Læknablaðið - 01.06.1968, Síða 57
I.ÆKNABLAÐIÐ
135
blóðgjöf, 2) blóð safnast fyrir í brjóstholi, eftir að tæmt hefur
verið tvisvar með brjóstholsástungu og 3) áframhaldandi blæð-
ing er frá sári á brjóstvegg. 1 slíkum tilfellum þarf að opna brjóst-
hol (tlioracotomia) og gera við áverkann og stöðva blæðing-
una.
C. Opnir áverkar
Opin sár (sucking wounds) á brjóstvegg eru oftast afleiðing
af sprengingu eða byssuskoti. Það þurfa ekki að vera áverkar
á líffærum inni í brjóstholi. Soghljóðið, ])egar loftið fer inn í
eða út úr brjóstholinu, leiðir athyglina að slíkum áverka. Lungað
fellur saman, og þrýstingurinn í brjóstholinu eykst sjúku megin,
miðmætið færist til ósködduðu hliðarinnar og hindrar eðlilega
útþenslu heilbrigða lungans.
Sé opið á brjóstveggnum minna að þvermáli en þvermál
barkans, þolir sjúklingurinn venjulega afleiðingarnar. Sé opið hins
vegar stærra í þvermál en barkinn, fer meira loft inn í brjóst-
holið í gegnum sárið en fer inn í lungað um barkann. Afleið-
ingin verður sú, að við innöndun fellur lungað saman, og loftið
úr því fer til lungans hinum megin. Við útöndun verður svo
þessi gangur á hinn veginn. Þannig myndast „öfug“ (paradoxical)
öndunarstarfsemi og ófullnægjandi loftskipti, sem leiðir fljótlega
til dauða.
Slíkiun sárum þarf að loka sem fyrst og á fljótlegan hátt,
t. d. með því að klemma þau saman og halda þeim þannig eða
festa þau saman með heftiplástri til bráðabirgða. Við fyrsta
tækifæri þarf síðan að tæma loftið lir brjósthoiinu og leggja inn
brjóstholskera til að létta á þrýstingnum. Eftir að létt hefur
verið á öndunarerfiðleikunum á þennan liátt, svo og losti, ef það
hefur verið til staðar, er tímabært að gera við sjálft sárið, og
þegar aðstæður leyfa gera brjóstbolsskurð og kanna hugsanlegan
áverka á líffærum í brjóstholinu og fjarlægja aðskotahluti, ef þeir
eru fyrir hendi.
Litla málmhluti þarf ekki að fjarlægja, nema þeir liggi í
hjartahólfi. Aðskotahluti, s. s. fatadruslur og annað, sem vafa-
laust eru sýklaberandi, þarf að fjarlægja vegna ígerðarhættu
(abscessus, empyema). Stóra aðskotahluti í brjóstholi, sem geta
skaðað líffærin, þarf að fjarlægja, en ekki endilega þegar í stað.
Mikilvægara er að leggja inn brjóstholskera og halda lunganu
vel útþöndu. Jafnvel innihald frá vélinda og barka eða barka-
kvislum gefa ekki ástæðu til að flýta aðgerð meira en svo, að