Læknablaðið - 01.10.1972, Side 12
102
LÆKNABLAÐIÐ
reglugerðar, þá verði að stórum mun auðveldað starf heilbrigðisnefnda
og starf héraðslækna í þessu sambandi.
Þá hefur ráðuneytið gefið út nýja reglugerð um sóttvarnir sam-
kvæmt sóttvarnalögum og er sú reglugerð í samræmi við alþjóða-
reglugerð á þessu sviði, sem gefin var út á árinu 1970.
2. LÆKNASKIPAN
Eins og fyrr sagði var á síðasta þingi samþykkt breyting á gild-
andi læknaskipunarlögum, en ekki í þá átt að breyta læknaskipun-
inni sem slíkri, heldur vegna þeirra atriða, sem ég hef talið hér að
framan. Merkasta framlag ráðuneytisins í sambandi við læknaskipun-
ina er það frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu, sem lagt var
fram fyrir lok síðasta þings. Hér er um að ræða allviðamiklar breyt-
ingar á lögum um sjúkrahús, læknaskipunarlögum, heilsuverndarlög-
um og lög um læknishéraðasjóði. Drög að þessu lagafrumvarpi lágu
þegar fyrir á vorinu 1971 og síðan var unnið að nýju í ráðuneytinu
að þessu frumvarpi í samræmi við breytingartillögur, sem fram höfðu
komið frá fjölda mörgum aðilum. Ekki er ástæða til að rekja efni
þessa frumvarps hér; það hefur verið kynnt mjög rækilega, og ég
geri ráð fyrir, að flestir, sem hér eru staddir, hafi kynnt sér það, og
að þessi fundur láti í ljós álit sitt á efni þess.
Það er ætlun ráðuneytisins að frumvarpið verði flutt óbreytt eins
og það var lagt fram í vor, í upphafi næsta þings, og gengið verður úr
skugga um vilja Alþingis til þess að taka ákvörðun um efni frum-
varpsins sem fyrst á þinginu.
3. EMBÆTTI LANDLÆKNIS OG
LÆKNARÁÐ ÍSLANDS
Engin breyting hefur orðið á embætti landlæknis við tilkomu hins
nýja ráðuneytis. Landlæknir er fyrst og fremst faglegur ráðunautui
ráðuneytis og Alþingis í sambandi við heilbrigðismál og hefur á hinn
bóginn ýmis réttindi og skyldur samkvæmt lögum, reglum og venjum
er um embættið hafa skapazt.
í hinu nýja heilbrigðisfrumvarpi, sem minnzt var á áður, er gert
ráð fyrir, að embætti landlæknis haldist óbreytt, og er það í samræmi
við mjög ákveðinn yfirlýstan vilja læknasamtakanna um þetta.
4. SJÚKRAHÚS OG HEILSUHÆLI
Af fyrrverandi ríkisstjórn hafði verið tekin ákvörðun um það að
stefna að því að byggja upp á Akureyri sjúkrahús, sem í flestu tilliti
gæti jafnazt á við sjúkrahús Reykjavíkur-svæðisins. Áfram hefur verið
haldið á þessari braút, og á vegum ráðuneytisins er nú unnið að áætlun
um sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir, og þá gert ráð íyrir því, að skipu-
leggja sjúkrahúsþjónustu út frá tveimur meginkjörnum, þ. e. Reykja-
vík annars vegar og Akureyri hins vegar. Unnið er nú að könnun á
vistunarrýmisþörf fyrir landið allt fyrir hinar ýmsu heilbrigðisstofn-
anir, og verður stefnt að því að leggja fyrir ríkisstjórn staðal fyrir