Læknablaðið - 01.06.1968, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ 113
B s/o ■ /.£ lorsson
/96 7 /957
£7e£o/ s/<yggn///nv/ 4/. 7 m/n 7.oó n?/n
A7eðcr/fö/or sArgggn/- S/>enr?/s og s/rs'on? 90/ /0.9 3/.s/ /Pe
^ASy/ro/y/yso/cn 253. <3 /Böó.os
fjö/c// ronnso/rno P33 V39
3. mynd: Samanburður á geislunarmagni við magarannsóknir með
dimmuaðlögun og „fluoroscopiu“ (aftari dálkur) og „sjón-
varpsskyggningu“ (fremri dálkur).
talizt skynsamlegur þáttur í rannsókn, er hún gerð um skyggni-
magnara með sjónvarpstengingu, er leyfir mjög verulega minnk-
un geislaskammts.
Á 3. mynd er gerður samanburður á geislaskömmtun við
venjulega skyggningu í sambandi við magarannsóknir. I síðari
dálkinum eru niðurstöðutölur úr einum þætti víðtækrar sænskrar
rannsóknar, sem gerð var 1957, en í fyrri dálkinum eru sambæri-
legar tölur, fengnar hér á deildinni, í athugun, sem er enn þá
á frumstigi, en vonazt er til, að megi verða nokkur grundvöllur
fyrir framtíðarrannsóknum hérlendis á sviði geislavarna við
röntgengreiningu.
Hér er um greinilegan mun að ræða, sem vissulega getur
orðið enn þá meiri við beztu tæknilegu aðstæður, cg er margfalt
meiri, séu athugaðar aðrar, umfangsmeiri rannsóknir, svo sem
hvers konar æðaþræðingar, hjartaþræðingar o. s. frv.
Með því að nota svonefnda hávoltatækni alls staðar, sem
henni verður við komið, minnka geislaskammtar við hverja rann-
sókn. Komast má hjá langvarandi skyggningum til rannsókna
á einstökum, starfrænum fyrirbærum, svo sem kyngingu, garna-
eða þvagálshreyfingu, hreyfingu hjarta eða æða o. s. frv., með
upptöku þeirra á segulband um skyggnimögnunarkerfið, sem
síðan má skoða eins oft og vill á eftir.