Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.1958, Side 15

Læknablaðið - 15.07.1958, Side 15
L Æ K N A B L A Ð I Ð 53 MálsúrsTit: Með dómi Bæjarþings Reykjavík- ur, kveðnum upp 30. maí 1956 var stefnda R. h.f. gert að greiða stefn- anda G. E-dóttur persónulega og vegna dánarbús B. E-sonar kr. 146.111.44 með 6% ársvöxtum af kr. 62.611.44 frá 22. janúar 1954 til 13. nóvember s. á. og af kr. 146.111.44 frá þeim degi til greiðsludags og kr. 11.000.00 í málskostnað. ÍJtdráttuiv 58 ára gamall maður. Vel hraustur fyrr á ævi. Verður fyr- ir miklum áverka á vinstri öxl- ina við það að bill lendir þar á honum. Sjúklingur var með þungaverk undir vinstra herða- blaði næstu dagana, en stundaði þó vinnu sína sem bilstjóri, en vinnufélagar tóku eftir, að hann var miður sín. — Á sjötta degi eftir slysið fékk hann mikinn verk i hjartastað og var næsta dag sendur á lvflæknisdeild Landspítalans þar sem hann dvaldi um 2% mánaðar tíma vegna trombosis art. coron. Við brottför af spitalanum var hann lasburða og þoldi ekk- ert á sig að reyna. Heilsu hans fór smáhrakandi og í byrjun nóv. 1954 lagðist liann i rúmið og dó úr hjartabilun 13. sama mánaðar. Réttarkrufning fór fram og í niðurstöðu skýrslunnar seg- ir: „Fannst stórt aneurysma ventriculi sinistri cordis, sem er afleiðing af því að vinstri kransæðin hefur lokazt nálægt upptökunum, og hefur þetta að lokum leitt manninn til dauða“. Fyrir dómstóli voru ekkju sjúld. dæmdar kr. 146.111.44 ásamt vöxtum, þar sem dauði sjúklings var tahnn sennileg af- leiðing slyss þess, er hann varð fyrir þ. 16/6 1953. 2. sjúkrasaga: , Maður, 30 ára, bílstjóri, rannsak- aður af mér þ. 13/3 1953. Hraustur fyrr á ævi. Þ. 9. nóv. 1952 lenti sjúk- lingur í bílslysi. Ók stór bifreið á bíl sjúklings þveran, beyglaði mjög vinstri bílhurðina, og hentist sjúk- lingur út á götu út um framdyrnar á hægri hlið bílsins. Telur sig hafa rotazt og var ruglaður dálitla stund eftir að slysið skeði. Sjúklingur hlaut mikinn áverka á vinstri síðu brjóstsins, að sögn brákuðust rif en brotnuðu ekki. Auk þess skrámað- ist hann talsvert vinstra megin. Var strax gert að skrámum hans. Var síðan slæmur af verkjum í baki og vinstri síðu og var þess vegna send- ur til meðferðar hjá gigtarlækni. Hann hefur frá þvi að hann slasað- ist þjáðst af mikilli mæði við á- reynslu og hröðum hjartslætti á- samt verk í hjartastað. Leggur verk- inn upp undir vinstra herðablað, en ekki upp í kjálkann, upp í öxl eða út í handlegg. Samtímis þessum verk í hjartastað við áreynslu fær sjúklingur samanherpandi tilkenn- ingu í hálsinn og þurrk. Hann seg- ist aldrei hafa orðið var við oían- greind einkenni fyrr en eftir slysið. Skoðun (framkvæmd fjórum mán- uðum eftir slysið): Hraustlegur, grannholda, litar- háttur eðlilegur, engin mæði, ekki sjást þandar hálsæðar. Hann er skýr í svörum, eðlilegur við að tala,

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.