Læknablaðið - 01.02.1973, Qupperneq 37
LÆKNABLAÐIÐ
19
MINNING
Prófessor dr. med.
SNORRI HALLGRlMSSON
F. 9. okt. 1912.
D. 27. jan. 1973.
Prófessor Snorri Hallgrímsson fæddist á
Hrafnsstöðum í Svarfaðardal og voru for-
eldrar hans Hallgrímur Sigurðsson bóndi
þar og kona hans Þorláksína Sigurðar-
dóttir. Snorri lauk stúdentsprófi frá Akur-
eyri 1932. Læknisnámi lauk hann við Há-
skóla íslands vorið 1936. Hann stundaði
framhaldsnám í Danmörku og þó einkum
í Svíþjóð og nam bæklunarlækningar auk
þess, sem hann gaf sig að skapnaðarað-
gerðum. Doktorsritgerð sína, Studies on
reconstructive and stabilizing operations
on the skeleton of the foot, varði hann
við Karolínsku stofnunina árið 1943. Sér-
fræðingsviðurkenningu í handlækningum
og bæklunarsjúkdómum hlaut Snorri árið
1948. Hann gerðist sjálfboðaliði Svía í
Finnlandsstyrjöldinni 1939-1940. Snorri
Hallgrímsson sneri heim til starfa 1943.
Starfaði hann sem heimilislæknir til 1947,
en síðan sem sérfræðingur fram til árs-
ins 1962. Við handlækningadeild Land-
spítalans starfaði Snorri sem aðstoðar-
læknir og síðar deildarlæknir frá 1944-
1945 og 1947-1951, en var þá skipaður
prófessor í handlæknisfræði og jafnframt
yfirlæknir handlækningadeildar Landspít-
alans. Því starfi gegndi hann til dauða-
dags.
Snorri Hallgrímsson gegndi auk þessa
af skörungsskap fjölda trúnaðarstarfa. Má
þar nefna störf hans í byggingarnefnd
Landspítalans, en í henni átti hann sæti
frá 1952. Hann átti og sæti í stjórn Lækna-
félags Reykjavíkur 1948-1950, og formað-
ur Skurðlæknafélags íslands var hann
1957-1961. Hann hlaut margháttaða viður-
kenningu fyrir störf sín, bæði hér heima
og erlendis. Eftir prófessor Snorra liggja
allviðamikil ritverk í tímaritum, og bók-
um.
Á síðari árum fékk prófessor Snoi’ri
mikinn áhuga á fiskrækt og vann að þeim
málum af þeirri framtakssemi, sem hon-
um var eiginleg.
Snorri Hallgrímsson kvæntist árið 1942
eftirlifandi konu sinni, Þuríði Finnsdóttur.
Eignuðust þau 5 mannvænleg börn.
Prófessor Snorri Hallgrímsson er harm-
dauði allri íslenzku þjóðinni. íslenzkir
læknar sjá á bak einum hinna mikilhæí-
ustu úr sínum hópi. Ritstjórn Læknablaðs-
ins vottar vandamönnum hans dýpstu sam-
úð. P. A.
Prófessor Snorri Hallgrímsson andaðist
27. jan. 1973 aðeins liðlega sextugur.
Þó að æviár hans yrðu ekki fleiri, var
ævistarfið langt, því hver stund var vel
nýtt.
Prófessor Snorri var í fararbroddi í ís-
lenzkum skurðlækningum frá því hann
hóf störf í landinu. Hann var annar sér-
fræðingur í bæklunarlækningum á íslandi.