Læknablaðið - 01.09.1960, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ
143
ingu brjósks eru athuganir höf.
á næringu brjóskkjarnans, áður
en nokkur beinmyndun er liaf-
in, mjög athyglisverðar.
í þriðja þætti bókarinnar ger-
ir liöf. loks á skilmerkilegan
hátt grein fyrir 27 sjúklingum
með osteochondrosis juvenilis í
capitulum humeri, sem hann
hefur leitað uppi um gjörvalla
Svíþjóðu. Áður hafa samtals
verið hirtar athuganir á 30 til-
fellum af sjúkdómi þessum, en
sá, sem kemst næst höf. þessa
rits, lýsir einungis fjórum sjúkl-
ingum.
Bókin öll er mjög vel skrif-
uð, þýdd á góða ensku og prýdd
ágætum röntgenmyndum.
Báðar ritgerðirnar eiga sann-
arlega erindi til fleiri lesenda
i læknastétt en örfárra beina-
og röntgenlækna.
Ásm. Brekkan.
★
Brot á efri enda upphandleggs. —
Doktorsritgerð Friðriks Einars-
sonar. Lausleg þýðing úr bóka-
ummælum I The Journal of
Bone and Joint Surgery, maí
1959.
„Þetta er skilmerkilegt rit eftir
íslenzkan skurðlækni, sem reist er
á nákvæmri athugun á 302 beinbrot-
um á efri hluta upphandleggs. —
Höfðu a. m. k. sjö skurðlæknar í
Danmörku þessi beinbrot til með-
ferðar. Hefur höfundurinn rannsak-
að mál þetta frá öllum hliðum og
sett upp 64 töflur til þess að sýna
mun á árangri við meðferð með
spelkun (abduction splintage) og
því að láta handlegg hanga í stutt-
um hálsfetli (collar and cuff sling).
Fyrstu 36 blaðsíður bókarinnar
eru einvörðungu helgaðar rannsókn
á ritum um efnið (79 tilvitnanir),
en síðustu 47 blaðsíðurnar eru
sjúkrasögur 42 einstaklinga, ásamt
röntgenmyndum.
Dr. Friðrik Einarsson hefur án
efa sannað, að meðferð með stutt-
um hálsfetli og æfingum er árang-
ursbetri en spelkun. Yfirlit hans vf-
ir meðferðina er skemmtilega gagn-
ort (2Ys bls.). Nefnist það „Uppá-
stunga um tilhögun meðferðar". —
Verðskuldar yfirlit þetta lestur sér-
hvers skurðlæknis, sem fæst við
lækningu beinbrota, en einkum
þeirra lækna, sem mæla með skurð-
aðgerð eða spelkun.
Ungum læknum, er vilja kynnast
þvi, hve unnt er að rannsaka skurð-
læknisverkefni vel, er ráðlagt að
lesa bókina spjaldanna á milli.“
Höfundur þessara ummæla, L. W.
Plewes, er i ritstjórn The J. of Bone
and Joint Surgery og í stjórn Brit.
Orthopedic Association.
Ólafur Geirsson.
------•-------
FltÁ LÆKNUM:
Jón Sigurðsson, cand. med. var
settur héraðslæknir í Siglufjarðar-
héraði frá 6. apríl til 1. okt. 1960.
Jón Hannesson, læknir, hefir hinn
13. april 1960 fengið leyfi til þess
að starfa sem sérfræðingur í hand-
lækningum.
Geir Jónsson, héraðslæknir í
Reykhólahéraði, fékk lausn frá því
embætti frá 1. júlí 1960.
Þorsteinn Sigurðsson, héraðslækn-
ir í Norður-Egilsstaðahéraði, var
hinn 1. apríl 1960 settur til þess að
gegna Bakkagerðishéraði ásamt
sínu héraði þangað til öðruvísi yrði
ákveðið.