Læknablaðið - 01.06.1971, Blaðsíða 28
90
LÆKNABLAÐIÐ
LÆKNABLAÐIÐ
57. árg. Júní 1971
rCLAGSPRENTSMIÐlAN H F.
Hjartasjúklingar verða
a5 fá skjótari flutniiíg
á sjúkrahús
Algengasta dánarorsök hér-
lendis, seni og í öðriun menn-
ingarlöndum, er vegna krans-
æðasjúkdóma. Reynsla erlendis
er sú, að meir en hehningur
dauðsfalla aí' völdum kransæða-
stíflu verður áður en sjúkling-
ur kcmst á sjúkrahús, og er lík-
legt, að svo sé einnig hér á
landi. Þá hefur komið í Ijós, að
af öllum þeim, sem deyja á
fyrstu tólf máuðum, eftir að
þeir liafa fcngið kransæðastíflu,
deyja á fyrstu 3V& klst., eft-
ir að einkenni hefjast. Er ná-
kvæm fylgni með tíðni dauðs-
falla fyi'stu klukkustundirnar
eftir upphaf einkenna og tíðni
hættulegra hjartsláttartruflana.
Nú hefur tekizt að fækka dauðs-
föllum hjá kransæðasjúkling-
um, vistuðum á hjartagæzlu-
deildum sjúkrahúsa, um helm-
ing, með því að koma í veg fyr-
ir hjartsláttartruflanir.
Vandamálið er því þetta:
Flestir deyja, áður en þeir kom-
ast á sjúkrahús, væntanlega
af hjartsláttartruflunum, sem
unnt væri að lækna. Til þess að
lcysa þennan vanda liafa sprott-
ið upp um allan heim svonefnd-
ar hreyfanlegar hjartagæzlu-
deildir, Mobile coronary care
units. Hjartabíll, úthúinn
hjartarafsjá, rafloststæki og öll-
um lyfjum til að vinna bug á
hjartsláttartruflunum, fer hcim
til sjúklings, og þannig kemst
liann í hjartagæzlu þegar á
heimili sínu. Erlendis er þessu
á allan veg háttað. Ymist fer
læknir með bílnum eða þjálfuð
hjúkrunarkona, en sums staðar
sjá sjúkraflutningamenn um
alla meðferð, en eru í símsam-
bandi við hjartagæzludeild
sjúkrahúss. Árangur er alls
staðar talinn góður, mörgum
stönzuðum lijörtum komið af
stað, en það, sem mestu máli
skiptir, er, að fyrirrennarar
hættulegra hjartsláttartruflana
eru meðhöndlaðir þegar í upp-
hafi, og þannig komið í veg
fyrir hjartastöðvun.
Bæði læknum og leikmönn-
um, sem hafa séð þessa hjarta-
bíla erlendis, dylst ekki, hve
veigamikið mál er hér á ferð-
inni. A Reykjavíkursvæðinu
deyja tugir manns árlega, áður
en þeir komast á sjúkrahús.
Sama máli gildir um lands-
hyggðina.
Enginn hjartabíll er til á
landinu og ekki einu sinni
bjartarafsjá og rafloststæki
knúin rafhlöðu (til notkunar i