Læknablaðið - 01.09.1962, Side 43
LÆKNABLAÐIÐ
113
réttingar á margra ára mis-
fellum. 70—80% af þessum
greiðsluhækkunum fer til
þess að bæta starfsaðstöðu
lækna, en heildarlaun lækna
munu hækka um 20—30%.
5) Vinnutími lækna hefur ver-
ið óheyrilega langur og
starfsþreyta og annriki hef-
ur rýrt mjög starfsná-
kvæmni þeirra og vinnu-
gæði.
6) Iðgjaldahækkanir lijá sam-
laginu hefðu þurft að nema
um 9 krónum á mánuði fyr-
ir hvert númer, ef gengið
hefði verið að öllum óskum
lækna.
7) Sýnilegt er, að mjög auðvell
mun revnast að tryggja
þessa þjónustu á frjálsum
tryggingamarkaði með mjög
lágum iðgjöldum.
8) Læknar hefja frjálsan prax-
is 1. okt. og mun öll læknis-
hjálp verða veitt samkvæmt
lágmarksgjaldskrá án nokk-
urra grunnhækkana. Gjald
sérfræðinga mun liækka um
20%. Samt munu taxtar sér-
fræðinga vera lægri heldur
en nokkurs staðar annars
staðar tíðkast i heiminum,
þar sem frjáls praxis er.
9) Fyrirsjáanlegt er, að fjöldi
íslenzkra lækna, þeirra
yngstu og efnilegustu, undir-
hýr sig undir það að setjast
að erlendis, þar sem þeim
er vel tekið og starf þeirra
metið að verðleikum.Endaer
slíkt auðveldara og eðlilegra
fyrir lækna heldur en að afla
sér óvinsælda með því að
berjast gegn þröngsýni og
skilningsleysi fvrir þeim
starfsskilyrðum, sem ein
geta samrýmzt góðum starfs-
háttum lækna eftir nútíma
kröfum.
Bráðabirgðalög.
Stjórn L.R. liélt blaðamanna-
fund um samningsslitin að
morgni 30. sept. og skýrði mál-
ið frá sjónarmiði lækna. Á
þeim fundi var hlaðamönnum
afhent afrit af framanskráðri
greinargerð. Um hádegi þann
dag gaf ríkisstjórnin út Imáða-
birgðalög í deilu þessari, þar
sem læknum var gert að skyldu
að vinna eftir fyrri samningum
til 1. jan. 19(52, og skyldi koma
13% hækkun á greiðslur frá 1.
júlí 19(51. Þessum bráðabirgða-
lögum og forsendum þeirra
mótmælti stjórn Læknafélags
Reykjavíkur i viðtali við félags-
málaráðherra 2. okt. 1961 og
sömuleiðis i bréfi, er stjórnin
ritaði til ráðherra sama dag,
svofellt:
Reykjavik, 2. okt. ’61.
Félagsmálaráðherra,
Arnarhvoli, Reykjavík.
Með vísan til viðtals við yður í
dag, hæstvirtur félagsmálaráð-
herra, viljum vér taka fram eftir-
farandi varðandi bráðabirgðalög
dags. 30. sept. 1961, um framleng-
ingu á samningum milli læknafé-
laga og sjúkrasamlaga,