Læknablaðið - 15.07.1958, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ
81
t
Itjarni Signrðsson ^firlæknir, Kcflavík
F. 30. sept. 1904. D. 1. júlí 1958.
Hann var sonur hjónanna
cand. phil. Sigurðar Pálssonar,
bónda að Auðshaugi, og konu
hans Vilborgar Þorvaldsdóttur,
en ólst upp hjá ömmu sinni,
Kristínu Jónsdóttur og siðari
manni liennar séra Bjarna Sí-
monarsyni að Brjánslæk. Naut
hann hinnar beztu umönnunar
og ástríkis hjá þessum merkis-
hjónum, og er tími var til, settu
þau hann til mennta. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Beykjavík 1924. Var
hann fyrst að hugsa um að
nema guðfræði, en sneri sér þó
strax að læknisfræði, og lauk
prófi í henni frá Háskóla Is-
lands vorið 1931.
Ég kynntist Bjarna fyrst í
Menntaskólanum, og þó aðal-
lega í Háskólanum. Ég man enn,
hvað hann gat verið innilega
kátur og glaður i hópi fárra
vina og kunningja. Þá var eins
og strokin af honum öll feimni,
og hann, sem daglega var hlé-
drægur, dulur og fáskiptinn, gat
þá leikið á als oddi. —
Að loknu prófi var hann 15.
júlí ’31 settur héraðslæknir við
Isafjarðardjúp, sem þá hét
Nauteyrarhérað, til 31. des. ’31.
Þá var skipt um nafn á hérað-
inu, og liét það næst Ögurhér-
að, en Bjarni gegndi þar störf-
um áfram til 30. okt. ’34. Hon-
um féll mjög vel í Ögri, og varð
brátt mjög vinsæll af Djúp-
mönnum. Hann sá því eftir að
fara þaðan, en öðrum lækni
hafði verið veitt liéraðið.
Hann fór þá utan til fram-
haldsnáms i Hamborg og Kaup-
mannahöfn.
Héraðslæknir á Flateyri var
liann settur 1. jan. ’36 og gegndi
þvi til 30. sept. ’36. Þá var hann
skipaður héraðslæknir i Beyk-
dælahéraði (1. okt. ’36) og sat
að Breiðumýri. Hann lét vel yf-
ir sér þar, hafði nóg að starfa,
þvi að auk læknisstarfsins i
Beykdælahéraði, vann hann oft
á sjúkrahúsinu á Húsavik með
héraðslækninum þar. Ilinn 15.