Læknablaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 16
92
LÆKNABLAÐIÐ
gerðir gildi fyrir þá, sem af einhverjum
ástæðum þurfa að breyta iífsháttum sínum.
Með þeim er hægt að bæta sjálfsmyndina
og gefa viðkomandi andlegt öryggi til að
mæta breyttum viðhorfum.
Ahbif aðgerða
Rannsóknir hafa verið gerðar á því,
hvort hægt sé að breyta ferli afbrotamanna
og hjálpa þeim til að aðlagast þjóðfélaginu
með því að laga líkamlegt afbrigði,710 19 en
rannsóknum þessum ber ekki saman. Ein
rannsókn segir, að slíkar aðgerðir hafi
engin áhrif,10 önnur að hundraðstala þeirra
afbrotamanna, sem lenda aftur í fangelsi sé
lægri hjá þeim, sem aðgerðir hafa vérið
gerðar á.19 Vart er þess að vænta, að and-
þjóðfélagslegt atlhæfi verði stöðvað eða
bætt nema í einstökum tilfellum, því marg-
ir afbrotamenn eru psydhopatar, sem nota
líkamsafbrigði sín sem afsökun fyrir hegð-
un sinni. Sennilega er geðmynstur þessara
einstaklinga afbrigðilegt frá upphafi og hin
líkamlegu afbrigði magna afbrigðileika
þess.
Ekki er mikils árangurs að vænta af
skapnaðaraðgerðum hjá því fólki, sem leit-
ar í þeim lausnar á tilfinningalegum vanda-
málum,18 sérstaklega ef þau vandamál eru
bundin truflunum á fjölskyldulífi eða þjóð-
félagslegri aðstöðu.5 Sjúklingum, sem
koma með fastákveðnar skoðanir á því
hvers árangurs þeir vænta af aðgerðum,
svo og þeim sjúklingum, sem gera sér von-
ir um óeðlilega félagslega eða andlega á-
vinninga af aðgerðunum, ber að taka með
fyllstu varúð.7 Þessir sjúklingar verða
sjaldan ánægðir með árangur af aðgerðum
og í þessum hópi eru svokallaðir óseðjandi
aðgerðarsjúklingar,12 þ.e.a.s. sjúklingar,
sem stöðugt fara fram á nýjar og nýjar að-
gerðir. Þegar grunur leikur á, að geðræn
vandamál séu undirrót, en ekki orsök þess,
að sjúklingur leitar skurðlæknis, vegna
lýta eða frávika frá meðalmyndinni, er
eðlilegt að vísa honum fyrst til geðlæknis
og að geðlæknirinn og skurðlæknirinn hafi
síðan samráð sin á milli um meðferðina.
TRYGGINGAR OG GREIÐSLUFORM
Nú er ekki lengur um það deilt, að þeir
sem lýttir eru, annað hvort frá fæðingu eða
vegna áverka eða sjúkdóma, eigi sama rétt
til fullkominnar læknishjálpar og þeir, sem
haldnir eru vefrænum eða geðrænum sjú'k-
dómum. En menn eru ekki á eitt sáttir um
það, hvort fegrunarlækningar, og er þá átt
við aðgerðir vegna frávika frá meðalmynd-
inni, án þess að um bein lýti sé að ræða,
eigi rétt á sér. Sumir halda því fram, að
slíkar aðgerðir séu ekki réttlætanlegar
meðan önnur meira aðkallandi verkefni
innan læknisþjónustunnar bíði úrlausnar.
í flestum löndum, jafnvel þeim, sem
hafa fullkomið tryggingakerfi, hafa sjúk-
lingarnir sjálfir orðið að greiða þessar að-
gerðir og þar hafa þær orðið ýmsum lækn-
um drjúg tekjulind. Hér á íslandi eru all-
ar skurðaðgerðir og öll sjúkrahúsvistun
greidd af sjúkratryggingum og er læknum
þannig gefið mikið frelsi til að velja þá
sjúklinga, sem þeir taka til meðferðar. Það
að þessar aðgerðir eru greiddar af trygg-
ingunum á sama hátt og aðrar, gerir það
að þær verða ekki forréttindi þeirra rík-
ari, og það að greiðslur fyrir þær eru ekki
aðrar eða hærri en fyrir almennar 'hand-
læknisaðgerðir, gerir það að þær eru að
jafnaði ekki teknar fram yfir aðrar ef tii
vill meira aðkallandi aðgerðir.
f þjóðfélagi sem kallar sig velferðarþjóð-
félag verður að líta svo á, að velferðin eigi
að stuðla að bæði andlegri og líkamlegri
velferð þegnanna og af því leiðir, að að-
gerðir sem stuðla að þessum þáttum báð-
um, Ihljóta að eiga jafnan rétt á sér.
NIÐURLAG
Rætt hefur verið um geðræn viðhorf í
skurðlækningum, fyrst um geðræn viðhorf
sjúklinga við skurðaðgerðum og afleiðing-
um þeirra, svo og hvernig æskilegt sé að
læknirinn bregðist við þeim. Þá er gerð
grein fyrir likamsmyndinni (body image)
og frávikum frá henni og lagðar fram hug-
myndir um það, hvernig geðrænar truflan-
ir get verið afleiðing af slíkum frávikum.
Af sjúklingaflokkum er minnst á sjúklinga
með meðfædd lýti og sjúklinga með áunn-
in lýti, þar á meðal brunasjúklinga sérstak-
lega. Að lokum er rætt um fegrunaraðgerð-
ir, gildi þeirra og staðsetningu í heilbrigð-
iskerfi velferðarríkis.
TILVITNANIR
1. Amarson, Öm. Illgresi. Helgafell 1965
(Meyjarfegurð).