Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1971, Page 54

Læknablaðið - 01.06.1971, Page 54
108 LÆKNABLAÐIÐ Laugardaginn 13. sept. var læknabingi fram haldið í Domus Medica kl. 14.30. Formaður L.í. setti þingið og tilnefndi Gunnlaug Snædal þingforseta. Hann kynnti gest þingsins, Dr. F. Christie, for- mann nefndar, sem undirbýr hópsamvinnu lækna í Noregi. Dr. Christie hélt erindi: Gruppepraksis i Norge set ut fra sosial- medisinske og ökonomiske aspekter. fsak G. Hallgrímsson flutti erindi eftir Örn Bjarnason: Lækna- miðstöðvar á íslandi, þar sem stiklað var á því stærsta um lækna- skort í dreifbýlinu og hvar væri líklegastur grundvöllur læknamið- stöðva og samstarís lækna. Síðan flutti ísak erindi um heimilislækn- ingar, einkum í Reykjavík, og stöðu heimilislækninga nú á dögum. Baldur Sigfússon gerði grein fyrir störfum nefndar á vegum L.Í., sem fengið var það verkefni að gera tillögur um staðsetningu og rekstur læknamiðstöðva. Bráðabirgðaniðurstöður nefndarinnar eru þessar: 1. Reykjavík, 2. Akranes, 3. Borgarnes, 4. Ólafsvík, 5. Stykkis- hólmur, 6. Patreksfjörður, 7. ísafjörður, 8. Hvammstangi, 9. Blönduós, 10. Sauðárkrókur, 11. Siglufjörður, 12. Dalvík, 13. Akureyri, 14. Húsa- vík, 15. Þórshöfn (með fyrirvara), 16. Egilsstaðir, 17. Neskaupstaður, 18. Eskifjörður, 19. Höfn, 20. Vík, 21. Vestmannaeyjar, 22. Hella, 23. Selfoss, 24. Keflavík. Flutti Baldur greinargerð til stuðnings þessum tillögum. Páll V. G. Kolka sagði, að fyrir 25 árum hefði hann stungið upp á því, sem hann kallaði heilindisstöðvar. Árið 1953 starfaði hann í þriggja manna nefnd, sem gera átti tillögu um, heilbrigðis- stöðvar, sjúkrahús og læknamiðstöðvar. Nefndarálit þeirra komst aldrei til umræðu á þingi. Benti hann á þann möguleika, að héraðs- hjúkrunarkonur væru á þeim stöðum ýmsum, sem læknar fást ekki til að sitja lengur. Gæti það bætt úr verulegri þörf. Arinbjörn Kolbeinsson gerði nokkrar fyrirspurnir til F. Christie, sem hann svaraði. je Kjartan Ólafsson, Keflavík, ræddi um samvinnu og hópsamvinnu dreifbýlislækna og möguleika þeirra til vinnu á spítölum, sem hann taldi næstum enga; jafnvel að störf í strjálbýli minnkuðu möguleikana á sjúkrahússtörfum. Hann taldi mikilvægt, að þessu yrði breytt. Læknaþingi frestað til sunnudags 14. sept. Sunnudaginn 14. sept. var læknaþingi fram haldið kl. 10.00. Fundarstjóri var kjörinn Gunnlaugur Snædal. Húsavíkurmál var aftur tekið á dagskrá. Daníel Daníelsson fór fram á, að rædd yrðu í tvennu lagi reglu- gerðin sem slík og samskipti Daníels við deiluaðila á Húsavík. Fundar- stjóri lofaði að gera það, eftir því sem unnt væri. Daníel taldi ósamræmi vera í reglugerð sjúkrahússins á Húsavík; sagði hann 1. gr. stangast á við allar hinar. Daníel gagnrýndi starfs- aðgerðir stjórnar L.í. við setningu reglugerðarinnar; í fyrsta lagi að Ijá máls á, að hún yrði sett, i öðru lagi að leita ekki álits lögfræðings síns við setningu hennar. Daníel taldi, að með reglugerðinni væri ákvörðunarréttur um læknisfræðileg efni fluttur úr höndum lækna í hendur leikmanna. Brynleifur H. Steingrímsson taldi, að reglugerðin og setning henn-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.