Læknablaðið - 01.09.1960, Blaðsíða 54
122
LÆKNABL A ÐIÐ
alaldur finnskra karlmanna yf-
ir þrítugt. Síðan 1940 hefur
nieðalaldur finnskra lækna
hækkað töluvert, eins og VI.
tafla sýnir, en var þó enn 1950
tveimur árum lægri.
Á þessu timabili fjölgaði
læknum í Finnlandi, og 1952
voru þeir sex sinnum fleiri en
um aldamótin, og voru þó þá
aðeins 5.1 á hverja 10.000 íbúa,
lil samanburðar við 17.7 hér á
landi, enda er þar enn mikill
læknaliörgull.
Dánartíðni lækna í Banda-
ríkjunum var rannsökuð 1926
(2) og aftur 1949—1951 (3).
í bæði skiptin reyndist dánar-
tala þeirra heldur lægri en karl-
manna almennt í sömu aldurs-
flokkum af livíta kynþættinum.
Dauðsföllin voru 1949—1952
heldur fleiri í einungis 3 af 11
sjúkdómsflokkum. Þessir flokk-
ar voru hjartasjúkdómar, syk-
ursýki og sjálfsmorð. í öllum
5 ára aldursflokkunum var dán-
artalan lægri, nema tveimur,
60—64 og 65—69, en þó var
munurinn þar svo lítill, að nær
engu nam.
Samkvæmt þessari ítarlegu
rannsókn á 10.738 læknum virt-
ist meðaldánaraldur lækna í
Bandaríkjunum vera yfirleitt
heldúr liærri en annarra manna
af livíta kynþættinum þar í
landi, og liann liafi farið hlut-
fallslega liækkandi, þar eð mun-
urinn var meiri 1949—1952 en
1926. Ekki var áfengisnevzlu né
annarrar nautnalyfjanotkunar
getið þar sem dánarorsakar.
Stafar það sennilega af því, að
ekki var unnt að kanna þar dán-
arvottorð svo margra lækna
vegna persónulegra ókunnug-
leika varðandi þessar dánaror-
sakir, sem menn hneigðust eðli-
lega mjög til að fara leynt með
og dylja.
Niðurstaða.
Meðaldánaraldur íslenzkra
lækna virtist vera mjög svipað-
ur og annarra karlmanna al-
mennt í sömu aldursflokkum
hér á landi. Virtist hann þó sízt
hafa aukizt ldutfallslega síðustu
árin. Tiltölulega fáar sambæri-
legar rannsóknir liafa verið
gerðar. Er að sjá sem læknar
á Islandi hafi verið betur á vegi
staddir að þessu leyti en t. d.
í Finnlandi, en heldur verr en
læknar í Bandaríkjunum. Ekki
er unnt að draga ákveðnar á-
lyktanir varðandi þetta, vegna
þess hve lágar tölur okkar eru.
Dauðsföll af völdum drykkju-
sýki og annarrar nautnalvfja-
notkunar voru alltið. — Eng-
inn samanburður við önnur
lönd um þetta virðist vera
tiltækilegur, þar sem þess
er ekki getið i niðurstöðum
þeirra rannsókna, sem fram
hafa farið á dánarorsökum
lækna. Fyrsta skilyrði þess, að
unnt sé að bæta slæmt ástand,
er það, að menn geri sér ástand-
ið Ijóst. Aðrar dánarorsakir