Læknablaðið - 01.04.1970, Blaðsíða 44
karlmaður
Sjúklingurinn er
60 ára gamall
Fyrir þremur dögum fékk
hann inflúenzu þá, sem er að
ganga. Sjúkdómseinkenni voru
eins og venjulega hiti, eymsli
í bol og útlimum og þurr hósti.
Hann var lagður inn i dag
með háan hita. Húðin er rjóð
og þurr, og hann hóstar upp
hráka, sem er svolítið blóðlit-
aður. Fjöldi hvitra blóðkorna
er aukinn, og á röntgenmynd
sést skuggi við hlið (hilus) á
báðum lungum.
Svars við ræktun og næmis-
prófi getur þurft að biða i
allt að tvo sólarhringa.
Hvaða meðferð munduð Þei
veiti sjúklingnum þegai
í upphafi?
Við alvarlega lungnabólgu af völdum stafýlókokka er nauðsynlegt að
gefa viðeigandi sýklalyf hið fyrsta. Ef grunur leikur á því, að lungna-
bólga sé af völdum stafýlókokka, er rétt að byrja með lyf, sem verkar
á allar venjulegar gram-jákvæðar bakteríur.
ORBENIN á sérstaklega við, þegar verið er að hefja meðferð við ígerð-
um af völdum gram-jákvæðra baktería, t. d. lungnabólgu, áður en
svar við næmisprófi hefur borizt. Þetta á ekki sízt við, þegar lungna-
bólga kemur í kjölfar inflúenzu eða þegar ígerðin byrjar á spítala. í
þessum tilvikum eru einmitt mestar líkur til þess, að penicillínasa-
myndandi stafýlókokkar séu að verki, Ef síðar kemur í ljós, að ígerðin
stafar af pneunmókokkum eða streftókokkum, skiptir það litlu máli,
þar eð ORBENIN verkar mjög vel á þessar bakteríur.
ORBENIN (kloxacillínnatríum) er fram komið og framleitt
hjá Beecham Research Laboratories, Brentford, Englandi,
sem eru brautryðjendur í framleiðslu hálfsamtengdra
penicillínafbrigða.
Umboðsmaður er G. Ólafsson hf., Aðalstræti 4, Reykjavík,
sem veitir allar frekari upplýsingar.