxta,
dánarlíkna, tiltekins kostnaðar
og skatta. Reiknað skyldi með,
að tekjum sé safnað.
1 útreikningi mínum er mið-
að við, að vísitalan sé 171, og við
núgildandi launalög (samþ. í
des. 1955). Launaflokkar eru
tilteknir í bréfi læknafélagsins,
og bef ég gert ráð fyrir árleg-
um aldursbækkunum innan
launaflokks, þótt um sumar-
vinnu námsmanna eða barna-
kennara sé að ræða. Hins veg-
ar bef ég gert ráð fyrir, að 2.
aðstoðarlæknir byrji með
lægstu laun VII. flokks, þótt
bann bafi fengið bærri laun síð-
asta sérfræðinámsárið. I fylgi-
skjali, töflum 1—3, eru laun
sýnd eins og mér reiknast þau
vera samkvæmt fyrirmælum
bréfsins.
Við útreikning tekjuskatts og
útsvars er gert ráð fvrir, að um
einhleypan mann sé að ræða.
Tekjuskattsstigi er miðaður við
kaupgjaldsvísitölu 161 og út-
svarsstigi ársins 1954 í Revkja-
vík notaður með 5% álagi. Gert
er ráð fyrir 3.000 króna frá-
drætti auk bins sérstaka kostn-
aðar og 4% af launum til lif-
evrissjóðs, áður en skattur er
á lagður. Samanlagt útsvar og
tekjuskattur er tilgreint í töfl-
um 1—3.
Miðað er við, að eftirlaun séu
tekin frá 65 ára aldri og um
einhleypan mann sé að ræða,