Læknablaðið - 01.06.1968, Síða 22
112
LÆKNABLAÐIÐ
Pn, 7h
2. niynd: a): Heildarmagn ,,náttúrugeislunar“; b): Geislun „af manna-
völdum“ í saina mælikvarða.
(Geislavarnarstofnun þýzka sambandslýðveldisins, 1963).
Framfarir á hinum ýnisu sviðum röntgenfræðinnar hafa
mjög aukið á notagildi röntgengreiningar og munu enn eiga eftir
að stórauka nýtingu og svið röntgenrannsókna. Röntgengreining
situr því innarlega á bekk meðal hinna ýmsu sjúkdómsgreininga-
og rannsóknaraðferða. Al' þessum sökum er sú raunin í öllum
þróuðum löndum, að röntgenrannsóknum fjölgar mjög ört. Á
Norðurlöndum cr meðalaukningin árlega talin um 10%, en hins
vegar telja menn jiar nú, að „mettunarpunktur“, J). e. sá punktur
hinnar hækkandi kúrfu, er hún tekur aðeins við eðlilegri íl)úa-
fjölgun, kunni að vera í nánd: 1 Svíþjóð jafnvel 1975 og í Nor-
egi og Finnlandi á næsta áratug þar á eftir.
Samtímis þessari raunverulegu aukningu á rannsóknum er
svið það, sem rannsóknirnar ná til, undirorpið stöðugum breyt-
ingum: Rannsóknaraðferðirnar verða nákvæmari og hnitmiðaðri,
en jafnframt breyting á þeim sjúkdómsmyndum og einkennum.
er aðgengileg verða.
Nákvæmar og hnitmiðaðar rannsóknir krefjast hins vegar
oft meiri tíma, starfsliðs og í sumum tilfellum meiri geislunar.
Samtimis verður þó að hafa í huga, að tæknilegar framfarir verða
til þess að draga úr þeim geislaskammti, sem liver einstök rann-
sókn j)arfnast.
1 þeim tilfellum t. d., þar sem skyggning getur enn þá