Læknablaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 46
108
LÆKNABLAÐIÐ
Eftir það fækkaði tilfellum að mun, en er
nú ef til vill aftur að fjölga. Sumarið 1973
fór ég fyrst að sjá um meindýragreiningu,
en staraflóartilfelli fékk ég ekki fyrr en í
byrjun ársins 1975, og urðu fjölskyldutil-
fellin 5 það vor. Tilfellin eru þó ugglaust
fleiri, en vandamálið er það vel þekkt, að
læknar, (heilbrigðisfulltrúar eða þeir sem
bitnir eru átta sig á því og leysa það áður
en kemur til minna kasta.
Rottuflóin og rottumaurinn
Rottufló (Nosopsyllus fasciatus (Bosc))
og rottumaur (Ornithonyssus bacoti
(Hirst)) lifa á rottum, en geta einnig farið
á ýmis önnur nagdýr og jafnvel menn, en
ekki geta þau lifað á þeim til lengdar.
Bæði dýrin hafa breiðst út með rottum um
allan heim.
Lífsferill rottuflóarinnar er í stórum
dráttum 'hinn sami og staraflóarinnar, en
lífsferill rottumaursins er nokkuð ólíkur.
Mynd 2. — Rottufló, (Nosopsyllus fascia-
tus), karldýr og kvendýr séð frá hlið. Dýr-
in líkjast mjög staraflónni, en eitt gleggsta
einkennið, er greinir tegundirnar að, er að
rottuflóin hefur færri linakkabrodda.
Stækkun 12,5x. (Eftir Herms og James,
Medical Entomology, 1961).
Fullorðnir rottumaurar sjúga blóð úr hýsli
sínum og verpa eggjum í hreiður hans. Úr
eggjunum koma svo afkvæmi er líkjast
fullorðnu dýrunum og lifa á svipaðan hátt,
en eru rninni, ljósari og hafa aðeins sex
lappir. Dýrin skipta síðan um iham og hafa
Mynd 3. — Rottumaur, (Ornithonyssus
bacoti), kvendýr, séð að ofan og neðan.
Dýrið er brúnt og flatvaxið. Stækkun 50x.
(Eftir Smith, Insects and other Arthropods
of Medical Importance, 1973).
þá fengið átta lappir. Efir nokkur ham-
skipti í viðbót eru dýrin orðin fullorðin.
Rottuflóin hefur áður verið greind hér a
rottum og músum en rottumaurinn ekki
svo mér sé kunnugt. Ekki veit ég heldur til
þess, að bit á mönnum hafi áður verið rak-
in til þessara dýra hérlendis, og má þó
telja víst að þau hafi oft lagst á fólk.
Fyrsta staðfesta tilfellið kom frá Hafn-
arfirði sumarið 1973. Heilbrigðisfulltrúinn
þar á staðnum kom með rottumaura og
rottuflær er höfðu fundist í íbúð og fólkið
þar hafði verið bitið um alllanga hríð. Þeg-
ar timburgólf í forstofu var rifið upp,
fannst þar rottuhreiður, og eftir að steypt
hafði verið í gólfið tók fyrir þennan ó-
fögnuð. Síðan hafa bæst við fleiri fjöl-
skyldutilfelli og eru þau nú alls 10. í
Hafnarfirði hafa fundist bæði fló og maur
í tveimur tilfellum, í fimm tilfellum að-
eins maur og í einu tilfelli aðeins fló. í
Reykjavík hefur í einu tilfelli fundist
maur, og á Djúpavogi hefur fundist fló.
Enda þótt í flestum tilfellunum hafi ein-
ungis fundist önnur tegundin kann hin
einnig að hafa verið þar.
Aðstæður á Djúpavogi voru ekki kann-
aðar, en í hinum tilfellunum voru þær yf-
irleitt mjög svipaðar. íbúðirnar, sem bit-
vargurinn fannst í, voru nær alltaf í kjall-
ara eða á jarðhæð í eldri húsum. Annað
hvort hafði orðið vart við rottugang í hús-
inu eða ummerki um rottur fundust við