Læknablaðið - 01.09.1960, Blaðsíða 43
Lamoryl Leo er griseofulvin.
Lamoryl Leo er í töflum (1 tafla ~250 mg griseofulvin Leo).
Hverja töflu má helminga um skoru í miðju.
Farmakologi: Griseofulvin er antibioticum, sem fram kemur við
efnaskipti í ýmsum sveppum, t.d. penicillium griseofulvum, og
verður unnið úr þeim. Griseofulvin hefur antimycotisk áhrif og
dregur úr eða stöðvar vöxt ýmissa sveppa, er hrjá hornlag húða-
rinnar og valdið geta trichophytia, epidermophytia og onychomyco-
sis. - Nánar tilgreint, verkar griseofulvin á eftirtalda sveppi:
1) trichophyton concentricum, ferrugineum, mentagro-
phytes, rubrum, schoenleinii, tonsurans, verrucosum
og violaceum,
2) epidermophyton floccosum,
3) microsporum audouini, canis og gypseum.
Griseofulvin sogast frá þörmum of eftir gefinn skammt er magn
þess i blóði á hámarki 4 klukkustundum síðar. Lifrin klýfur gri-
seofulvin í óvirka hluta.
Griseofulvin safnast sérlega í nýlega homgerðar þekjufrumur og
vamar því, að hið nýmyndaða homlag sýkist af ofangreindum
sveppum. í hinu eldra og þegar sýkta homlagi teppist vöxtur sömu
sveppa. Meinsemdin læknast því að öllu jöfnu, þegar ný homlög
hafa leyzt hin eldri af hólmi.
I tilraunum á dýrum má sjá við smásjárskoðun, hversu griseofulvin
hrykkir sveppina og kryppir þá. Áhrif lyfsins ber fremur að skilja
sem mycostatisk en mycocid.
L0VENS KEMISKE FABRIK ■ K0BENHAVN