Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1971, Síða 56

Læknablaðið - 01.06.1971, Síða 56
110 LÆKNABLAÐIÐ dómur fjalli um sum atriði í hinu svonefnda Húsavíkurmáli og önnur atriði þess þarfnast nánari athugunar, felur læknaþing stjórn L.í. öll frekari afskipti af málinu í samráði við lögfræðing félagsins, en málið verði tekið af dagskrá þingsins.“ Var tillagan samþykkt með 26 atkv. gegn 7. Tók fundarstjóri málið af dagskrá og tók fyrir önnur mál. ÖNNUR MÁL Fundarstjóri sagði frá bréfi frá aðilum á Húsavík til stuðnings Daníel Daníelssyni. Fundarstjóri vísaði þessu erindi til aðalfundar. Þá var lesið bréf frá Félagi yfirlækna, þar sem sagt er frá fundar- samþykkt um samningu reglugerðar á Húsavik og um brottvikningu Daníels Daníelssonar úr starfi, og var þar hvoru tveggja mótmælt. Bréfið er svohljóðandi: „Fundur í Félagi yfirlækna, haldinn 10. sept. 1969, lítur svo á, að stjórn Læknafélags íslands hafi með aðild sinni að samningu reglugerðar um störf lækna við sjúkrahúsið í Húsavík stuðlað að því, að hættulegt fordæmi væri gefið í skipun sjúkrahúsmála, sem stefni að því að færa starfsskipun á sjúkrahúsi úr höndum lækna í hendur leikmanna. Félag yfirlækna bendir í því sambandi á ummæli lögfræðings læknafélaganna á fundi L.f. 19. maí 1969. f. h. Félags yfirlækna, Gunnar Guðmundsson form. (sign.). Haukur Kristjánsson ritari (sign.) Fundur í Félagi yfirlækna, haldinn 10. sept. 1969, mótmælir harð- lega brottvikningu Daníels Daníelssonar úr starfi yfirlæknis við Sjúkrahús Húsavíkur. Telur félagið, að forsendur skorti fyrir henni, þar sem fyrir liggur yfirlýsing frá landlæknisembættinu, að yfir- læknirinn hafi á engan hátt brotið af sér í starfi sínu. Félagið lítur atburð þennan mjög alvarlegum augum og lýsir jafnframt yfir stuðningi sínum við Daníel Danielsson, f. h. Félags yfirlækna, Gunnar Guðmundsson form. (sign.). Haukur Kristjánsson ritari (sign.)“ Daníel Daníelsson kvaddi sér hljóðs og gerði fyrirspurn um rétt félagsmanna til að leita stuðnings stjórnar til að leita réttar síns. Fundarstjóri mæltist til skriflegrar fyrirspurnar, og var hún lögð fram og vísað til aðalfundar. Fyrirspurnin er eftirfarandi: „Þar sem sá einstæði atburður hefur gerzt, að læknaþing hefur með samþykkt frávísunartillögu hindrað umræður og afgreiðslu tveggja mála, er fyrir þinginu lágu, áður en lokið var umræðu um fyrra málið, beini ég þeirri fyrirspurn til þingsins, hvort numin hafi verið úr gildi þau ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga L.Í., að verksvið stjórnar félagsins sé m. a. að standa vörð um hag einstaklinga innan stéttar- innar — eða með öðrum orðum, hvort L.í. sé stéttarfélag eða ekki. Daníel Daníelsson.“ Lögð var fram tillaga frá Þórði Oddssyni og Halldóri Halldórs- syni um könnun á samstarfsfyrirkomulagi lækna í U.S.A. „Læknaþing samþykkir, að stjórn L.í. sé falið að gera athugun á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.