Læknablaðið - 01.06.1968, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ
119
Það eru vissulega ýmsir þættir, sem hafa áhrif á hin strang-
læknisfræðilegu rök fyrir röntgenrannsóknum. Meðferð sjúkl-
ingsins getur í mörgum tilfellum stjórnazt af niðurstöðum
röntgenrannsóknar, t. d. hefur niðurstaða röntgenrannsóknar
varðandi anatomiu og afstöðu stundum úrslitaþýðingu fyrir
undirbúning og framkvæmd skurðaðgerðar.
Þegar endurteknar röntgenrannsóknir eru framkvæmdar í
þeim tilgangi að kanna áhrif lyl'ja eða annarrar meðferðar, falla
þær undir klíniskar vísindarannsóknir, og verður vitanlega að
taka fullt tillit til geislavarnarsjónarmiða við undirbúning og
framkvæmd slíkra vísindarannsókna.
Annar þáttur, sem mjög oft hefur bein áhrif á hina læknis-
fræðilegu indicatio fyrir röntgenrannsóknum, er tíminn. Að vísu
kemur tímaþátturinn oft mjög nærri því að teljast hrein læknis-
fræðileg indicatio. 1 bráðum sjúkdómstilfellum getur röntgen-
rannsóknin verið sú aðferð, sem á skemmstum tíma veitir nægar
upplýsingar.
Allt frá hinu augljósa dæmi um áhrif tímans á skyndilega
rannsóknarákvörðun hafa öll stig tímafaktorsins áhrif. Við hinn
enda þeirrar keðju koma svo samverkandi úhrif tíma og rúms, t.
d. í formi nýtingar sjúkrarúma og annarrar aðstöðu sjúkrabúss.
Það rými, sem fyrir hendi er, hlýtur að nýtast þeim mun
betur, sem sá tími, er fer til rannsóknar hvers einstaks sjúklings,
er styttur, og á þessu sviði geta e. t. v. röntgenrannsóknaraðferðir
sparað mestan tíma.
Annar þáttur, sem ol’t er nátengdur hinni strang-læknisfræði-
legu indicatio, er umhyggjan fyrir álaginu á sjúklinginn. Vmsar
rannsóknaraðferðir, svo sem berkju- eða magaspeglun, kunna að
vera fyrir hendi; þehn er þó aðeins hægt að beita við takmark-
aðan fjölda sjúklinga, en röntgenrannsókn getur leyst sjúkdóms-
greininguna af hendi.
Einn þáttur, sem að vísu er laust tcngdur hinum raunveru-
legu „indicationum“, er kostnaðurinn. 1 þeim löndum, þar sem
sjúklingurinn verður sjálfur að standa straum af allri sjúkra-
húsvist sinni, er nauðsynlegt, að dvalartími á sjúkrabúsi sé tak-
markaður eins og kostur er á, en þar er þá oft gripið til röntgen-
rannsókna sem fljótvirkustu leiðar, þar sem beita mætti öðrum
aðferðum.
Stundum verður þess vart, að tillit til kostnaðar snúi þess-
ari ákvörðunartöku við á furðulegan hátt með því að velja rann-
sóknaraðferðir, eins og t. d. handlækniskönnun (exploratio) í til-