Læknablaðið - 01.06.1971, Blaðsíða 53
LÆ KNABLAÐIÐ
107
dreift fjölrituðum gögnum um þetta mál. Kvaddi sér hljóðs Daníel
Daníelsson, læknir á Húsavík, og sagðist hingað vera kominn til þess
að leita fulltingis Læknafélags íslands vegna skipta hans við atvinnu-
rekanda sinn, stjórn sjúkrahússins á Húsavík. Daníel ræddi hina svo-
kölluðu Húsavíkurdeilu allt frá byrjun og þar til, að honum barst
bréf, dags. 24. júní 1969, er honum var sagt upp stöðunni frá 1. júlí
1969. Skýrsla Læknafélags íslands lá fyrir fjölrituð á fundinum, og
gerði Daníel ýmsar athugasemdir við þá skýrslu. Lauk hann máli
sínu með því að segja, að hann liti á Læknafélag íslands sem sitt
stéttarfélag, sem hann leitaði nú til, þegar honum hafi verið sagt upp
starfi sínu.
Á eftir Daníel tók til máls Ingimar Hjálmarsson, læknir á Húsa-
vík, og skýrði hann málið frá sjónarmiði sjálfs sín og Gísla Auðuns-
sonar, frá því að þeir komu til Húsavíkur og fram á þennan dag.
Þeir, er tóku til máls um þetta mál, voru Brynleifur H. Steingríms-
son, Arinbjörn Kolbeinsson, Daníel Daníelsson og Gísli Auðunsson.
Brynleifur flutti í lokin dagskrártillögu, sem hljóðaði þannig: „Þar
sem þegar hafa komið fram óskir um, að hin svokallaða Húsavíkur-
deila verði lögð fyrir gerðardóm L.Í., tekur læknaþingið fyrir næsta
mál á dagskrá.“ Dagskrártillagan var borin upp og var felld með
níu atkvæðum gegn sjö.
Fundi var síðan frestað.
KVÖLDFUNDUR L.í. VEGNA LÆKNAÞINGS 1969, 12. SEPT.
Fundur var settur af formanni L.Í., Arinbirni Kolbieinssyni, kl.
20.50. Fundarritari var Einar Baldvinsson.
Bauð formaður gest fundarins, Dr. Malcom Thompson frá New-
castle-upon-Tyne (Royal Victoric Hospital), velkominn. Flutti Dr.
Thompson erindi um meðferð á arthritis rheumatoides. í byrjun
minnti hann á, að orsök sjúkdómsins væri óþekkt og fullkomin lækn-
ing ekki fyrir hendi. Gerði hann þessu yfirgripsmikla og umdeilda
verkefni góð skil. Lagði hann mikla áherzlu á endurhæfingu sjúklinga
með arthritis rheumatoides.
Eftirtaldir læknar lögðu spurningar fyrir fyrirlesarann: Sigmund-
ur Magnússon lagði fram þá spurningu, hvers vegna a.r.-sjúklingar
með eðlilegt járnmagn í beinmerg, en með blóðskort (anæmiu), fengju
oft góða svörun eftir stóra skammta af járni í bláæð. Jóhann Lárus
Jónasson skýrði frá brezkri rannsókn, þar sem sýnt var fram á, að
blokk væri á milli reticulo-endothelial-cella og normoblasta hjá sjúkl-
ingum með a.r. og annarra sjúklinga með króníska sjúkdóma. Hannes
Finnbogason spurði um reynslu fyrirlesara af osmic acid. Jón Þor-
steinsson spurði, hvort meðferð á sero-pcsitivum a.r. væri frábrugðin
meðferð á sero-negativum a.r., enn fremur, hvort sjúklingar með háa
þynningu (titer) væru meðhöndlaðir á annan hátt en þeir, sem hefðu
lága þynningu. Arinbjörn Kolbeinsson spurði um áhrif loftslags á
rheumatoid arthritis. Jón Þorsteinsson benti á, að Svisslendingar not-
uðu ísbakstra í stað hitameðferðar. Dr. Thompson svaraði fyrirspurn-
um.
Fundi var slitið kl. 2S.00.