Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.06.1977, Qupperneq 7

Læknablaðið - 01.06.1977, Qupperneq 7
LÆKNABLAÐIÐ 87 Árni Bjömsson GEÐRÆN VIÐHORF í SKURÐLÆKNINGUM Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal liöfð í nærveru sálar. (E. Benediktsson);l Greinin fjallar annarsvegar um geðræn viðhorf í almennum skurðlækningum, þ.e. a.s. um geðræn viðbrögð sjúklinga við því að þurfa skurðaðgerð, svo og geðræn við- brögð við afleiðingum skurðaðgerða. Þá er rætt um hvernig skurðlæknirinn á með viðræðum við væntanlegan skurðsjúkling, að reyna að milda og koma í veg fyrir geð- rænar truflanir, bæði fyrir og eftir aðgerð. Hinsvegar er rætt um geðræn viðhorf í skapnaðarlækningum sérstaklega, rætt um líkamsmyndina (body image), um flokkun þeirra sjúklinga, sem leita til skapnaðar- lækna og um það, hvaða geðræn vandamál hugsanlegt er að lækna eða létta með hjálp skapnaðarlækninga. HLUTVERK SKURÐLÆKNA Álit hluta almennings og raunar sumra lækna á skurðlæknum er, að þeir séu fyrst og fremst læknisfræðilegir tæknifræðing- ar, sem hafi það hlutverk að vinna ákveðin handverk, helst eftir forskriftum annarra lækna. Þetta er arfur frá þeim tíma, þegar skurðlæknar voru ekki taldir til lækna, en tilheyrðu stétt bartskera. Viðhorf margra skurðlækna til starfs síns og sjúklinga, hef- ur ekki stuðlað að því að eyða þessum arfi og sérhæfingin í nútíma læknisfræði hefur átt þátt í að viðhalda honum. En í raun og veru er þessu á annan veg farið. Skurðlæknir er læknir, sem notar sömu aðferðir og aðrir læknar þ.e.a.s. hann læknar sjúklinga með sjúkdóma, en ekki sjúkdóma eingöngu. Sjúklingur leitar til læknis vegna þess, að hann hefur orðið var við breytingar á líkamlegu ástandi sínu, sem hann telur óeðiilegar. Hann vill fá að vita ástæðurnar fyrir þessum breytingum, hvort þær séu sjúklegar, hvað hægt sé að gera við þeim og séu þær sjúklegar, hverjar horfur séu á bata. Sumir skurðsjúkdómar hafa bein geð- ræn áhrif, t.d. ýmsir innkirtlasjúkdómar og sjúkdómar í miðtaugakerfi. Um þá sjúk- dóma verður ekki rætt í þessari grein, heldur um geðræn viðbrögð við þeirri vitneskju að þurfa að gangast undir skurð- aðgerð og geðræn viðbrögð við afleiðing- um slíkra aðgerða. VIÐBRÖGÐ SJÚKLINGA Geðræn viðbrögð við grun um sjúkdóm eru ótti og kvíði, ótti við sjúkdóminn og kvíði fyrir afleiðingum hans. Stundum geta þessi viðbrögð orðið svo sterk, að ein- staklingurinn hikar við að leita læknis og dregur það jafnvel úr hömlu. Á þetta eink- um við ef einstaklingurinn óttast illkynja eða illræmdan sjúkdóm. Er sjúklingurinn kemur til læknis, ber lækninum að taka tillit til þess að andlegu jafnvægihans er að öllum líkindum raskað, oft miklu meira en séð verður í fljótu bragði. Meðan á sjúk- dómsgreiningu stendur á læknirinn því að reyna að hughreysta sjúklinginn og vinna traust hans með vingjarnlegu, rólegu fasi. Ef niðurstaða sjúkdómsgreiningar og á- kvörðun um meðferð er, að gera þurfi skurðaðgerð, á læknirinn að gera sjúk- lingnum eða aðstandendum hans ef um börn er að ræða, grein fyrir því hversvegna þurfi að framkvæma aðgerðina, í hverju hún sé fólgin, hverjar séu afleiðingar hennar, hvaða fylgikvillum megi búast við og hvort aðgerðin sé lífshættuleg eða ekki. Hafi læknirinn hug á að vinna traust sjúk- lingsins og halda því, á hann að vera heið- arlegur, hóflega bjartsýnn og forðast sem mest að nota orðin alltaf og aldrei.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.