Læknablaðið - 01.06.1971, Blaðsíða 36
98
LÆKNABLAÐIÐ
af ráðstöfunum vegna neyðarástands, sem kann að skapast í dreifbýli
vegna skorts á nauðsynlegri læknisþjónustu.
Gert er ráð fyrir, að framlög þessi verði einkum notuð til þess
að greiða ferðakostnað lækna eða sjúklinga með hverju því farartæki,
sem þörf er á hverju sinni, eða annan kostnað, sem kann að reynast
nauðsynlegur til þess að halda uppi læknisþjónustu.“
Mál frá lækna- Fundarstjóra hafði borizt bréf frá fól.ki í Húsavíkur-
þingi héraði, þar sem fulltrúar læknaþings voru hvattir
til að styðja málstað Daníels Daníelssonar, svo að
hann „megi ná rétti sínum“ gegn stjórn sjúkrahúss Húsavíkur, eins og
segir í bréfinu.
Fundurinn samþykkti að vísa þessum bréfum sem og öðrum liðum
Húsavíkurdeilunnar til stjórnar L.í.
Síðan var tekin fyrir eftirfarandi fyrirspurn frá Daníel Daníels-
syni:
„Þar sem sá einstæði atburður hefur gerzt, að læknaþing hefur
með samþykki frávísunartillögu hindrað umræður og afgreiðslu tveggja
mála, er fyrir þinginu lágu, áður en lokið var umræðu um fyrra
málið, beini ég þeirri fyrirspurn til þingsins, hvort numin hafi verið
úr gildi þau ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga L.Í., að verksvið stjórnar
félagsins sé m. a. að standa vörð um hag einstaklinga innan stéttar-
innar — eða með öðrum orðum, hvort L.í. sé stéttarfélag eða ekki.“
Fyrirspurn vísað til stjórnar. Vegna þessarar fyrirspurnar tóku
til máls Gunnlaugur Snædal, Daníel Daníelsson, Arinbjörn Kolbeins-
son og Björn Önundarson, sem bar fram þessa tillögu:
„Þar eð L.í. hlýtur að líta það alvarlegum augum, að einum af
meðlimum þess hefur verið vikið úr yfirlæknisstöðu án þess að fyrir
liggi upplýsingar um, að hann á nokkurn hátt hafi brotið af sér í
starfi, samþykkir aðalfundur L.í. að fela stjórn félagsins að mótmæla
þegar í stað þessum aðgerðum, og með skírskotun til 1. mgr. 11. gr.
laga L.í. að veita þeim, er hér hefur verið misrétti beittur, allan þann
stuðning, er félagið getur í té látið.“
Til máls tóku Sigmundur Magnússon og Arinbjörn Kolbeinsson,
og bar hinn síðarnefndi fram dagskrártillögu svohljóðandi:
„Þar sem máli því, er tillagan um mótmæli á uppsögn Daníels
Daníelssonar fjallar um, hefur í heild verið vísað til stjórnar L.í. og
lögfræðings félagsins, tekur fundurinn fyrir næsta mál á dagskrá."
Dagskrártillagan var samþykkt með 11 atkvæðum gegn einu og
málinu þannig vísað til stjórnar L.í.
Stjórnarkjör Þá fór fram stjórnarkjör, og voru eftirtaldir menn kosn-
ir með samhljóða atkvæðum. Formaður Arinbjörn Kol-
beinsson til tveggja ára, ritari Friðrik Sveinsson til eins árs, gjaldkeri
Guðmundur Jóhannesson til eins árs, en fráfarandi gjaldkeri, Stefán
Bogason, hafði eindregið beðizt undan endurkjöri. Varamenn í stjórn
voru kjörnir Brynleifur H. Steingrímsson til tveggja ára, Guðsteinn
Þengilsson til tveggja ára, en Baldur Sigfússon til eins árs.