Læknablaðið - 01.06.1971, Blaðsíða 31
LÆKNABLAÐIÐ
93
Reikniiigar Reikninga félagsins rekstrarárið 1968 (fskj. 1) las Stefán
félagsins Bogason, gjaldkeri, og skýrði þá einnig reikninga Lækna-
blaðsins (fskj. 2) og styrktarsjóðs lækna (fskj. 3). Voru
allir þessir reikningar samþykktir samhljóða. Samþykkt var að taka
fjárhagsáætlun næsta starfsárs fyrir á fundinum næsta dag, þar sem
þá skyldi ræða árgjöld. Minnzt var á erfiðleika við að innheimta ár-
gjöld hjá sumum svæðafélögum. Gjaldkerinn upplýsti, að þau hefðu
innheimzt 100% hjá læknum í Reykjavík, en annars staðar hafði
gengið erfiðlega að innheimta þau. Ræddur var sá möguleiki að
heimila gjaldkera að innheimta árgjöldin hjá vinnuveitendum lækna.
Þótti það heppilegri leið en taka félaga af skrá L.í. vegna vanskila.
Lagabreytingar Eftirfarandi tillögur um breytingar á lögum L.í.
höfðu verið sendar með fundarboði og voru teknar
til umræðu:
a) Breytingartillaga á lögum L.í. frá stjórn félagsins:
4. gr., liður d, orðist svo: „Erlendir læknar, sem starfa að lækn-
ingum hér á landi.“
4. grein, liður e (ekki áður): „Erlendir læknar, sem eigi starfa
að lækningum hér á landi, og skal þá leita samþykkis aðalfundar
um inngöngu og gjaldskyldu.“
12. grein: „Læknafélag íslands semur um kaup og kjör lækna
í umboði svæðafélaganna. Fjórir nefndarmanna eru kosnir á aðal-
fundi L.f. til tveggja ára í senn.“
„Stjórn L.í. tilnefnir formann nefndarinnar. Kosnir nefndarmenn
skulu. .. “ o. s. frv. óbreytt til enda.
b) Tillaga til lagabreytinga frá Læknafélagi Akureyrar:
Síðasta málsgrein 9. gr. hljóði svo: „Stjórnarmenn má endurkjósa,
en þó með þeim takmörkunum, að enginn sitji lengur en þrjú kjör-
tímabil í sama embætti.“
c) Tillaga til lagabreytingar frá Læknafélagi Vestfjarða:
Síðasta málsgrein 9. gr. laga L.í. orðist þannig: „Stjórnarmenn
má aðeins kjósa í sama embætti tvö kjörtímabil.“
d) Tillaga til breytinga á lögum L.í. frá Daníel Daníelssyni:
A eftir 5. málsgrein 9. gr. komi: „Tillögur, sem lagðar eru fyrir
aðalfund og fela í sér verulegar breytingar á stöðum og starfsskil-
yrðum einstakra lækna, læknahópa eða læknastéttarinnar í heild,
hljóti því aðeins gildi sem stefnuyfirlýsing L.Í., að þær hafi hlotið
samþykki á tveim aðalfundum í röð, enda hafi á milli fundanna farið
fram rækileg skoðanakönnun meðal læknastéttarinnar allrar um efni
þeirra.
Tvo þriðju hluta atkvæða þarf til endanlegs samþykkis slíkra
tillagna. Þó geta slíkar tillögur aldrei verkað aftur fyrir sig, þannig
að þær geti haft áhrif til breytinga á stöðum lækna, sem þegar eru
ráðnir til starfs, er tillögurnar hljóta samþykki, nema til komi sam-
þykki þeirra sjálfra þar um.“
Tillögur stjórnar L.í. um breytingar á 4. og 12. gr. félagslaga
voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum eftir nokkrar um-
ræður.