Læknablaðið - 01.06.1968, Page 64
140
LÆKNABLAÐIÐ
2. sjúklingur: Hj. H. no. 1216/67.
Sjúklingur er 21 árs gamall karlmaður, sem kemur á deildina um
tveimur klst. eftir, að hann slasaðist í bifreiðaárekstri.
Við komuna hefur sjúklingur fulla meðvitund og er sárþjáður.
Hann kvartar um sáran verk í hægri öxl og hægra megin í brjóstholi.
Við rannsókn sjást ekki ytri áverkar. Húðlitur er fölur. Hægri
brjósthelft hreyfist minna en sú vinstri og öndunarhljóð eru minnkuð
yfir hægra lunga. Nokkurt loft er undir húð hægra megin á brjóst-
kassa.
Röntgenmynd af brjóstkassa og lungum sýnir brot á 2.—4. rifi
h. megin aftan til, en lítil tilfærsla á brotendum. Einnig er h. herða-
blað brotið. Nokkurt loftbrjóst er h. megin, lungað samanfallið að
einum fjói'ða. Ekki sést vökvi í bi’jóstholinu (3. röntgenmynd). Ekki
var talin ástæða til að leggja inn kera að svo stöddu.
Næsta dag er líðan sjúklings verri. Öndun er hraðari og grynnri
(24—30/mín.), púls hraður og linur (115—120/mín.) og léttur húð-
blámi í andliti. Loftið undir húðinni á brjóstkassanum hefur aukizt.
Röntgenmynd sýnir nú alveg samanfallið hægra lunga og nokkra
tilfærslu á miðmæti yfir til vinstri. Þá sést og, að barki er v. megin
miðlínu (4. röntgenmynd).
Nú var brýn ástæða til þess að leggja inn kera, og var það gert
í staðdeyfingu. Mikið loft tæmdist út úr brjóstholinu og 200—300 ml
af blóði, og létti sjúklingi strax mikið. Fyrstu 15—20 mínúturnar var
3. röntgenmynd: Hj. H.